Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 4
Helgarblað 17.–20. mars 20174 Fréttir
Leggja fram sömu þing-
málin aftur og aftur
n Yfir helmingur þingmála endurfluttur n Þingkona Pírata segir vinnulagið óþolandi tímasóun
A
f 49 lagafrumvörpum sem
lögð hafa verið fram á Al-
þingi frá því ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks, Viðreisn-
ar og Bjartrar framtíðar tók
við völdum hafa 30 verið flutt áður.
Á sama tíma hafa verið lagðar fram
40 þingsályktunartillögur. Þar af hafa
20 verið fluttar áður á fyrri þingum.
Þingkona Pírata segir þetta vinnulag
óþolandi tímasóun og ófaglegt.
60 prósent frumvarpa
endurflutt
Af þeim 30 frumvörpum sem lögð
hafa verið fram að nýju eru fjögur
endurflutt af ráðherrum. Hin 26
eru svonefnd þingmannamál og af
þeim eru 19 lögð fram af þingmönn-
um stjórnarandstöðunnar en sjö af
stjórnarþingmönnum. Þarna má
sjá nokkur býsna kunnugleg frum-
vörp, til að mynda frumvarp um
afnám einkaréttar ríkisins á áfeng-
issölu sem Teitur Björn Einarsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er
fyrsti flutningsmaður að. Það mál
hefur verið lagt fram áður í tvígang
en ekki gengið til atkvæða. Þá hefur
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona
Framsóknarflokksins, lagt fram
frumvarp um ætlað samþykki við
líffæragjöf. Frumvarp sama efnis
hefur verið lagt fram í tvígang og
sömuleiðis hafa tvívegis verið lagð-
ar fram þingsályktunartillögur þessa
efnis. Ekkert þessara þingmála var
afgreitt. Svandís Svavarsdóttir flytur
nú í fjórða sinn frumvarp um textun
myndefnis í fjölmiðlaveitum en það
mál hefur aldrei orðið útrætt á fyrri
þingum.
Tillaga lögð fram í fimmta skipti
Ein þingsályktunartillaga er nú
endurflutt af ráðherra, umhverf-
is- og auðlindaráðherra leggur á
nýjan leik fram rammaáætlun en
málið vakti gríðarharðar deilur á
síðasta þingi og varð ekki útrætt.
Stjórnarandstöðuþingmenn hafa
lagt fram á nýjan leik fimmtán
þingsályktunar tillögur og stjórnar-
þingmenn endurflytja fjórar slíkar.
Framsóknarþingmaðurinn Willum
Þór Þórsson leggur þannig fram í
þriðja sinn tillögu um mótun klasa-
stefnu í atvinnulífinu. Vilhjálmur
Árnason er þá fyrsti flutningsmað-
ur þingsályktunartillögu um milli-
landaflug um Hornafjarðarflugvöll
og er það í fimmta sinn sem sú til-
laga er lögð fram.
Margbúið að ræða mál
Umrædd þingmál sem eru nú endur-
flutt hafa líkt og sjá má hér að fram-
an sum hver ítrekað verið lögð fram
áður. Mörg þeirra hafa því fengið ít-
arlega umfjöllun í nefndum þingsins
og verið til umræðu í þingsal æ ofan
í æ, án þess að nokkrar breytingar
sem heitið geta hafi verið gerðar á
þeim. Sem dæmi má nefna að Svan-
dís Svavarsdóttir, þingkona Vinstri
grænna, hefur nú í fjórða sinn lagt
fram þingsályktunartillögu um skip-
un starfshóps til að endurbæta lög-
gjöf um vernd, velferð og veiðar
villtra fugla og spendýra. Með til-
lögunni fylgir greinargerð og sér-
staklega er tekið fram að hún hafi
fylgt tillögunni óbreytt frá því hún
var fyrst lögð fram.
Þrátt fyrir það sem að framan er
rakið hafa umrædd mál ekki kom-
ið til atkvæðagreiðslu heldur sofnað
í nefndum. Þó sum málanna séu
vissulega átakamál er rétt eins al-
gengt að um sé að ræða mál sem ekki
ríkja um verulegar pólitískar deilur
og flutningsmenn málanna koma úr
fjölda flokka.
