Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Síða 8
Helgarblað 17.–20. mars 20178 Fréttir
Á
dögunum var íbúum í þjón
ustuíbúðum aldraðra við
Seljahlíð tilkynnt að leigu
samningi þeirra yrði sagt
að upp. Það var fyrsta verk
Félagsbústaða hf. sem keyptu hús
ið af Reykjavíkurborg um áramótin,
en þess ber að geta að Reykjavíkur
borg á fyrirtækið. Eftir að upp
sagnarfresturinn, sem er eitt ár, er
liðinn munu íbúar þurfa að skrifa
undir nýja leigusamninga við Fé
lagsbústaði. Samkvæmt þeim mun
húsaleiga þeirra hækka um 80–125
prósent.
Í kynningu sem Félagsbústaðir
og velferðarsvið Reykjavíkurborgar
héldu fyrir íbúa er mikil áhersla
lögð á að íbúar muni eiga rétt á
húsaleigubótum eftir að hinn nýi
leigusamningur tekur gildi. „Það
gengur einfaldlega ekki upp. Í fyrsta
lagi þá er ekkert „séreldhús eða sér
eldunaraðstaða“ í þjónustuíbúðun
um og því er ekki hægt að sækja
um húsaleigubætur út á þær. Í öðru
lagi þá eiga flestir sem hér búa smá
varasjóð og það gerir að verkum að
húsaleigubæturnar eru útilokaðar.
Stefnan virðist vera sú að taka af
manni hverja einustu krónu. Þessi
leiguhækkun er til skammar og
hvert sem ég hef leitað þá hef ég rek
ist á vegg í kerfinu. Það virðist mega
níðast á eldri borgurum út í eitt. Við
erum gleymd,“ segir Ingibjörg S.
Finnbogadóttir, 81 árs, sem dvelur í
þjónustuíbúð í Seljahlíð í Breiðholti.
Ósáttir íbúar
Í Seljahlíð eru hjúkrunarheimili og
þjónustuíbúðir, bæði fyrir einstak
linga og hjón. Ingibjörg býr í þjón
ustuíbúð fyrir hjón en þar bjó hún
ásamt eiginmanni sínum, Ingólfi
Kristjánssyni. Ingólfur féll nýlega
frá og nú býr hún ein íbúðinni. „Í
dag borga ég 58 þúsund krónur í
leigu fyrir íbúðina en eftir hækkun
ina mun ég þurfa að borga 105.000
krónur í leigu. Það er fyrir utan fjöl
mörg önnur gjöld sem gera að verk
um að ég næ ekki endum saman,“
segir Ingibjörg, sem upplýsir blaða
mann um að mánaðarlegar tekjur
hennar frá Tryggingastofnun séu
230.000.
Í dag eru heildarútgjöld hennar
vegna húsnæðisins um 110 þúsund
krónur á mánuði en eftir leiguhækk
unina verða útgjöldin um 158 þús
und krónur. Að auki er ráðgert að
íbúar byrji að greiða sérstaklega
fyrir rafmagn og hita auk þess að
greiða í hússjóð. „Íbúar hérna eru
afar ósáttir við þessar breytingar en
það er eins og borgaryfirvöld séu
fullkomlega skeytingarlaus um eldri
borgara. Við eigum ekki rödd og því
skiptir ekki máli hvernig komið er
fram við okkur,“ segir Ingibjörg.
„Hvergi hægt að fá skýr svör“
Hún hefur sjálf barist um á hæl
og hnakka vegna fyrirhugaðra
breytinga en er ekki hrifin af
framkomu embættismanna. „Hvert
sem ég leita þá er hvergi hægt að fá
skýr svör. Ég er búin að hafa sam
band við velferðar ráð, velferðar
svið og núna síðast umboðsmann
borgarbúa,“ segir Ingibjörg. Sem
dæmi nefnir hún þjónustugjöld
upp á 22.820 krónur sem hún þarf
að borga á mánuði. „Ég hef óskað
eftir sundurliðun á þessum gjöld
um en það virðist ekki vera hægt. Ég
fæ það bara uppgefið að innifalin sé
sólarhringsvarsla, læknisþjónusta,
húsvarsla, þrif á lóð og sameign,
stjórnunar og umsýslukostnað
ur og aðgangur að sjónvarpi í setu
stofu. Við lögðum reyndar í púkk og
keyptum það sjálf,“ segir Ingibjörg
og hlær.
