Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Side 10
Vikublað 17.–19. janúar 201710 Fréttir Retor Fræðsla Íslenskukennsla fyrir innflytjendur Vorönn 2017 er að hefjast! Hafðu samband á retor.is eða í síma 519 4800 Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is „Hún er pabbastelpa“ M aður býst bara við hinu versta,“ segir Brjánn Guðjónsson, faðir hinn- ar tvítugu Birnu Brjáns- dóttur. Í samtali við blaða- mann DV segir Brjánn ekki hægt að lýsa því sem farið hefur í gegnum hugann undanfarna daga. Lítið sé hægt að gera annað en að bíða eftir fréttum og í raun hafi hann og fjöl- skyldan ekki annað haldreipi en von- ina. Lögreglan virðist á algjörum byrj- unarreit í leitinni að Birnu, sem sást síðast á gangi upp Laugaveg klukkan 05.35 snemma á laugardagsmorgun. Engar vísbendingar hafa borist lög- reglunni sem varpað geta ljósi á ferðir hennar eftir umræddan tíma en fyrir liggur þó að einhver slökkti á síma hennar sem virðist hafa ver- ið í bíl, í námunda við Hafnarfjörð, skömmu síðar. „Ég er mestmegnis búinn að vera hérna heima á meðan lögreglan hef- ur verið hér eins og grár köttur í gær (sunnudag) og í dag (mánudag). En ég veit af því að það er fólk að leita að henni,“ segir Brjánn, sem jafnframt vill koma á framfæri þökkum til lög- reglu og björgunarsveitarfólks sem tekið hefur þátt í leitinni að Birnu. Þá tekur hann undir það að magn- að sé að horfa upp á velvilja og sam- hug ókunnugs fólks sem lagt hefur leitinni lið. „Einar og Brynjar, tveir strákar sem eru miklir tölvugúrúar, settu sig til dæmis í samband við mömmmu Birnu. Þetta eru ókunnugir strákar utan úr bæ sem komu hing- að í gær og voru að reyna að finna símann. Mér skilst líka að það hafi verið bláókunn- ugt fólk sem stofnaði leitar- síðuna á Facebook.“ Bara þau og kötturinn Birna hefur búið í Bakkahverfinu hjá pabba sínum undanfarin tvö ár. Hún hætti með kærastanum sínum í haust og er búin að vera að vinna í Hagkaup. „Hún flutti til mín þegar hún varð sjálfráða og við búum hérna saman, við tvö og kötturinn. Við erum rosalega náin og sambúðin er frábær. Hún er mikil pabbastelpa, hún Birna. Hún er pabbastelpa og ég er Birnupabbi.“ Móðir Birnu og vinkonur hafa tekið fram við fjölmiðla að það sé afar ólíkt henni að láta ekki vita af sér. Yfirleitt sé alltaf hægt að ná í hana. Þá hefur komið fram að Birna sé ekki í óreglu. Þetta tekur Brjánn undir. „Hún er mikið með vinkonum sínum, þær fara út og rúnta og þess háttar en hún er alls ekki mikið á einhverjum stífum fylliríum. Stundum hefur hún gist hjá vinkonum sínum en yfirleitt hefur hún komið heim edrú. Hún hefur farið út á kvöldin og verið með vinum sínum og komið heim klukkan tvö, þrjú um nóttina,“ segir Brjánn. Það hefði þá mátt ætla að það yrði eins aðfaranótt laugardags? „Já, já, ég átti von á henni um morguninn. Hún hefur verið úti frameftir nóttu áður en hún hefur alltaf skilað sér. Hún kemur sér alltaf heim.“ Á blaðamannafundi sem lögreglan hélt síðdegis í gær (mánudag) var lögregla spurð að því hvort eitthvað benti til þess að Birna hefði framið sjálfsvíg. Bent var á að á samfélagsmiðlinum Facebook væru myndir sem bentu til þess að henni liði ekki vel. Lögreglan svaraði því til að í svona málum væri ekkert útilokað en bætti þó við: „Við höfum rætt við fjölskyldu hennar sem segir okkur að hún hafi svartan húmor. Það sem fram komi í þessu skyni sé því marki brennt.“ Þetta sagði Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn við spurningu þess efnis. Á Facebook-síðu Birnu má sjá fjölmörg „meme“ eða myndir sem samsettar eru myndum og texta, sem gætu bent til vanlíðunar eða þess að hún hafi svartan húmor. Þar eru sjálfsvígshugsanir og/eða þunglyndi haft í flimtingum. Grímur sagði að rætt hefði verið um það bil tólf vini og aðstandendur Birnu og þeim hafi borið saman um að ekkert sérstakt amaði að. Sjálfur hefur Brjánn hvergi skynj- að vanlíðan hjá dóttur sinni. „Ég gat alls ekki merkt það. Það hefur þá algjörlega farið fram hjá mér. En hún er mjög mikið að setja svokallað „meme“ inn á Facebook, einhver svona húmor sem ég skil ekkert í. Einhver svona húmor sem ég fatta n Brjánn, faðir Birnu, segir þau mjög náin n Hafa búið saman í tvö ár n Skilar sér alltaf heim n „Það verður að halda í vonina“ segir hann Auður Ösp Guðmundsdóttir Baldur Guðmundsson audur@dv.is / baldur@dv.is Stendur í ströngu Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu, svaraði fjölmiðlum eftir blaða- mannafund lögreglunnar í gærdag. Mynd SiGtryGGur Ari Lögreglan Lögreglan hefur litl- ar sem engar vísbendingar fengið sem geta sagt til um ferðir Birnu, eftir að hún hvarf, umræddan morgun. Mynd SiGtryGGur Ari Kia rio Ökumaður þessarar bifreiðar hefur ekki gefið sig fram. Lögregla hvetur hann til að hafa samband.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.