Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Page 4
Helgarblað 17.–20. mars 20174 Fréttir Leggja fram sömu þing- málin aftur og aftur n Yfir helmingur þingmála endurfluttur n Þingkona Pírata segir vinnulagið óþolandi tímasóun A f 49 lagafrumvörpum sem lögð hafa verið fram á Al- þingi frá því ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisn- ar og Bjartrar framtíðar tók við völdum hafa 30 verið flutt áður. Á sama tíma hafa verið lagðar fram 40 þingsályktunartillögur. Þar af hafa 20 verið fluttar áður á fyrri þingum. Þingkona Pírata segir þetta vinnulag óþolandi tímasóun og ófaglegt. 60 prósent frumvarpa endurflutt Af þeim 30 frumvörpum sem lögð hafa verið fram að nýju eru fjögur endurflutt af ráðherrum. Hin 26 eru svonefnd þingmannamál og af þeim eru 19 lögð fram af þingmönn- um stjórnarandstöðunnar en sjö af stjórnarþingmönnum. Þarna má sjá nokkur býsna kunnugleg frum- vörp, til að mynda frumvarp um afnám einkaréttar ríkisins á áfeng- issölu sem Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður að. Það mál hefur verið lagt fram áður í tvígang en ekki gengið til atkvæða. Þá hefur Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, lagt fram frumvarp um ætlað samþykki við líffæragjöf. Frumvarp sama efnis hefur verið lagt fram í tvígang og sömuleiðis hafa tvívegis verið lagð- ar fram þingsályktunartillögur þessa efnis. Ekkert þessara þingmála var afgreitt. Svandís Svavarsdóttir flytur nú í fjórða sinn frumvarp um textun myndefnis í fjölmiðlaveitum en það mál hefur aldrei orðið útrætt á fyrri þingum. Tillaga lögð fram í fimmta skipti Ein þingsályktunartillaga er nú endurflutt af ráðherra, umhverf- is- og auðlindaráðherra leggur á nýjan leik fram rammaáætlun en málið vakti gríðarharðar deilur á síðasta þingi og varð ekki útrætt. Stjórnarandstöðuþingmenn hafa lagt fram á nýjan leik fimmtán þingsályktunar tillögur og stjórnar- þingmenn endurflytja fjórar slíkar. Framsóknarþingmaðurinn Willum Þór Þórsson leggur þannig fram í þriðja sinn tillögu um mótun klasa- stefnu í atvinnulífinu. Vilhjálmur Árnason er þá fyrsti flutningsmað- ur þingsályktunartillögu um milli- landaflug um Hornafjarðarflugvöll og er það í fimmta sinn sem sú til- laga er lögð fram. Margbúið að ræða mál Umrædd þingmál sem eru nú endur- flutt hafa líkt og sjá má hér að fram- an sum hver ítrekað verið lögð fram áður. Mörg þeirra hafa því fengið ít- arlega umfjöllun í nefndum þingsins og verið til umræðu í þingsal æ ofan í æ, án þess að nokkrar breytingar sem heitið geta hafi verið gerðar á þeim. Sem dæmi má nefna að Svan- dís Svavarsdóttir, þingkona Vinstri grænna, hefur nú í fjórða sinn lagt fram þingsályktunartillögu um skip- un starfshóps til að endurbæta lög- gjöf um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra. Með til- lögunni fylgir greinargerð og sér- staklega er tekið fram að hún hafi fylgt tillögunni óbreytt frá því hún var fyrst lögð fram. Þrátt fyrir það sem að framan er rakið hafa umrædd mál ekki kom- ið til atkvæðagreiðslu heldur sofnað í nefndum. Þó sum málanna séu vissulega átakamál er rétt eins al- gengt að um sé að ræða mál sem ekki ríkja um verulegar pólitískar deilur og flutningsmenn málanna koma úr fjölda flokka. Lengi verið rætt um breytingar Ítrekað hefur verið til umræðu að