Pirrar sig bara á fjármálunum
Hún lagðist því í rannsóknarvinnu
og komst að því að þjónustugjöld í
öðrum þjónustuíbúðum í Reykjavík
eru mun lægri eða 11.900 krónur.
„Þar virðist allt það sama vera inni
falið nema lækniskostnaðurinn. Við
erum því að borga um 11.000 krónur
á mánuði fyrir lækni sem heimsækir
okkur tvisvar í viku í klukkutíma í
senn. Þá skiptir engu máli hvort við
nýtum þjónustuna eða ekki. Mér lík
ar þetta einfaldlega ekki. Ég vil borga
þegar ég þarf að fara til læknis en ekki
að borgin hirði af mér fasta upphæð
án þess að ég hafi eitthvað um það að
segja,“ segir Ingibjörg ákveðin.
Að lokum vill Ingibjörg taka skýrt
fram að sér líki afar vel við Seljahlíð.
„Þetta er dásamlegur staður og hér
fer afar vel um mann, sérstaklega
á sumrin því þá er svo mikil veður
sæld hérna. Síðan er þjónustan al
veg til fyrirmyndar. Það eru bara
fjármálin sem fara í taugarnar á
mér,“ segir Ingibjörg.
Ástæðan var sérhæfing
Í skriflegu svari frá Félagsbústöðum
kemur fram að markmiðið með
kaupunum á Seljahlíð hafi verið
það að koma rekstrinum og
eignarhaldinu yfir í félag sem sérhæft
er í eignarhaldi, rekstri og útleigu á
íbúðarhúsnæði, sértækum búsetu
úrræðum og þjónustuíbúðum.
„Stefna Félagsbústaða hvað Selja
hlíð varðar er að sinna uppsöfnuðu
viðhaldi á húsinu á næstu fimm árum
og fella að því loknu viðhald hússins
inn í viðhaldskerfi félagsins,“ segir
í svari frá Auðuni Frey Ingvarssyni,
framkvæmdastjóra Félagsbústaða hf.
Þegar blaðið fór í prentun hafði
ekki hafði borist svar við spurningu
DV um hvort þjónustuíbúðirnar í
Seljahlíð uppfylltu þau skilyrði sem
kveðið er á um varðandi húsnæðis
bætur. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is Föst útgjöld
Ingibjargar
Fyrir hækkun:
n Leiga – 58.214 kr.
n Þjónustgjald – 22.820 kr.
n Heimaþjónusta – 4.700 krónur
n Þvottur – 2.255 krónur
n Setustofa – 1.275 krónur
n Fæði (aðeins hádegismatur)
– 21.545 krónur
Samtals: 110.809 krónur
Eftir hækkunina mun heildarkostnaður
inn hækka í 157.595. Þá mun einnig bæt
ast við kostnaður vegna rafmagns og
hita, sem hingað til hefur verið innifalinn
í leigunni, auk sem tekið verður upp
viðhaldskerfi þannig að íbúar þurfa að
greiða í hússjóð. Ekki liggur fyrir hversu
háar upphæðir er um að ræða.
Ingibjörg S.
Finnboga-
dóttir Segir að
hækkanir Félags
bústaða hf. á
leigu í Seljahlíð
séu til skammar.
Mynd SIgtryggur ArI
Seljahlíð Í Seljahlíð eru hjúkrunarheimili og þjónustuíbúðir, alls 49 talsins, bæði fyrir einstaklinga og hjón. Mynd SIgtryggur ArI
„Við erum gleymd“
n Félagsbústaðir hækka leigu um 80–125 prósent í þjónustuíbúðum aldraðra í Seljahlíð
„Stefnan virðist vera
sú að taka af manni
hverja einustu krónu