Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 18
Helgarblað 17.–20. mars 201718 Fréttir Erlent Þrælað út á ökrunum og þvingaðar til kynlífs Rúmenskar landbúnaðarverkakonur í kynlífsþrælahaldi á Ítalíu R úmenskar konur sem stunda landbúnaðarstörf sem farandverkamenn á Sikiley sæta nauðgunum, barsmíðum og annarri misnotkun af hálfu vinnuveitenda sinna sem eru ítalskir bændur. Kon- urnar koma til Ítalíu, gjarnan í fylgd með eiginmönnum sínum, og starfa við jarðyrkju og grænmetisræktun. Rúmenía hefur verið hluti af sameiginlegum vinnumarkaði Evrópusambandsins síðan 2006. Þar af leiðandi njóta rúmenskir borg- arar ferða- og atvinnufrelsis innan sambandsins sem og á evrópska efnahagssvæðinu svo sem á Íslandi. Landbúnaður á Suður-Ítalíu hefur mikla þörf fyrir láglaunað vinnu- afl. Oftast er um að ræða fólk sem starfar undir löglegum lágmarks- launum en yfirvöld horfa fram hjá því vegna þess að án fólksins væri ekki hægt að stunda arðbæran land- búnað á þessum slóðum. Úr 36 í fimm þúsund Talið er að um 120 þúsund erlendir farandverkamenn starfi nú við þessa grein á Suður-Ítalíu. Rúm- enskum konum hefur fjölgað mjög mikið síðan 2006. Þá voru þær t.a.m. aðeins 36 í Ragusa-héraði á Sikiley en eru nú taldar vera yfir fimm þús- und talsins. Ragusa-hérað er þriðja stærsta grænmetisframleiðslusvæði Evrópu. Rúmenska verkafólkið hef- ur í mörgum tilvikum tekið yfir störf sem áður voru skipuð af ólögleg- um innflytjendum og flóttafólki frá Norður-Afríku þar sem bændur og gróðurhúsaeigendur óttast lög- sóknir ef þeir ráði slíkt fólk til starfa. Hótað atvinnumissi Nicoleta Bolos er ein þeirra rúm- ensku kvenna sem hafa leitað til Sikileyjar að vinnu. Í samtali við breska blaðið The Guardian lýs- ir hún því hvernig húsbóndi henn- ar misnotaði hana kynferðislega um nætur meðan eiginmaður hennar lá í öngviti utandyra eftir taumlausa drykkju. „Í fyrsta sinn sem þetta gerðist þá sagði maðurinn minn að ég yrði að gera þetta. Eigandi gróðurhússins sem við unnum í vildi sofa hjá mér og ef ég neitaði þá myndi hann ekki greiða okkur laun og við yrðum rekin af landareign hans. Ég hélt að mað- urinn minn væri búinn að missa vitið og þegar ég hafnaði þessu barði hann mig. Hann sagði að ég yrði að gera allt sem yfirmaður okkar skip- aði mér að gera. Að öðrum kosti yrð- um við atvinnulaus. Þegar vinnuveit- andi minn kom, ógnaði hann mér með byssu og hótaði að skjóta af mér hausinn reyndi ég að komast undan. Þegar hann hafði lokið sér af þá gekk hann bara í burtu.“ Engar undankomuleiðir Talið er að aðstæður og kjör rúm- enska farandverkafólksins sem vinn- ur landbúnaðarstörf á Suður- Ítalíu séu með þeim endemum að hér sé á ferðinni mannréttindahneyksli sem eigi eftir að vinda upp á sig. Ítölsku mannréttindasamtökin Proxyma áætla að rúmlega helmingur rúm- enskra kvenna sem starfar þarna í gróðurhúsum sé neyddur til að eiga í kynferðislegu sambandi við vinnu- veitendur sína. Nær allar starfi við skilyrði sem falli undir þrælkun og aðra misnotkun. Þetta séu um 7.500 konur. Konurnar eigi sér fáar undan- komuleiðir. Heima í Rúmeníu eigi þær börn og ættingja sem reiði sig á að þær sendi heim peninga af laun- um sínum. Í Rúmeníu ríkir víðast mikið atvinnuleysi. Lögreglumaður á Sikiley staðfest- ir þetta í samtali við The Guardian. „Þessar konur vinna sem þrælar á ökrunum og við vitum að þær eru þvingaðar til kynlífs með eigendum landsins eða gróðurhúsanna. Það er ekki auðvelt að rannsaka þessi mál eða koma í veg fyrir þetta því flestar konurnar eru of skelkaðar til að greina sjálfar frá þessu.“ Tíðar fóstureyðingar Ein afleiðing þessa er sú að fjöldi rúmenskra kvenna sem óska eftir fóstureyðingum er mjög mikill á Sikiley. Þær eru aðeins fjögur prósent af konum í Ragusa-héraðinu en samt er fimmta hver fóstureyðing þar gerð á konum frá Rúmeníu. Reynt hefur verið að fá ítölsk stjórnvöld til að rannsaka þessi mál en án árangurs. Ítalski þingmaðurinn Marisa Nicchi lagði fram tillögu um slíkt í ítalska þinginu árið 2015 en fékk engin við- brögð. Nú, tveimur árum síðar, hefur ekkert verið gert. n Opnunartilboð á viðgerðum og aukahlutum iP one í úrvali Erum flutt á Grensásveg 14 Allskyns aukahlutir Grensásvegur 14 s: 534 1400 Öll hulstur á 1.990 á meðan birgðir endast Erfiðisvinna Vinna við garðyrkju eða á akri er ekkert grín. Myndin er úr safni. Mynd 123rf.coM „Þegar vinnu­ veitandi minn kom, ógnaði hann mér með byssu og hótaði að skjóta af mér hausinn reyndi ég að komast undan. Þegar hann hafði lokið sér af þá gekk hann bara í burtu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.