Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2017, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2017, Page 14
Vikublað 24.–26. janúar 201714 Fréttir Erlent um afdrif mH370 N ú hefur leitinni að flugvél Malaysian Airlines, sem hvarf sporlaust fyrir þremur árum, verið hætt. Flug MH370 lagði af stað frá Kuala Lumpur þann 8. mars árið 2014 og var ætlað að lenda í Bejing, vélin hvarf hins vegar með dularfullum hætti. Enn hefur engin niðurstaða komið um afdrif flug- vélarinnar og þeirra 239 farþega sem voru um borð. Eftir áralangar rann- sóknir hafa ýmsar kenningar komið fram en þrátt fyrir það hefur leitinni nú verið opinberlega hætt. Munu örlög vélarinnar reynast ráðgáta um ókominn tíma eða getur ein af sam- særiskenningum sem fréttaveitan The Mirror setti fram skýrt málið? n 1 CIA er ábyrgt, heldur fyrrv. for-sætisráðherra Malasíu fram Hinn 88 ára gamli Mathathir Mohamad ásakaði leyniþjónustuna í Bandaríkjunum, CIA, um samsæri og skrifaði í bloggfærslu sinni: „Einhver er að fela eitthvað. Það er ósanngjarnt að MAS [Malaysian Airlines] eða Malasía beri sökina.“ Hann heldur því fram að leyniþjónustan hljóti að hafa vitað um staðsetn- ingu flugs MH370. Ef staðsetn- ingarkerfi vélarinnar hefur bilað hljóti annað- hvort fyrirtæk- ið Boeing eða stjórnvöld í Banda- ríkjunum að hafa fengið upplýsingar um það. Mohamad telur að ef um flugrán hafi verið að ræða hefði verið mögulegt að grípa inn í og koma í veg fyrir hvarf vélarinnar og skrifaði: „Augljóslega hefði Boeing og ákveðnar stofnanir burði til að yfirtaka farþegaflug líkt og MH370 var.“ 2 Flugrán Afgana? Rússneskir fjölmiðlar greindu frá því að flugvél MH370 hefði verið rænt af afgönskum hryðjuverkamönnum. Þar er haldið fram að óþekktur aðili um borð í vélinni hafi tekið yfir flugið og lent vélinni í Afganistan. Farþegunum 239 og áhöfninni var í kjölfarið haldið í gíslingu en búi núna í moldarkofum með nánast ekkert að borða. Þetta kom fram í rússnesku fréttaveitunni Moskovsky Komsomolets. Þar kom fram að heim- ildarmaður úr afganska hernum hafi greint fréttaveitunni frá því að flugvélinni hafi verið rænt. Þar er jafnframt tilgreint að vitað sé um nafnið á hryðjuverkamanninum sem á að hafa stjórnað fluginu, Hitch. 3 Sjálfsmorðstilraun? Getur verið að rekja megi hvarfið til sjálfs- morðs annars flugmannanna? Hingað til hafa engin sönnunargögn fundist um að flugmennirnir, þeir Zahare Ahmad Shah og Fariq Abdul Ha- mid, séu sekir um örlög flugsins. Shah hefur þó legið undir grun því fyrir flugið þann 8. mars 2014 virðist hann hafa hreinsað út öll framtíðarplön í dagbókinni sinni. Talsmaður Malaysia Airlines sagði því á móti að Shah hafi verið einstaklega ábyrgur flugmaður með afburðaferil að baki. Hann sagði jafnframt: „Við höfum enga ástæðu til að halda að eitthvað, einhverjar aðgerðir, hafi átt sér stað innan áhafnarinnar sem orsakaði hvarf flugvélarinnar.“ Lögreglan í Malasíu hefur einnig kannað hvort einhver farþeganna eða aðrir úr áhöfninni glímdu við geðræn vandamál og gætu hafa átt sök á máli, en án árangurs. 10 kenningar Blaðamannafundur með kínverskum ættingjum í janúar 2017 Þeir lýsa yfir sorg og reiði vegna þess að stjórnvöld Ástralíu, Malasíu og Kína tilkynntu um að rannsókn væri lokið þann 17. janúar 2017. Mynd EPA Heiða Vigdís Sigfúsdóttir heida@dv.is Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan og harðduglegan starfsmann. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku og markaðsmálum. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Umsóknir sendist á steinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.