Lengi verið rætt um breytingar
Ítrekað hefur verið til umræðu að
breyta lögum þannig að þingmál lifi
milli löggjafarþinga en eins og stað-
an er í dag þá falla þau dauð hafi ekki
tekist að klára þau fyrir þinglok. Slík
breyting var meðal annars til um-
ræðu á síðasta kjörtímabili í
vinnu er laut að breyting-
um á stjórnarskránni. Þær
breytingar náðu hins
vegar ekki fram að ganga.
Birgitta Jónsdóttir, þing-
kona Pírata, hefur nú lagt
fram frumvarp þess efn-
is að þingmál skuli lifa milli
löggjafarþinga. Þess má til
gamans geta að það frumvarp er
einnig endurflutt.
Í DV var á dögunum fjallað um
frumvarp Birgittu og vísað til álits
tveggja fyrrverandi forseta Alþingis,
sem báðir tóku vel í breytinguna sem
frumvarpið fæli í sér. Hins vegar töldu
þeir að vafi léki á að hægt væri að
breyta þessum vinnubrögðum nema
með stjórnarskrárbreytingu. Þessu
segist Birgitta vera ósammála og telur
ekkert því til fyrirstöðu að klára mál-
ið. „Það á bara að láta reyna á málið.“
„Verður sjálfsagt svona löngu
eftir að ég er dauð“
Birgitta segir að þau vinnubrögð
sem nú tíðkist séu óþolandi fyr-
ir þingið, en ekki síður fyrir
þá aðila sem kallað sé eft-
ir umsögnum um þing-
mál frá. Að endurtek-
ið þurfi að skila álitum
um sömu mál sé ótækt.
Spurð hvort hún telji
líklegt að þetta frum-
varp fái nú afgreiðslu
segist hún svartsýn á það,
í meira lagi. „Mér finnst ólík-
legt að þessi ríkisstjórn bættra vinnu-
bragða sé eitthvað öðruvísi en aðrar
ríkisstjórnir sem á undan hafa geng-
ið. Þetta mun líklega ekkert breytast,
þetta verður sjálfsagt svona löngu eft-
ir að ég er dauð.“ n
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
„Þetta mun
líklega ekkert
breytast, þetta verður
sjálfsagt svona löngu
eftir að ég er dauð.
Tímasóun Þingmál eru lögð fram aftur og aftur á Alþingi sökum þess að þau lifa ekki milli löggjafarþinga. Mynd SigTRygguR ARi
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á
góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin!
Sportgleraugu
Red Bull sólgleraugu
kr. 14.950,-
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Í
slenska ríkið var á fimmtudag
dæmt til að greiða Guðmundi
R. Guðlaugssyni, sem sat í ellefu
daga í einangrun á lögreglustöð-
inni við Hverfisgötu í apríl 2010, tvær
milljónir króna í skaðabætur. Hæsti-
réttur kvað upp dóminn á fimmtu-
dag. Guðmundur var grunaður um
tengsl við fíkniefnasmygl sonar síns,
sem síðar var dæmdur í fangelsi fyrir
smyglið. Málið gegn Guðmundi var
hins vegar fellt niður.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
áður dæmt ríkið til að greiða mann-
inum 800 þúsund krónur í bætur.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar
að gæsluvarðhaldið hafi verið van-
virðandi og aðgerðirnar hafi ekki
aðeins valdið Guðmundi andleg-
um þjáningum heldur hafi umfang
þeirra verið langt úr hófi fram mið-
að við tilefnið. Þetta hafi orðið hon-
um til alvarlegs álitshnekkis, enda
hafi hann gegnt stjórnunarstöðu hjá
einkafyrirtæki á þessum tíma. Hæsti-
réttur segir að lögreglan hafi haldið
honum að ósekju í átta daga. Lög-
reglan hefði með einföldu forprófi
getað upplýst um þátt mannsins.
„Við mat á fjárhæð bóta ber fyrst
og fremst að líta til þess hvers eðl-
is hinar bótaskyldu aðgerðir voru og
hve lengi þær stóðu,“ segir í dómnum.
baldur@dv.is
Bætur fyrir gæsluvarðhald
n Ríkið skaðabótaskylt n Lögreglan braut meðalhóf