Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Qupperneq 22
Helgarblað 17.–20. mars 201722 Fólk Viðtal Ég lifi í núinu Kristbjörg Kjeld er heiðursverðlaunahafi DV, en í áratugi hefur hún verið í hópi ástsælustu leikara þjóðarinnar. Hún fagnar 60 ára leikafmæli í ár, lék fyrst í Þjóðleikhúsinu 1957 á sínu öðru ári í leiklistarskólanum. Hún hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar á ferlinum og heiðursverðlaun DV bætast nú við. Kolbrún Bergþórsdóttir hitti Kristbjörgu og spurði hana um leikarastarfið og farsælan feril. M ér þykir vænt um að fá viðurkenningar. Ég hef átt farsælan feril og er afskaplega þakklát fyrir það,“ segir Kristbjörg. Hún er orðin 81 árs og er enn að leika. „Það er ekki sjálfgefið, en sem betur fer er ég heilsuhraust,“ segir hún. Nýjasta hlutverkið er í Húsinu, áður ósýndu leikriti eiginmanns hennar, Guðmundar Steinssonar, sem Þjóðleikhúsið sýnir. Guð- mundur lést árið 1996. „Það er mjög sérstök tilfinning að leika í þessu leikriti sem nú er sett upp í fyrsta sinn. Það hefði verið dá- samlegt ef Guðmundur hefði fengið að sjá þetta verk á sviði. Vonandi er hann þarna einhvers staðar og fylgist með.“ Mikil og sterk upplifun Kjeld nafnið er færeyskt en faðir Kristbjargar kom ungur maður hingað til lands og starfaði sem smiður. Móðir Kristbjargar var ís- lensk. Hún segir fjölskylduna ekki hafa tengst leiklist á nokkurn hátt áður en hún fór að leika. „Fyrsta leikritið sem ég sá hét Gasljós og var sýnt í Bæjarbíói. Leikritið fjall- aði um hjón og eiginmaðurinn taldi konu sinni trú um að hún væri geðveik. Inga Laxness og Jón Aðils voru í aðalhlutverkum. Fyrir mér var þetta mikil og sterk upp- lifun, ég varð yfir mig hrifin. Svo áttum við að skrifa ritgerð í Flens- borg um upplifun og ég skrifaði um þetta eina leikrit sem ég hafði séð. Doktor Bjarni Aðalbjarnar- son, sem kenndi mér íslensku, sagði að ég hefði nú getað skrifað um merkilegra leikrit. Fyrir tilviljun fór ég að leika með áhugaleikfélagi Hafnarfjarðar. Vinkona mín var hvísla þar og vissi að ég hefði áhuga á leiklist. Þegar leikkona forfallaðist var spurt hvort ég myndi vilja hlaupa í skarðið, sem ég gerði. Ég var 15 ára. Upp frá því fór ég að leika með áhugaleikhúsi Hafnarfjarðar og hitti þar Flosa Ólafsson sem hvatti mig til að sækja um í leik- listarskóla Þjóðleikhússins. Ég þorði það ekki, fannst Þjóðleik- húsið svo stórkostlegt og magnað. Flosi hringdi í Ævar Kvaran og spurði hvort hann gæti ekki að- stoðað stúlku sem væri alveg æst í að komast inn í skólann. Ég komst að og hef verið að leika síðan.“ Persónan með manni allan tímann Eru einhver hlutverk sem þú hefur leikið sem kallast mega uppá- haldshlutverk þín? „Sum hlutverk hafa haft meiri áhrif á mig en önnur. Ég man hversu merkilegt mér fannst að leika Steinunni í Galdra-Lofti. Mér þótti vænt um það hlut- verk. Svo hef ég leikið í leikrit- um mannsins míns og mér hefur þótt það mjög mikil ábyrgð. Þegar maður er að móta hlutverk þá er persónan með manni allan tímann. Maður er alltaf að hugsa um persónuna og hvað mætti betur fara í túlkun á henni.“ Ertu fullkomn- unarsinni? „Ætli það ekki. Auðvitað vil ég alltaf standa mig sem best.“ Þú hefur átt afskaplega far- sælan feril. Hefurðu fundið fyr- ir því að það séu færri bita- stæð hlutverk fyrir konur en karla? „Ég hef fundið fyrir því, sérstaklega á vissum tíma á mínum ferli. Þegar ég var komin yfir fimm- tugt fór bitastæðum hlutverkum að fækka. Þegar ég varð enn eldri fór hlutverkunum Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Þrettándakvöld Shakespeares Með Erlingi Gíslasyni. Vér morðingjar eftir Guðmund Kamban Með Gunnari Eyjólfssyni. María Stúart eftir Schiller Kristbjörg lék Skotadrottn- ingu og sést hér með Bríeti Héð- insdóttur sem lék Elísabetu I. Englands- drottningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.