Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Síða 18
Helgarblað 17.–20. mars 201718 Fréttir Erlent
Þrælað út á ökrunum
og þvingaðar til kynlífs
Rúmenskar landbúnaðarverkakonur í kynlífsþrælahaldi á Ítalíu
R
úmenskar konur sem
stunda landbúnaðarstörf
sem farandverkamenn á
Sikiley sæta nauðgunum,
barsmíðum og annarri
misnotkun af hálfu vinnuveitenda
sinna sem eru ítalskir bændur. Kon-
urnar koma til Ítalíu, gjarnan í fylgd
með eiginmönnum sínum, og starfa
við jarðyrkju og grænmetisræktun.
Rúmenía hefur verið hluti af
sameiginlegum vinnumarkaði
Evrópusambandsins síðan 2006. Þar
af leiðandi njóta rúmenskir borg-
arar ferða- og atvinnufrelsis innan
sambandsins sem og á evrópska
efnahagssvæðinu svo sem á Íslandi.
Landbúnaður á Suður-Ítalíu hefur
mikla þörf fyrir láglaunað vinnu-
afl. Oftast er um að ræða fólk sem
starfar undir löglegum lágmarks-
launum en yfirvöld horfa fram hjá
því vegna þess að án fólksins væri
ekki hægt að stunda arðbæran land-
búnað á þessum slóðum.
Úr 36 í fimm þúsund
Talið er að um 120 þúsund erlendir
farandverkamenn starfi nú við
þessa grein á Suður-Ítalíu. Rúm-
enskum konum hefur fjölgað mjög
mikið síðan 2006. Þá voru þær t.a.m.
aðeins 36 í Ragusa-héraði á Sikiley
en eru nú taldar vera yfir fimm þús-
und talsins. Ragusa-hérað er þriðja
stærsta grænmetisframleiðslusvæði
Evrópu. Rúmenska verkafólkið hef-
ur í mörgum tilvikum tekið yfir störf
sem áður voru skipuð af ólögleg-
um innflytjendum og flóttafólki
frá Norður-Afríku þar sem bændur
og gróðurhúsaeigendur óttast lög-
sóknir ef þeir ráði slíkt fólk til starfa.
Hótað atvinnumissi
Nicoleta Bolos er ein þeirra rúm-
ensku kvenna sem hafa leitað til
Sikileyjar að vinnu. Í samtali við
breska blaðið The Guardian lýs-
ir hún því hvernig húsbóndi henn-
ar misnotaði hana kynferðislega um
nætur meðan eiginmaður hennar
lá í öngviti utandyra eftir taumlausa
drykkju.
„Í fyrsta sinn sem þetta gerðist þá
sagði maðurinn minn að ég yrði að
gera þetta. Eigandi gróðurhússins
sem við unnum í vildi sofa hjá mér
og ef ég neitaði þá myndi hann ekki
greiða okkur laun og við yrðum rekin
af landareign hans. Ég hélt að mað-
urinn minn væri búinn að missa
vitið og þegar ég hafnaði þessu barði
hann mig. Hann sagði að ég yrði að
gera allt sem yfirmaður okkar skip-
aði mér að gera. Að öðrum kosti yrð-
um við atvinnulaus. Þegar vinnuveit-
andi minn kom, ógnaði hann mér
með byssu og hótaði að skjóta af mér
hausinn reyndi ég að komast undan.
Þegar hann hafði lokið sér af þá gekk
hann bara í burtu.“
Engar undankomuleiðir
Talið er að aðstæður og kjör rúm-
enska farandverkafólksins sem vinn-
ur landbúnaðarstörf á Suður- Ítalíu
séu með þeim endemum að hér sé á
ferðinni mannréttindahneyksli sem
eigi eftir að vinda upp á sig. Ítölsku
mannréttindasamtökin Proxyma
áætla að rúmlega helmingur rúm-
enskra kvenna sem starfar þarna í
gróðurhúsum sé neyddur til að eiga
í kynferðislegu sambandi við vinnu-
veitendur sína. Nær allar starfi við
skilyrði sem falli undir þrælkun og
aðra misnotkun. Þetta séu um 7.500
konur. Konurnar eigi sér fáar undan-
komuleiðir. Heima í Rúmeníu eigi
þær börn og ættingja sem reiði sig á
að þær sendi heim peninga af laun-
um sínum. Í Rúmeníu ríkir víðast
mikið atvinnuleysi.
Lögreglumaður á Sikiley staðfest-
ir þetta í samtali við The Guardian.
„Þessar konur vinna sem þrælar á
ökrunum og við vitum að þær eru
þvingaðar til kynlífs með eigendum
landsins eða gróðurhúsanna. Það er
ekki auðvelt að rannsaka þessi mál
eða koma í veg fyrir þetta því flestar
konurnar eru of skelkaðar til að
greina sjálfar frá þessu.“
Tíðar fóstureyðingar
Ein afleiðing þessa er sú að fjöldi
rúmenskra kvenna sem óska eftir
fóstureyðingum er mjög mikill á
Sikiley. Þær eru aðeins fjögur prósent
af konum í Ragusa-héraðinu en samt
er fimmta hver fóstureyðing þar gerð
á konum frá Rúmeníu. Reynt hefur
verið að fá ítölsk stjórnvöld til að
rannsaka þessi mál en án árangurs.
Ítalski þingmaðurinn Marisa Nicchi
lagði fram tillögu um slíkt í ítalska
þinginu árið 2015 en fékk engin við-
brögð. Nú, tveimur árum síðar, hefur
ekkert verið gert. n
Opnunartilboð á viðgerðum og aukahlutum
iP
one í úrvali
Erum flutt á Grensásveg 14
Allskyns
aukahlutir
Grensásvegur 14
s: 534 1400
Öll hulstur á 1.990 á meðan birgðir endast
Erfiðisvinna Vinna við garðyrkju eða á akri er ekkert grín. Myndin er úr safni. Mynd 123rf.coM „Þegar vinnu
veitandi minn kom,
ógnaði hann mér með
byssu og hótaði að skjóta
af mér hausinn reyndi ég
að komast undan. Þegar
hann hafði lokið sér af þá
gekk hann bara í burtu.