Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Síða 20
Helgarblað 17.–20. mars 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
20 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Einar Bollason um gjörðir systur sinnar. – Hringbraut
Að vísu deyfir tíminn
þetta
V
erðlaunin styrktu mig í trúnni
á það sem ég var að gera,“
segir Sjón í viðtali við DV í
dag þegar hann rifjar upp
þegar hann fékk í fyrsta sinn Menn
ingarverðlaun DV, fyrir Augu þín sáu
mig. Verðlaunin voru fyrsta opin
bera viðurkenningin sem hann fékk
fyrir ritstörf sín og því var þetta stór
stund á höfundarferli hans. Seinna
fékk Sjón Menningarverðlaun DV
fyrir Með titrandi tár og í ár hreppti
hann verðlaunin fyrir Ég er sofandi
hurð. Hann hefur því hreppt Menn
ingarverðlaun DV fyrir allar þrjár
bækurnar í þríleiknum Codex 1962.
Sigur hans er sögulegur.
Í dag er Sjón rithöfundur sem skrif
ar fyrir heiminn. Hann er þaulvanur
að vinna til verðlauna og viðurkenn
inga. Hið sama má sannarlega segja
um Kristbjörgu Kjeld sem hefur í ára
tugi verið meðal dáðustu listamanna
þjóðarinnar. Gleðin sem braust út
meðal gesta þegar tilkynnt var um
heiðursverðlaun hennar er lýsandi
fyrir þá virðingu sem er borin fyrir
þessari miklu listakonu og væntum
þykjunnar sem ríkir í hennar garð.
Sjón var erlendis þegar verðlaun
in voru veitt en þakkarræða hans,
sem eiginkona hans Ásgerður Júníus
dóttir flutti, var einkar falleg, eins og
ræða Kristbjargar Kjeld, sem rifjaði
upp þegar hún fékk Menningarverð
laun DV, fyrir tuttugu og einu ári.
Stockfishkvikmyndahátíðin
hlaut verðlaun í flokki kvikmynda.
Í þakkar ræðu sagði Marsibil S.
Sæmundar dóttir, framkvæmdastjóri
hátíðarinnar, að daginn áður hefðu
þau verið að velta því fyrir sér hvort
þau hefðu bolmagn til að halda hátíð
inni áfram. Nú hömpuðu þau Menn
ingarverðlaunum DV í kvikmyndum
og það hvetti þau til áframhaldandi
dáða. Verðlaunin hafa því styrkt að
standendurna í trúnni á það sem
þeir eru að gera, rétt eins og þau
voru hvetjandi fyrir hinn unga Sjón á
sínum tíma.
Endalaust má velta fyrir sér vægi
og tilgangi menningarverðlauna.
Víst er að þau eru hvatning fyrir ungt
listafólk og hljóta um leið að gleðja
eldri og reyndari listamenn. Slík
verðlaun eru einnig til þess fallin að
vekja athygli almennings á því sem
vel er gert í hinum ýmsu listgreinum.
Menningarverðlaun DV eru veitt í
flokkum sem spanna vítt svið menn
ingar. Að því leyti hafa þessi verðlaun
mikla sérstöðu. Þarna er listgreinum,
sem sumar eru mjög ólíkar, stefnt
saman, og það getur ekki annað en
verið gefandi fyrir listamennina og
upplýsandi fyrir almenning.
Menningarverðlaun DV eru við
leitni til að benda á það sem þykir
framúrskarandi og vekja athygli á
því. Það getur bara verið til góðs. n
Verðlaun skipta máli
Höfuðið upp úr sandinum
Sigríður Á. Andersen dómsmála
ráðherra hellti sér yfir Guðmund
Andra Thorsson í grein í Frétta
blaðinu í gær. Grein Sigríðar var
svar við skrifum Guðmundar
á sama vettvangi síðastliðinn
mánudag. Þar vandaði Guð
mundur Sigríði ekki kveðjurnar
og kallaði hana strút sem stingi
höfðinu í sandinn gagnvart um
hverfismálum. Sigríður svarar
því til að það sé skrítið að maður
eins og Guðmundur telji sig þess
umkominn að messa yfir fólki
um umhverfismál, í ljósi þess að
hann birti skrif sín í blaði, prent
uðu á innfluttan pappír, sem
berist óboðið inn á 80 þúsund
heimili og endi sem sorp. Það sé
óskapleg sóun og umhverfissóða
skapur. Það er gleðiefni ef þetta
er orðin skoðun Sigríðar og hún
ætli nú að leggjast á sveif með
umhverfinu. Það er reyndar frá
hvarf frá skoðunum hennar sem
hún lýsti árið 2015, þar sem hún
lagði meðal annars til að græn
ir skattar á bíla og eldsneyti yrðu
afnumdir. Sömuleiðis hefur Sig
ríður áður sagt lítinn ávinning
af því að draga úr útblæstri bíla,
heildarlosun þeirra sé hlutfalls
lega lítill þáttur. Sigríður virðist
því hafa dregið höfuðið upp úr
sandinum.
Glæsibæ • www.sportlif.is
PróteinPönnukökur
Próteinís Próteinbúðingur
Myndin Í leik Dagar eru bjartir og snjórinn víkur smám saman fyrir betri tíð. Enn er samt sitthvað eftir af snjó fyrir krakkana í Breiðholtinu að leika sér í. mynd SiGTryGGur Ari
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Slík verðlaun eru
einnig til þess
fallin að vekja athygli
almennings á því sem
vel er gert í hinum ýmsu
listgreinum.
mynd SiGTryGGur Ari
Ásdís rán opnar talentbook.is. – DV
[Það] þarf allar týpur í
sjónvarp og auglýsingar
Steingrímur Sævar Ólafsson um nýfallinn dóm. – Pressan
Sigur fyrir blaðamenn
á Íslandi