Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 2
Helgarblað 17.–20. mars 20172 Fréttir
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Hilmar tapaði 106 þúsund
krónum á fimm mínútum
n Hvetur fólk til að fara varlega n Þetta getur komið fyrir alla
É
g var hvergi með PIN-númerið
nema í hausnum á mér,“ segir
Hilmar Kristensson í viðtali
við DV, en hann lenti í leiðin-
legu atviki fyrir skemmstu.
DV fjallaði í vikunni um þær ný-
stárlegu aðferðir sem þjófar nota
til að verða sér úti um skjótfenginn
gróða. Í greininni voru birt nýleg
dæmi frá London þar sem þjóf-
ar koma litlum myndavélum og af-
ritunarbúnaði fyrir á hraðbönkum.
Þannig tókst þeim að afrita kortin
og komast yfir PIN-númerin á þeim.
Tók af honum veskið
Atvikið sem Hilmar lenti í átti sér
stað í desember í Kaupmannahöfn
þegar hann var á aðallestarstöð-
inni í borginni. Hilmar var á leið
til Glostrup og keypti hann miða í
sjálfsala á lestarstöðinni.
„Ég lenti í einhverju basli með
sjálfsalann og fór í þann næsta þar
sem ég gat keypt miða,“ segir Hilm-
ar sem þurfti að slá inn PIN-núm-
er. Að svo búnu gekk hann niður
og beið eftir lestinni í stutta stund.
Þegar kom að því að ganga inn í
lestina veitti Hilmar því athygli að
nokkrir menn ruddust fram fyrir
hann.
„Svo sneru þeir við og komu aft-
ur,“ segir Hilmar og bætir við að þá
virðist einum úr hópnum hafa tek-
ist að ná af honum veskinu. Þegar
kom að því að framvísa miðanum
í lestinni áttaði Hilmar sig á því að
veskið var horfið eins og miðarnir í
lestina.
Kortinu lokað strax
„Ég hringdi strax í bankann og
kortinu var lokað,“ segir Hilmar
og bætir við að líklega hafi um
fimm mínútur liðið frá þjófnaðin-
um þar til hann uppgötvaðist. En á
þessum stutta tíma tókst þjófunum
að taka um 106 þúsund krónur út
af kortinu, eða tvö þúsund krónur
danskar í þrjú skipti.
„Það er jafnvel haldið að þeir
hafi verið með myndavél einhvers
staðar,“ segir Hilmar og bætir við að
til marks um það hafi hann hvergi
verið með PIN-númerið nema í
kollinum. Einnig er þekkt að þjóf-
ar fylgist með þegar PIN-númerið
er slegið inn, steinsnar frá viðkom-
andi án þess að mikið beri á. Eins og
dv.is greindi frá eru þjófar í auknum
mæli farnir að setja myndavélabún-
að á hraðbanka. Lundúnalögreglan
hefur fengið nokkur slík dæmi inn á
borð til sín undanfarna mánuði.
Algjörir fagmenn
Hilmar segir að þjófarnir hafi reynt að
ná enn hærri upphæð af kortinu um
það leyti sem hann hringdi í bankann
til að láta loka kortinu. „Þeir reyndu
að taka 20 þúsund krónur danskar af
kortinu þegar ég var að tala við starfs-
mann bankans. Þetta eru algjörir fag-
menn,“ segir Hilmar sem hvetur fólk
til að fara varlega – þjófar sem þessir
hlífi engum. Hilmar segist hafa tilkynnt
málið til dönsku lögreglunnar en lítið
komið út úr því. „Ég hitti lögreglumann
sem sagði að það þýddi ekkert að spá í
þetta.“ Þá hafi hann þurft að bera fjár-
hagslegt tjón sjálfur þar sem þjófarnir
notuðu PIN-númer kortsins. n
Hafðu þetta
í huga
Á vef Samtaka fjármálafyrirtækja má
finna öryggisreglur sem gott er að hafa
í huga. Þetta á til dæmis við þegar
peningar eru teknir út úr hraðbönkum,
notast er við greiðslukort í verslunum
eða í sjálfsölum.
1 Vertu á varðbergi gagnvart grunsamlegri hegðun ókunnugra í
grennd við hraðbankann.
2 Ef þú verður var við grunsamlega hegðun hættu við aðgerðir í
hraðbankanum og notaðu hraðbankann
seinna.
3 Legðu PIN-númerið þitt vel á minnið og ekki bera á þér
minnisblöð þar sem PIN-númerið er
skrifað niður. Ekki láta neinn fá
PIN-númerið þitt (hvorki ókunnuga,
bankastarfsmenn, lögreglu o.s.frv.).
