Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2017, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2017, Blaðsíða 6
Vikublað 24.–26. janúar 20176 Fréttir Þeir eru í varðhaldi n Grunaðir um aðild að hvarfi Birnu n Lögreglan sögð hafa fundið skilríki um borð M ennirnir tveir, sem sitja í gæsluvarðhaldi á Litla- Hrauni vegna rann- sóknarinnar á hvarfi og andláti Birnu Brjáns- dóttur, heita Möller Olsen og Niko- laj Olsen. Þeir hafa réttarstöðu grun- aðra í málinu, samkvæmt traustum heimildum DV. Um er að ræða tvo skipverja af togaranum Polar Nanoq, sem lögregla hefur haft í sinni um- sjá undanfarna daga. DV hefur ekki upplýsingar um að þeir séu tengdir fjölskylduböndum. Fram hefur komið að annar mannanna sé um þrítugt en hinn um 25 ára aldurinn. Þeir eru frá Grænlandi. DV hefur borist margar ábendingar um hvaða skipverjar séu grunaðir um að eiga aðild að hvarfi Birnu en listi yfir skráða skipverja gekk um tíma manna á milli á Face- book. Synjað um 4 vikna varðhald Hæstiréttur staðfesti í gær, mánudag, úrskurð héraðsdóms, sem dæmdi mennina í tveggja vikna gæsluvarð- hald vegna málsins. Lögregla fór fram á að mennirnir sættu fjögurra vikna gæsluvarðhaldi en þeirri kröfu höfnuðu dómstólar. Nærri 800 leitarmenn Leitarmenn í þyrlu Landhelgisgæsl- unnar fundu Birnu látna í fjöru við Selvogsvita um hádegisbil á sunnu- dag, eftir umfangsmestu leit sem Landsbjörg hefur skipulagt. Fram hefur komið að um 775 sjálfboða- liðar hafi komið að leitinni, þar af hafi leitarmenn verið 685 talsins. Á blaðamannafundi, sem lögreglan efndi til í kjölfar þess að Birna fannst á sunnudag, kom fram að líkfundur- inn væri afrakstur þeirrar leitar, en þyrlan hafði flogið strandlengjuna frá Reykjavík, vestur með Reykjanesi og þaðan með suðurströndinni að Selvogsvita. Lífsýni úr Birnu í bílnum Fyrir liggur að lífsýni úr Birnu fund- ust í Kia-Rio-bifreið sem mennirnir höfðu til leigu á þeim tíma sem Birna hvarf, snemma á laugardagsmorgun, þann 14. janúar síðastliðinn. Sjónir lögreglu beindust strax við upphaf rannsóknarinnar að bif- reiðinni, sem ók niður Laugaveg- inn á sama tíma og Birna fór þar um, en þaðan hafði hún gengið frá skemmtistaðnum Húrra. Upptökur úr myndavélum í miðbænum voru ekki nógu skýrar til að hægt væri að greina bílnúmer bifreiðarinnar í myrkrinu. Bíllinn fannst hins vegar eftir nokkra leit og greining lífsýna þykir staðfesta að Birna var í um- ræddum bíl. Skilríki Birnu í togaranum? Heimildir DV herma að skilríki Birnu hafi fundist í togaranum Polar Nanoq, en þeir sem fara fyrir rann- sókninni hafa ekki viljað staðfesta þær heimildir. Þá hafa þeir sem stýrt hafa rannsókninni ekki viljað gefa það upp hvort lífsýni úr Birnu hafi fundist víðar en í bílnum, svo sem á fatnaði sakborninga. „Orð fá ekki linað hina miklu sorg Óhætt er að fullyrða að þjóðin hafi staðið á öndinni vegna hvarfs Birnu Brjánsdóttur. Lögregla hefur hlot- ið mikið lof fyrir störf sín og þá hafa bæði fjölskylda Birnu og lögreglan komið á framfæri þakklæti til al- mennings vegna þess stuðnings sem fólk hefur sýnt í verki. Fjölmiðlum hefur lögregla þakkað fyrir gott sam- starf. Forseti Íslands, Guðni Th. Jó- hannesson, sendi foreldrum Birnu innilegar samúðarkveðjur á mánu- dag. „Orð fá ekki linað hina miklu sorg en minningin um Birnu, þessa ungu og björtu stúlku, sem var tek- in frá okkur í blóma lífsins, mun ætíð lifa með íslenskri þjóð. Um leið vil ég koma á framfæri þökkum til björgunarsveitarfólks, lögreglu og annarra sem leituðu að Birnu og rannsökuðu hvarf hennar. Í samstöðu og einhug eigum við Ís- lendingar mikinn styrk.“ Þá hafa Grænlendingar sýnt Ís- lendingum mikinn samhug vegna atviksins en Birnu hefur víða verið minnst á landinu.- Engin ákvörðun um ákæru Ekki hefur komið fram með hvaða hætti andlát Birnu bar að en lögregla telur „yfirgnæfandi líkur“ á að henni hafi verið ráðinn bani. Ekki hefur heldur komið fram hvar henni var komið fyrir í sjó. Kryfja átti líkið á mánudag en ekkert hafði, þegar þetta var skrifað, komið fram um niðurstöðu krufn- ingarinnar. Ekki liggur fyrir hvort ákæra verður gefin út á hendur Möll- er og Nikolaj en lögregla hefur ekki lokið rannsókn. n „Orð fá ekki linað hina miklu sorg en minningin um Birnu, þessa ungu og björtu stúlku, sem var tekin frá okkur í blóma lífsins, mun ætíð lifa með íslenskri þjóð. Grunaðir Nikolaj Olsen (til vinstri) og Thomas Frederik Møller Olsen (til hægri), sæta gæsluvarð- haldi vegna hvarfs Birnu Brjáns- dóttur. Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 14. skipti þann 4. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dóm- nefndar er föstudagurinn 27. janúar. Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir: n Besta umfjöllun ársins 2016 n Viðtal ársins 2016 n Rannsóknarblaðamennska ársins 2016 n Blaðamannaverðlaun ársins 2016 Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ, www.press.is. Blaðamannaverðlaun 2016 Blaðamannafélag Íslands Gleraugnaverslunin Eyesland hefur opnað nýja og glæsilega verslun á Grandagarði 13. Mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Cocoa Mint sólgleraugu kr. 12.900,- Sjáðu muninn?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.