Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2017, Qupperneq 6
Vikublað 24.–26. janúar 20176 Fréttir
Þeir eru í varðhaldi
n Grunaðir um aðild að hvarfi Birnu n Lögreglan sögð hafa fundið skilríki um borð
M
ennirnir tveir, sem sitja
í gæsluvarðhaldi á Litla-
Hrauni vegna rann-
sóknarinnar á hvarfi og
andláti Birnu Brjáns-
dóttur, heita Möller Olsen og Niko-
laj Olsen. Þeir hafa réttarstöðu grun-
aðra í málinu, samkvæmt traustum
heimildum DV. Um er að ræða tvo
skipverja af togaranum Polar Nanoq,
sem lögregla hefur haft í sinni um-
sjá undanfarna daga. DV hefur ekki
upplýsingar um að þeir séu tengdir
fjölskylduböndum.
Fram hefur komið að annar
mannanna sé um þrítugt en hinn
um 25 ára aldurinn. Þeir eru frá
Grænlandi. DV hefur borist margar
ábendingar um hvaða skipverjar séu
grunaðir um að eiga aðild að hvarfi
Birnu en listi yfir skráða skipverja
gekk um tíma manna á milli á Face-
book.
Synjað um 4 vikna varðhald
Hæstiréttur staðfesti í gær, mánudag,
úrskurð héraðsdóms, sem dæmdi
mennina í tveggja vikna gæsluvarð-
hald vegna málsins. Lögregla fór
fram á að mennirnir sættu fjögurra
vikna gæsluvarðhaldi en þeirri kröfu
höfnuðu dómstólar.
Nærri 800 leitarmenn
Leitarmenn í þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar fundu Birnu látna í fjöru við
Selvogsvita um hádegisbil á sunnu-
dag, eftir umfangsmestu leit sem
Landsbjörg hefur skipulagt. Fram
hefur komið að um 775 sjálfboða-
liðar hafi komið að leitinni, þar af
hafi leitarmenn verið 685 talsins. Á
blaðamannafundi, sem lögreglan
efndi til í kjölfar þess að Birna fannst
á sunnudag, kom fram að líkfundur-
inn væri afrakstur þeirrar leitar, en
þyrlan hafði flogið strandlengjuna
frá Reykjavík, vestur með Reykjanesi
og þaðan með suðurströndinni að
Selvogsvita.
Lífsýni úr Birnu í bílnum
Fyrir liggur að lífsýni úr Birnu fund-
ust í Kia-Rio-bifreið sem mennirnir
höfðu til leigu á þeim tíma sem Birna
hvarf, snemma á laugardagsmorgun,
þann 14. janúar síðastliðinn.
Sjónir lögreglu beindust strax
við upphaf rannsóknarinnar að bif-
reiðinni, sem ók niður Laugaveg-
inn á sama tíma og Birna fór þar
um, en þaðan hafði hún gengið frá
skemmtistaðnum Húrra. Upptökur
úr myndavélum í miðbænum voru
ekki nógu skýrar til að hægt væri
að greina bílnúmer bifreiðarinnar í
myrkrinu. Bíllinn fannst hins vegar
eftir nokkra leit og greining lífsýna
þykir staðfesta að Birna var í um-
ræddum bíl.
Skilríki Birnu í togaranum?
Heimildir DV herma að skilríki
Birnu hafi fundist í togaranum Polar
Nanoq, en þeir sem fara fyrir rann-
sókninni hafa ekki viljað staðfesta
þær heimildir. Þá hafa þeir sem stýrt
hafa rannsókninni ekki viljað gefa
það upp hvort lífsýni úr Birnu hafi
fundist víðar en í bílnum, svo sem á
fatnaði sakborninga.
„Orð fá ekki linað hina miklu
sorg
Óhætt er að fullyrða að þjóðin hafi
staðið á öndinni vegna hvarfs Birnu
Brjánsdóttur. Lögregla hefur hlot-
ið mikið lof fyrir störf sín og þá hafa
bæði fjölskylda Birnu og lögreglan
komið á framfæri þakklæti til al-
mennings vegna þess stuðnings sem
fólk hefur sýnt í verki. Fjölmiðlum
hefur lögregla þakkað fyrir gott sam-
starf.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, sendi foreldrum Birnu
innilegar samúðarkveðjur á mánu-
dag. „Orð fá ekki linað hina miklu
sorg en minningin um Birnu, þessa
ungu og björtu stúlku, sem var tek-
in frá okkur í blóma lífsins, mun ætíð
lifa með íslenskri þjóð.
Um leið vil ég koma á framfæri
þökkum til björgunarsveitarfólks,
lögreglu og annarra sem leituðu að
Birnu og rannsökuðu hvarf hennar.
Í samstöðu og einhug eigum við Ís-
lendingar mikinn styrk.“
Þá hafa Grænlendingar sýnt Ís-
lendingum mikinn samhug vegna
atviksins en Birnu hefur víða verið
minnst á landinu.-
Engin ákvörðun um ákæru
Ekki hefur komið fram með hvaða
hætti andlát Birnu bar að en lögregla
telur „yfirgnæfandi líkur“ á að henni
hafi verið ráðinn bani. Ekki hefur
heldur komið fram hvar henni var
komið fyrir í sjó.
Kryfja átti líkið á mánudag en
ekkert hafði, þegar þetta var skrifað,
komið fram um niðurstöðu krufn-
ingarinnar. Ekki liggur fyrir hvort
ákæra verður gefin út á hendur Möll-
er og Nikolaj en lögregla hefur ekki
lokið rannsókn. n
„Orð fá ekki linað
hina miklu sorg
en minningin um Birnu,
þessa ungu og björtu
stúlku, sem var tekin
frá okkur í blóma lífsins,
mun ætíð lifa með
íslenskri þjóð.
Grunaðir
Nikolaj Olsen
(til vinstri)
og Thomas
Frederik
Møller
Olsen (til
hægri),
sæta
gæsluvarð-
haldi vegna
hvarfs
Birnu
Brjáns-
dóttur.
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands
verða veitt í 14. skipti þann 4. mars næstkomandi.
Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir
afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dóm-
nefndar er föstudagurinn 27. janúar.
Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt
í fjórum flokkum en þeir eru þessir:
n Besta umfjöllun ársins 2016
n Viðtal ársins 2016
n Rannsóknarblaðamennska ársins 2016
n Blaðamannaverðlaun ársins 2016
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla
23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni.
Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ, www.press.is.
Blaðamannaverðlaun 2016
Blaðamannafélag Íslands
Gleraugnaverslunin Eyesland hefur opnað nýja og glæsilega verslun
á Grandagarði 13. Mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði
– og þú færð frábæra þjónustu.
Verið velkomin!
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Cocoa Mint sólgleraugu
kr. 12.900,-
Sjáðu muninn?