Öryggi PIN-númersins er á ábyrgð
korthafa.
4 Vertu á varðbergi gagnvart einstaklingum sem eru að reyna
að sjá innslátt PIN-númers við
hraðbanka og gættu þess að enginn geti
séð innslátt PIN-númersins. Settu aðra
hönd þína yfir takkaborðið og notaðu
sem skjöld fyrir hina höndina sem slær
inn PIN-númerið.
5 Notaðu líkama þinn til að byrgja ókunnugum sýn þegar þú slærð
inn PIN-númerið.
6 Tilkynntu umsvifalaust þjónustu-veri banka, sparisjóðs eða
kortafyrirtækis um stolin eða týnd kort.
Tók enga stund Aðeins
nokkrar mínútur liðu þar
til þjófarnir náðu rúmum
100 þúsund krónum af
kortinu hans.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
N
eysla á Íbúprófeni tengist
aukinni hættu á hjartastoppi.
Þetta er niðurstaða nýrrar
rannsóknar sem Gunnar
H. Gíslason, prófessor við Kaup-
mannahafnarháskóla, stendur að.
Hann er þeirrar skoðunar að hætta
eigi að selja lyfið í lausasölu, en ekki
sé raunhæft að banna það með öllu.
RÚV hefur eftir Gunnari að skoð-
aðar hafi verið 29 þúsund sjúkra-
skýrslur sjúklinga í Danmörku,
sjúklinga sem fengu hjartastopp á
tímabilinu 2009 til 2013. Þegar lyfja-
notkun fólksins var skoðuð kom í
ljós að 31 prósent meiri líkur voru
á því að viðkomandi hafi tekið íbú-
prófen áður en hjartað stoppaði.
Hann segir að lengi hafi verið vit-
að um aukaverkanir bólgueyðandi
gigtarlyfja á borð við Íbúprófen og
Voltaren. „Þau hafa áhrif á hjarta
og æðakerfið og líka á nýrun. Þessi
rannsókn sem nú var birt, er hins
vegar sú fyrsta þar sem sýnt er fram
á aukna áhættu á hjartastoppi hjá
þeim sem taka þessi lyf. Ef fólk er
með undirliggjandi vandamál sem
tengjast hjarta og æðakerfi, þá er
áhættan auðvitað enn meiri,“ hefur
RÚV eftir Gunnari. n
baldur@dv.is
Íslenskur prófessor vill taka lyfið úr lausasölu
IbúfeN teNgt
Hjartaáföllum
Íbúfen Gunnar
segir ekki raunhæft
að banna lyfið.
Óttarr gegn
kynsjúkdómum
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra
hefur að undirlagi sóttvarnalækn-
is ákveðið að skipa starfshóp til að
stemma stigu við útbreiðslu kyn-
sjúkdóma hér á landi. Þetta kemur
fram á vef velferðarráðuneytisins.
Hópurinn á að setja fram tillög-
ur um aðgerðir til að bregðast við
aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma á
landinu. Tíðni kynsjúkdóma hefur
aukist mikið undanfarin ár, svo
sem á sárasótt, lekandi og HIV/
alnæmi. Sambærileg þróun hafi
orðið í öðrum vestrænum löndum.
Brýnt sé að snúa við þróuninni og
grípa til aðgerða og aukins sam-
ráðs, svo sem við heilbrigðiskerfið
og skólakerfið.
Hópinn skipa Þórólfur Guðna-
son sóttvarnalæknir, sem er for-
maður hópsins, Már Kristjánsson,
yfirlæknir smitsjúkdómadeildar
LSH, Baldur Tumi Baldursson,
yfir læknir húð- og kynsjúkdóma-
deildar LSH, Elísabet Reykdal Jó-
hannesdóttir, húð- og kynsjúk-
dómalæknir, fulltrúi sóttvarnaráðs,
Ragnhildur Sif Hafstein, fulltrúi
velferðarráðuneytisins og starfs-
maður starfshópsins.
mannbjörg
úti fyrir rifi
Stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar barst klukkan 13.05 á
fimmtudag neyðarkall frá báti
með einum manni um borð.
Báturinn var staddur tvær sjó-
mílur norðvestur af Rifi þegar
leki kom að honum.
Í tilkynningu sem Land-
helgisgæslan sendi frá sér
kemur fram að bátur sem var í
grenndinni hafi fljótlega kom-
ið á vettvang. Þá hafi björg-
unarskipið Björg á Rifi verið
kallað til, svo og þyrla Land-
helgisgæslunnar.
Skipverjinn komst um borð
í fyrrnefndan bát svo þyrlunni
var snúið við.