breyta lögum þannig að þingmál lifi milli löggjafarþinga en eins og stað- an er í dag þá falla þau dauð hafi ekki tekist að klára þau fyrir þinglok. Slík breyting var meðal annars til um- ræðu á síðasta kjörtímabili í vinnu er laut að breyting- um á stjórnarskránni. Þær breytingar náðu hins vegar ekki fram að ganga. Birgitta Jónsdóttir, þing- kona Pírata, hefur nú lagt fram frumvarp þess efn- is að þingmál skuli lifa milli löggjafarþinga. Þess má til gamans geta að það frumvarp er einnig endurflutt. Í DV var á dögunum fjallað um frumvarp Birgittu og vísað til álits tveggja fyrrverandi forseta Alþingis, sem báðir tóku vel í breytinguna sem frumvarpið fæli í sér. Hins vegar töldu þeir að vafi léki á að hægt væri að breyta þessum vinnubrögðum nema með stjórnarskrárbreytingu. Þessu segist Birgitta vera ósammála og telur ekkert því til fyrirstöðu að klára mál- ið. „Það á bara að láta reyna á málið.“ „Verður sjálfsagt svona löngu eftir að ég er dauð“ Birgitta segir að þau vinnubrögð sem nú tíðkist séu óþolandi fyr- ir þingið, en ekki síður fyrir þá aðila sem kallað sé eft- ir umsögnum um þing- mál frá. Að endurtek- ið þurfi að skila álitum um sömu mál sé ótækt. Spurð hvort hún telji líklegt að þetta frum- varp fái nú afgreiðslu segist hún svartsýn á það, í meira lagi. „Mér finnst ólík- legt að þessi ríkisstjórn bættra vinnu- bragða sé eitthvað öðruvísi en aðrar ríkisstjórnir sem á undan hafa geng- ið. Þetta mun líklega ekkert breytast, þetta verður sjálfsagt svona löngu eft- ir að ég er dauð.“ n Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is „Þetta mun líklega ekkert breytast, þetta verður sjálfsagt svona löngu eftir að ég er dauð. Tímasóun Þingmál eru lögð fram aftur og aftur á Alþingi sökum þess að þau lifa ekki milli löggjafarþinga. Mynd SigTRygguR ARi Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Sportgleraugu Red Bull sólgleraugu kr. 14.950,- Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Í slenska ríkið var á fimmtudag dæmt til að greiða Guðmundi R. Guðlaugssyni, sem sat í ellefu daga í einangrun á lögreglustöð- inni við Hverfisgötu í apríl 2010, tvær milljónir króna í skaðabætur. Hæsti- réttur kvað upp dóminn á fimmtu- dag. Guðmundur var grunaður um tengsl við fíkniefnasmygl sonar síns, sem síðar var dæmdur í fangelsi fyrir smyglið. Málið gegn Guðmundi var hins vegar fellt niður. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt ríkið til að greiða mann- inum 800 þúsund krónur í bætur. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að gæsluvarðhaldið hafi verið van- virðandi og aðgerðirnar hafi ekki aðeins valdið Guðmundi andleg- um þjáningum heldur hafi umfang þeirra verið langt úr hófi fram mið- að við tilefnið. Þetta hafi orðið hon- um til alvarlegs álitshnekkis, enda hafi hann gegnt stjórnunarstöðu hjá einkafyrirtæki á þessum tíma. Hæsti- réttur segir að lögreglan hafi haldið honum að ósekju í átta daga. Lög- reglan hefði með einföldu forprófi getað upplýst um þátt mannsins. „Við mat á fjárhæð bóta ber fyrst og fremst að líta til þess hvers eðl- is hinar bótaskyldu aðgerðir voru og hve lengi þær stóðu,“ segir í dómnum. baldur@dv.is Bætur fyrir gæsluvarðhald n Ríkið skaðabótaskylt n Lögreglan braut meðalhóf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.