Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Qupperneq 23
Til sjávar
Kynningarblað
Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is
17. mars 2017
Ferskur fiskur og mikið
úrval af fiskréttum
Fiskbúðin Sundlaugavegi 12
F
iskbúðin Sundlaugavegi 12 er
ein elsta fiskbúðin á höfuð
borgarsvæðinu en frá 1947
hefur verið fiskbúð í þessu
húsnæði. Högni Snær Hauks
son sér um rekstur búðarinnar á
Sundlaugavegi og hefur starfað þar
í sex ár. „Við erum með ferskan fisk
daglega og mikið úrval af fiskréttum,“
segir Högni.
Bjóða upp á humarsúpu,
plokkfisk og fiskibollur
„Við leggjum mikið upp úr að bjóða
aðeins upp á ferskt hráefni og mikið
úrval,“ segir Högni. „Það er líka gam
an að segja frá því að við búum til
okkar eigin humarsúpu á staðnum,
plokkfisk og fiskibollur. Þegar kem
ur að plokkfisknum og bollunum þá
notum við uppskriftir sem eru frá
1986 og hafa fylgt Fiskbúðinni Sund
laugavegi síðan þá,“ bætir hann við.
„Þar af leiðandi hefur myndast hefð
sem við ætlum okkur að halda við,“
segir hann.
Tilbúnir fiskréttir
„Við bjóðum upp á fjölbreytta fisk
rétti sem eru tilbúnir og þægilegir til
eldunar,“ segir Högni. „Það ætti því
að vera auðvelt fyrir alla að finna eitt
hvað við sitt hæfi. Auk þess er úrvalið
af fiski yfirhöfuð mjög gott hjá okkur.
Sem dæmi má nefna reykta ýsu, gell
ur, kinnar, þorsk, keilu, steinbít, lax,
bleikju og margt fleira,“ segir Högni. n
Opið er mánudaga til fimmtudaga
frá kl. kl. 09.00 til 18.30, föstudaga
kl. 09.00 til 18.00 og laugardaga frá
kl. 11.00 til 14.00. Högni sér til þess
að Facebook-síða verslunarinnar er
mjög virk og geta viðskiptavinir nálg-
ast upplýsingar um ýmiss konar til-
boð sem eru í gangi hverju sinni sem
og um úrval fiskverslunarinnar.
Myndir ÞorMar Vignir gunnarsson