Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2017, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2017, Blaðsíða 12
Vikublað 24.–26. janúar 201712 Fréttir „Aldrei orðið fyrir leiðindum varðandi klæðnað eða hegðun“ n Sigurlaug býr í landi múslima n Segir fáfræðina hættulega É g átti von á því að við yrðum miklu heftari, en í raun geri ég nákvæmlega það sama hérna og heima. Ég hef nokkrum sinnum verið spurð að því hvernig ég komist á milli staða þar sem ég megi ekki keyra, sem er ekki rétt. Ég má fara í vínbúðirnar, kaupa svínakjöt og borða. Eini staðurinn þar sem við þurfum að hylja okk- ur er í moskunum,“ segir Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir, sem fyrir fimm árum fluttist búferlum ásamt fjöl- skyldu sinni til Barein, lítils eyjaríkis í Persaflóa, þar sem 70 prósent íbúa eru múslimar. Lauga kveðst fá ófáar spurningar um lífið í hinu framandi landi, spurningar sem séu litaðar af fyrirfram ákveðnum hugmyndum. Þannig er hún til að mynda spurð hvort það sé ekki stöðugt litið niður á hana og hvort henni finnist ekki öm- urlegt að þurfa alltaf að hylja sig. Fjölskyldan var búsett á Íslandi þegar eiginmaður Laugu, Mikael Lykkegaard Laursen, fékk spennandi atvinnutilboð í Barein, en hann starfar í dag sem flugmaður hjá DHL. Í samtali við blaðamann viðurkenn- ir Lauga að það hafi vissulega örlað á kvíða fyrir flutningum í framandi land, en einnig spennu. „Ég hafði ekki hugmynd um hvað við værum að koma okkur út í. Ég hafði varla heyrt minnst á Barein. Ég reyndi að finna Íslendinga hérna en það gekk ekki upp, svo að netið og google var það eina í stöðunni.“ 25 kílómetra brú tengir Barein- eyju við Sádi-Arabíu en að sögn Laugu eru löndin afar ólík. Þannig sé mun meira frjálsræði í Barein á með- an strangari og fastmótaðri reglur gildi í Sádi-Arabíu. Telur eyjan rúm- lega 1,4 milljónir íbúa og þar af er helmingur íbúa útlendingar. Alls 70 prósent innfæddra eru shía-múslim- ar og 30 prósent sunni-múslimar. „Við lásum okkur til um að þrátt fyrir að Barein sé frekar frjálst land að þá þyrftum við samt sem áður að hylja axlir og hné þegar við færum út úr húsi. En svo kom í ljós að það er bara bull!“ segir Lauga en hún lýsti einnig lífinu í Barein í færslu á Face- book nú á dögunum. „Fyrst þegar ég fór að skoða hvernig þetta væri í Barein þá las ég að um 70 prósent væru múslimar og að reglurnar væru semsagt að hylja hné og axlir. Ég fylgdi þessu, en fljót- lega eftir að við fluttum hingað hitt- um við yndislegt par sem eru bæði frá Barein og við sitjum á kaffihúsi og ræðum hvernig þetta sé. Ég spyr þau út í klæðnaðinn og þau hlæja að mér; segja mér að við séum í Barein og ég geti klætt mig eins og mig langar og geti gert það sem mig langar til.“ 23 kirkjur í Barein Í Barein ganga börn Laugu og Mika- el, sem eru 7 og 18 ára, í alþjóðlegan skóla, eldri dóttirin í bandarískan og yngri sonurinn í breskan. „Ég lít á það sem forréttindi að hafa þau í þessum skólum, þar sem þau kynnast fólki frá ýmsum löndum og þjóðernum. Í bekknum hans Sebastians eru 25 nemendur, þar af eru tveir sem eru ekki múslimar,“ segir Lauga og bæt- ir við að fjölmenningin geri það að verkum að börnin velji sér ekki vini út frá trú eða litarhætti. Þá sé haldið upp á jól, afmælisdag spámannsins, páska og svo framvegis og allir taka þátt.“ Eftir fimm ára dvöl í Barein kveðst Lauga ekki geta verið sammála and- stæðingum mosku á Íslandi, sem haldi því fram að engar kirkjur sé að finna í Mið-Austurlöndum. „Þar þurfa þeir aðeins að lesa sér betur til um. Það er eitt land hérna í Mið- Austurlöndum sem er ekki með með opinbera kirkju og það er Sádi-Ar- abía. Til dæmis eru 23 kirkjur hérna í Barein,“ segir Lauga og bætir við að fordómar Vesturlandabúa gagnvart múslimum séu oftar en ekki tilkomn- ir vegna neikvæðs fréttaflutnings. Langar ekki heim í bráð „Það er virkilega sorglegt að lesa „staðreyndir“ frá fólki heima sem þekkir ekki til hérna. Fæst af þessu fólki hefur komið til Mið-Austur- landa, heldur dæmir út frá neikvæð- um fréttum og áróðursefni af netinu. Múslimar hérna í Barein hata ISIS jafn mikið og Íslendingar, ISIS hef- ur ekkert að gera með múslima, ISIS eru hryðjuverkasamtök sem vilja bara athygli, hvernig sem þeir fá hana.“ Lauga segir jafnframt ótrúlegt að heyra Íslendinga halda því fram að ekki sé hægt að búa við fjölmenningu. „Ég er ennþá á lífi í landi múslima, hef aldrei, síðan ég flutti hingað, orðið fyrir einhverjum leiðindum frá múslimum varðandi minn klæðnað eða hegðun. Hefur þetta fólk einhvern tímann farið til eða búið í múslima- landi? Þekkir það til? Held ekki. Þetta er einmitt það sem er hættulegast og það er fáfræðin.“ Lauga kveðst svo sannarlega ekki sjá eftir flutningunum í dag, enda for- réttindi að fá að upplifa annan menn- ingarheim, og þá sérstaklega fyrir börnin. „Ég er ekki að segja að Barein sé fullkomið, langt í frá, en við finn- um ekki fyrir því og okkur líður öll- um vel hérna. Eins og staðan er núna langar okkur ekkert heim.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Mæðginin Guð- laug og Sebastian við skólaútskrift. Ljósmynd/ úr einkAsAfni moskan framandi Vinsælt er hjá gestum fjölskyldunnar að heimsækja moskuna. Ljósmynd/úr einkAsAfni. Líf og fjör Fjölskyldan hefur komið sér vel fyrir í Barein og hyggur ekki á flutninga heim í bráð. Ljósmynd/úr einkAsAfni. eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.