Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Blaðsíða 10
Vikublað 17.–19. janúar 201710 Fréttir
Retor Fræðsla
Íslenskukennsla fyrir innflytjendur
Vorönn 2017
er að hefjast!
Hafðu samband
á retor.is eða í
síma 519 4800
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is
„Hún er pabbastelpa“
M
aður býst bara við hinu
versta,“ segir Brjánn
Guðjónsson, faðir hinn-
ar tvítugu Birnu Brjáns-
dóttur. Í samtali við blaða-
mann DV segir Brjánn ekki hægt að
lýsa því sem farið hefur í gegnum
hugann undanfarna daga. Lítið sé
hægt að gera annað en að bíða eftir
fréttum og í raun hafi hann og fjöl-
skyldan ekki annað haldreipi en von-
ina.
Lögreglan virðist á algjörum byrj-
unarreit í leitinni að Birnu, sem sást
síðast á gangi upp Laugaveg klukkan
05.35 snemma á laugardagsmorgun.
Engar vísbendingar hafa borist lög-
reglunni sem varpað geta ljósi á
ferðir hennar eftir umræddan tíma
en fyrir liggur þó að einhver slökkti
á síma hennar sem virðist hafa ver-
ið í bíl, í námunda við Hafnarfjörð,
skömmu síðar.
„Ég er mestmegnis búinn að vera
hérna heima á meðan lögreglan hef-
ur verið hér eins og grár köttur í gær
(sunnudag) og í dag (mánudag). En
ég veit af því að það er fólk að leita að
henni,“ segir Brjánn, sem jafnframt
vill koma á framfæri þökkum til lög-
reglu og björgunarsveitarfólks sem
tekið hefur þátt í leitinni að Birnu.
Þá tekur hann undir það að magn-
að sé að horfa upp á velvilja og sam-
hug ókunnugs fólks sem lagt hefur
leitinni lið.
„Einar og Brynjar, tveir strákar
sem eru miklir tölvugúrúar, settu sig
til dæmis í samband við mömmmu
Birnu. Þetta eru ókunnugir strákar
utan úr bæ sem komu hing-
að í gær og voru að reyna að
finna símann. Mér skilst líka
að það hafi verið bláókunn-
ugt fólk sem stofnaði leitar-
síðuna á Facebook.“
Bara þau og kötturinn
Birna hefur búið í
Bakkahverfinu hjá pabba
sínum undanfarin tvö ár. Hún hætti
með kærastanum sínum í haust og
er búin að vera að vinna í Hagkaup.
„Hún flutti til mín þegar hún
varð sjálfráða og við
búum hérna saman,
við tvö og kötturinn.
Við erum rosalega
náin og sambúðin er
frábær. Hún er mikil
pabbastelpa, hún Birna.
Hún er pabbastelpa og
ég er Birnupabbi.“
Móðir Birnu og
vinkonur hafa tekið
fram við fjölmiðla að það sé afar ólíkt
henni að láta ekki vita af sér. Yfirleitt
sé alltaf hægt að ná í hana. Þá hefur
komið fram að Birna sé ekki í óreglu.
Þetta tekur Brjánn undir.
„Hún er mikið með vinkonum
sínum, þær fara út og rúnta og þess
háttar en hún er alls ekki mikið
á einhverjum stífum fylliríum.
Stundum hefur hún gist hjá
vinkonum sínum en yfirleitt hefur
hún komið heim edrú. Hún hefur
farið út á kvöldin og verið með vinum
sínum og komið heim klukkan tvö,
þrjú um nóttina,“ segir Brjánn.
Það hefði þá mátt ætla að það
yrði eins aðfaranótt laugardags?
„Já, já, ég átti von á henni um
morguninn. Hún hefur verið úti
frameftir nóttu áður en hún hefur
alltaf skilað sér. Hún kemur sér alltaf
heim.“
Á blaðamannafundi sem
lögreglan hélt síðdegis í gær
(mánudag) var lögregla spurð að
því hvort eitthvað benti til þess að
Birna hefði framið sjálfsvíg. Bent var
á að á samfélagsmiðlinum Facebook
væru myndir sem bentu til þess að
henni liði ekki vel. Lögreglan svaraði
því til að í svona málum væri ekkert
útilokað en bætti þó við: „Við höfum
rætt við fjölskyldu hennar sem segir
okkur að hún hafi svartan húmor.
Það sem fram komi í þessu skyni
sé því marki brennt.“ Þetta sagði
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn
við spurningu þess efnis. Á
Facebook-síðu Birnu má sjá fjölmörg
„meme“ eða myndir sem samsettar
eru myndum og texta, sem gætu
bent til vanlíðunar eða þess að
hún hafi svartan húmor. Þar eru
sjálfsvígshugsanir og/eða þunglyndi
haft í flimtingum. Grímur sagði að
rætt hefði verið um það bil tólf vini
og aðstandendur Birnu og þeim hafi
borið saman um að ekkert sérstakt
amaði að.
Sjálfur hefur Brjánn hvergi skynj-
að vanlíðan hjá dóttur sinni.
„Ég gat alls ekki merkt það. Það hefur
þá algjörlega farið fram hjá mér. En
hún er mjög mikið að setja svokallað
„meme“ inn á Facebook, einhver
svona húmor sem ég skil ekkert í.
Einhver svona húmor sem ég fatta
n Brjánn, faðir Birnu, segir þau mjög náin n Hafa búið saman í tvö ár n Skilar sér alltaf heim n „Það verður að halda í vonina“ segir hann
Auður Ösp Guðmundsdóttir
Baldur Guðmundsson
audur@dv.is / baldur@dv.is
Stendur í ströngu Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu, svaraði fjölmiðlum eftir blaða-
mannafund lögreglunnar í gærdag. Mynd SiGtryGGur Ari
Lögreglan Lögreglan hefur litl-
ar sem engar vísbendingar fengið
sem geta sagt til um ferðir Birnu,
eftir að hún hvarf, umræddan
morgun. Mynd SiGtryGGur Ari
Kia rio Ökumaður þessarar bifreiðar hefur ekki gefið sig fram. Lögregla hvetur hann til að hafa samband.