Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Blaðsíða 24
Vikublað 17.–19. janúar 201724 Menning Að fanga rétta útlitið Áslaug Dröfn Sigurðardóttir á heiðurinn af eftirminnilegum gervum í sjónvarpsþáttaröðinni Fangar R aunsæislegt og trúverð- ugt útlit sjónvarpsþáttanna Fanga, sem sýndir eru á RÚV, hefur hlotið mikið lof að undanförnu. Það er ekki síst ófrýnilegt gervi Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur í hlutverki fangans Diddu sem hefur vakið athygli, en ein þeirra sem á heiðurinn af glæsilegu útliti persónanna er gervahönnuð- urinn Áslaug Dröfn Sigurðardóttir. „Við erum svo ofboðslega fegurðar- fötluð í dag og það var virkilega gam- an að þurfa ekki að fylgja þeim staðli við gerð þessara þátta. Það er rosalega gaman að fá leyfi frá leikstjóra, töku- manni og öllum til að prófa sig áfram og til dæmis vinna með skugga sem eru ekkert sérstaklega fegrandi fyr- ir leikarana. Hugmyndum var kastað fram og voru svo metnar óháð því hvort það færi þeim vel. Það var ekki meginmarkmiðið,“ segir Áslaug í samtali við blaðamann DV. Nýtur sín best í bíóinu Áslaug Dröfn, sem er upphaflega lærð hárgreiðslumeistari en stund- aði síðar nám í gervahönnun, hef- ur verið viðriðin kvikmyndabrans- ann í meira en áratug, eða frá því að hún tók þátt í risakvikmynd Clints Eastwood Flags of Our Fathers sem var tekin upp að hluta til á Íslandi árið 2004. Síðan þá hefur Áslaug eig- inlega meikað það í meikinu, tekið þátt í fjölda alþjóðlegra kvikmynda og þáttaraða á borð við Game of Thrones, Promotheus, Noah og The Secret Life of Walter Mitty auk fjöl- margra íslenskra verkefna. „Ég hef aðeins verið í leikhúsi líka, en ég nýt mín best í bíó og sjónvarpi,“ segir Ás- laug Dröfn um starfsvettvanginn. „Starfið felst fyrst og fremst í að hjálpa til við að setja karakterinn á leikarann, að sjá til þess að hann sé trúverðugur. Þetta þarf maður að gera í samvinnu við rosalega marga. Fyrst og fremst er það náttúrlega leikarinn – sem er efniviðurinn – en svo eru það leikstjóri og handrits- höfundur, búningahönnuður og svo framvegis. Þannig að starfið snýst mjög mikið um samvinnu.“ Leikararnir lífga karakterana við Áslaug segir að það sem einkenni Fanga sé meðal annars áherslan á að hafa raunsæislegt útlit á persón- unum. „Ragnar hefur gert þetta að minnsta kosti einu sinni áður – í sjónvarpsþáttunum Heimsendir. Þá var líka lagt upp með að persón- urnar þyrftu hvorki að vera óeðlilega ljótar eða sætar. Áherslan var frekar á að áhorfendur gætu tengt þær við fólk sem það kannast við: „Já, ég hef séð þessa týpu eða þennan karakter einhvers staðar.“ Þannig var ekki lögð áhersla á að gera stelpurnar í Föng- um ófríðar heldur fyrst og fremst að gera þær trúverðugar,“ segir Áslaug og segir það frískandi að taka þátt í verkefni þar sem ekki sé verið að láta persónurnar uppfylla óraunhæfa fegurðarstaðla. Hún segir að innblásturinn að út- litinu hafi meðal annars komið úr hinum ýmsu heimildarmyndum um líf innan veggja fangelsis og svo úr bíómyndum. Hún segir að vinnan að Föngum hafi þó fyrst og fremst ein- kennst af tilraunagleði því mörgum hugmyndum var kastað fram og hún hafi því prófað sig áfram í átt að réttu útliti. „Við gerðum rosalega mik- ið af prufusminkum og það var ým- islegt prófað. Til dæmis prófuðum við margar tegundir af hárkollum á Dóru [Halldóru Geirharðsdóttur, sem leikur stjórnmálakonuna Val- gerði] áður en við ákváðum að klippa hana stutt.“ En hvað með persónu Diddu, sem Steinunn Ólína leikur, hvað getur þú sagt okkur um hennar útlit? „Raggi sendi mér ákveðna punkta sem hann vildi vinna með. Svo hittu- mst við Steinunn nokkrum sinn- um. Hún var algjörlega „all in“ og vildi bara gera þetta að mögnuð- um karakter. Það er svo gaman þegar leikkona leyfir manni að fara með hana alla leið – hún var aldrei með áhyggjur að þetta yrði eitthvað asnalegt eða myndi ekki virka. Við prófuðum alls konar útlit, prófuð- um mýkri útgáfu af Diddu og próf- uðum að setja greiðslur í hana, að hafa hana með ör og ýmislegt ann- að,“ segir Áslaug en vill þó ekki taka of mikinn heiður fyrir Diddu: „Þó að ég setji eitthvert smink á leikarana þá eru það fyrst og fremst þeir sem lífga karakterana við.“ Að fegra stórstjörnurnar Áslaug segir ekki mikinn mun á að vinna að alþjóðlegum stórmynd- um og íslenskri sjónvarpsþáttaröð enda sé fagmennskan og reynslan orðin svo mikil í kvikmyndaiðnaðin- um á Íslandi. Hún segir þó að vissu- lega sé allt miklu stærra í sniðum í Hollywood-myndunum og fær hún til dæmis sjaldnast að vera með putt- ana í andlitinu á stórstjörnunum – sem mæta á tökustaðinn með sín eigin teymi. „En stundum þarf maður samt að stökkva til. Þegar Russell Crowe og Jennifer Connelly voru hérna við tökur á Noah þurfti ég eflaust að færa til einn eða tvo hárlokka – en þá kom maður að þeim aftan frá svo þau tækju örugglega ekki eftir að það væri ég sem væri að laga, en ekki manneskjan sem átti að sjá um þau,“ segir Áslaug og hlær. n Fjórði þáttur Fanga verður sýnd- ur á RÚV næstkomandi sunnudags- kvöld 22. janúar klukkan 21.00. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Meistari gervanna Áslaug Dröfn Sigurðardóttir við tökur á Föngum. MyND LiLjA jóNSDóttir MyND LiLjA jóNSDóttir Borgartún 23, Reykjavík / Sími: 561 1300 / Opið: mán. - fös. 10-18, lau. 11-18 & sun. 12-16 Þú getur líka pantað á netinu www.reykjavikurblom.is Blóm og gjafavara við öll tækifæri Góð og persónuleg þjónusta Skírn - Fermingar - Brúðkaup - Samúð - Útfarir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.