Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Blaðsíða 2
Vikublað 17.–19. janúar 20172 Fréttir IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408 Þú færð hákarl og súran hval í öllum helstu matvöruverslunum. Nú fer Þorrinn að ganga í garð! Þorramatur Þ etta er orðið svo algengt að þetta er nánast orðið eins og að smitast af kvefi,“ seg- ir Hulda Pálsdóttir, við- skiptastjóri hjá Icepharma, sem flytur inn Hedrin-vörurnar sem vinna á höfuðlús. Grunnskól- ar landsins eru komnir á fullt skrið eftir jólafríið. Að því er virðist óhjá- kvæmilegur fylgifiskur þess eru til- kynningar um að höfuðlúsin hafi látið á sér kræla með tilheyrandi til- mælum til foreldra um hárþvott og kembingar. Helstu dreifingaraðil- ar þeirra lyfja sem notuð eru til þess að stemma stigu við lúsinni segja söluna hafa aukist talsvert. Sömu sögu er að segja frá Lyf- is sem flytur inn Lycerin-sjampóið. Hún segir að lúsin fari ekkert í mann- greiningarálit og allir geti smitast: „Þetta er ekki tengt óþrifnaði og þarf því ekki að vera neitt feimnismál.“ Þá eru þess dæmi að skólar skeri upp herör gegn lúsafaraldri og hafi sigur, að minnsta kosti tímabundinn. Lúsin stekkur hvorki né flýgur Á vef landlæknis kemur fram að full- orðin höfuðlús sé 2–3 millimetrar að stærð eða svipuð og sesamfræ. Hún verpir eggjum, svokölluðum nitum sem klekjast út á sex til tíu dögum. Unglýs þroskast síðan yfir í fullorðnar karl- eða kvenlýs á 9–12 dögum. Lúsin fer á milli hausa ef bein snerting verður frá hári til hárs í nægilega langan tíma til þess að dýrið geti skriðið á milli. Lúsin get- ur hvorki stokkið, flogið né synt. Þá verður lús sem fallið hefur út í um- hverfið strax löskuð og veikburða. Þess vegna er talið ólíklegt að hún smitist með fatnaði og innanstokks- munum. „Þó er ekki hægt að útiloka greiður, bursta, húfur og þess háttar, sem notað er af fleiri en einum innan skamms tíma, geti borið smit á milli,“ segir á vef Landlæknis. Jafnari sala en áður „Við finnum fyrir talsverðri aukningu á sölu á okkar vörum undanfarin tvö ár. Það sem er athyglisvert er að salan er mun jafnari yfir árið en áður. Áður fyrr voru toppar þegar skólarnir voru að byrja í september og janúar. Þessir mánuðir eru enn söluhæstir en bilið er orðið lítið, til dæmis er mikil sala yfir sumarmánuðina,“ segir Hulda. Hún segir að aukinn fólksfjöldi, með tilkomu ferðamanna, hafi eflaust sitt að segja varðandi aukninguna. „Lús- in smitast helst þegar hár liggur upp að öðru hári. Þess vegna er spurning hvort að sjálfu-myndatökurnar sem eru vinsælar meðal ungmenna eigi hlut að máli,“ segir Hulda. Að hennar sögn er mikilvægt að foreldrar og forráðamenn taki á mál- inu af festu ef smit gerir vart við sig: „Það þarf að gera þetta almennilega, ekkert hálfkák. Það þarf að þekja allt hárið vandlega, segir Hulda. Þá er mælt með því að kemba dag- lega í tvær vikur eftir að lús finnst og endurtaka meðferð með lúsasjampói í takt við fyrirmæli. Höfðu sigur á lúsinni En þrátt fyrir að lúsafaraldrar í skól- um séu hvimleiðir þá er engin ástæða til þess að örvænta. Dæmi eru um að skólar hérlendis skeri upp herör gegn lúsinni og það með góðum árangri. Einn slíkur skóli er Hvolsskóli, grunnskólinn á Hvols- velli. Skólastjórnendur þar voru orðnir langþreyttir á því að senda út lúsatilkynningar til foreldra og ákváðu að taka málið í sínar hend- ur. „Um miðjan nóvembermánuð vildi þannig til að skólahald var ekki með hefðbundnum hætti í þrjá daga. Þá sáum við fram á að húsnæðið fengi smá hvíld og gripum þá til að- gerða. Við sendum þá börnin heim með miða með leiðbeiningum um heppilega meðferð gegn lúsinni auk þess sem foreldrar áttu að merkja við hvort að barnið hafi verið kembt,“ segir Birna Sigurðardóttir, skólastjóri Hvolsskóla. Áskildi skólinn sér rétt til þess að kemba þá nemendur sem ekki skil- uðu inn staðfestingu þess efnis frá heimilum sínum eða þá að senda þá heim. Apótekinu í bænum var gert viðvart um að auka þyrfti birgð- irnar af lúsasjampói auk þess sem skólinn var þrifinn hátt og lágt. „Það voru nokkrir nemendur sem komu ekki með miða til baka eftir leyfið og ég aðstoðaði hjúkrunarfræðinginn í skólanum við að kemba þeim,“ seg- ir Birna. Herferðin virðist hafa bor- ið tilætlaðan árangur því ekkert tilvik um lús hefur skotið upp kollinum í skólanum síðan í nóvember. n „Nánast eins og að smitast af kvefi“ n Aukning á sölu lyfja gegn höfuðlús n Hvolsskóli útrýmdi óværunni Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Höfuðlús Er óvelkominn gestur í hársvörðum landsmanna. Hulda Pálsdóttir Talsverð aukning hefur verið á sölu lyfja til höfuðs lúsinni hjá Icepharma. Þyrlan vegna bílveltu Landhelgisgæslan sendi þyrlu á vettvang nærri Sandfelli í Ör- æfum síðdegis á mánudag. Þar varð bílvelta. Tveir voru í bíln- um en annar þeirra kastað- ist út úr honum. Hann er með áverka á höfði og er bæði skor- inn og marinn. Ferðafélagi hans, sem ekki kastaðist út, er einnig eitthvað slasaður, sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Suðurlandi. Liðs- menn björgunarsveitarinnar Kára í Öræfum komu fyrstir á vettvang en í framhaldi af því sjúkrabíll frá Kirkjubæjar- klaustri og annar frá Höfn. Í kjölfarið var kallað eftir þyrlu. Lyftur festast á milli hæða Gamlar lyftur, sem ítrekað festast á milli hæða á Landspítalanum, verða ekki endurnýjaðar að sögn framkvæmdastjóra rekstrarsviðs spítalans. RÚV greinir frá þessu. Mbl.is hafði áður greint frá því að hjúkrunarfræðingur, sjúkraliði og sjúklingur sem var á leið frá gjör- gæslu á almenna deild festust í lyftu í um 20 mínútur í fyrrinótt. Sama lyfta fest ist milli hæða á jóla dag en þá þurfti vél virki að hífa lyft una og ná fólki sem var þar inni út. Framkvæmdastjórinn segir nær ógerlegt að skipta um lyfturnar en til bráðabirgða hefur bráðalyftu verið komið fyrir utan á húsinu, fyrir alvarlega veika sjúklinga. „Það er meiri háttar mál að skipta út þessum lyftum, það er ekki hægt að setja nýjan hurðarbúnað,“ er haft eftir Ingólfi Þráinssyni framkvæmdastjóra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.