Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Síða 24
Helgarblað 17.–20. mars 20172 Til sjávar - Kynningarblað Ferskari verður fiskurinn ekki Lindarfiskur er alinn í ferskum sjávarlindum L indarfiskur er lítið fjölskyldu- fyrirtæki staðsett í Meðal- landinu rétt austan við Vík. „Móðir mín er frá þessari jörð og er staðurinn algerlega ein- angraður. Aðalverðmætin á jörðinni eru allt þetta tæra lindarvatn sem streymir hér beint úr eldhrauninu og því er staðurinn fullkominn fyrir bleikjueldi,“ segir Drífa Bjarnadóttir, einn eigenda Lindarfisks. „Við fjöl- skyldan eigum og rekum Lindar- fisk saman. Það eru ég og maðurinn minn, Árni Jóhannsson, systir mín, Sigrún Bjarnadóttir, og foreldrar okkar, þau Helga Ólafsdóttir og Bjarni Jón Finnsson,“ segir Drífa. Alger sjálfbærni Fyrstu bleikjuhrognin voru tekin hjá fyrirtækinu árið 2011 og síðan þá hef- ur Lindarfiski svo sannarlega vaxið fiskur um hrygg. „Við stefnum að al- gerri sjálfbærni og gerum því allt sjálf. Nýlega fengum við okkur svín sem éta nánast allan afskurðinn af bleikjunum og afgangurinn er svo notaður í áburð. Fiskinn vinnum við alfarið á svæðinu. Það hefur geng- ið hægt en örugglega að koma fyrir- tækinu á þann stað sem það er á í dag og munum við von bráðar selja vörur okkar í stórmarkaði. Við höfum með- al annars hannað neytendaumbúðir sem eru svartar og nær ógegnsæjar til þess að stuðla að ferskari og betri vöru. Að auki höfum við hugsað okk- ur að fara í útflutning á eldisbleikju, enda erum við með ótrúlega ferska vöru í höndunum,“ segir Drífa. Tærasta vatnið, ferskasti fiskurinn „Við leggjum mjög mikið upp úr ferskleika, það er eitthvað sem við getum bara alls ekki slegið af hérna hjá Lindarfiski. Hrognin fáum við frá kynbótastöðinni á Hólum í Hjaltadal sem framleiðir fyrsta flokks hrogn. Þau ölum við svo hér í Meðallandinu í kerjum og svokölluðum lengdar- straumsrennum. Hér rennur ferskt og tært vatn beint úr lindarupp- sprettum og fiskurinn er eins ferskur og getur orðið,“ segir Drífa. Hafðu samband „Við erum aðallega að selja bleikju til veitingastaða sem undantekningar- laust lofa bleikjuna okkar í hástert,“ segir Drífa. Enn sem komið er selur Lindarfiskur ekki vörur í stórmörk- uðum en til þess að versla beint við Lindarfisk er hægt að hringja í Drífu í síma 663-4528 eða senda henni net- póst á drifa@lindarfiskur.com. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Lindarfisks og á Facebook- síðunni. Einnig heldur Lindarfisk- ur úti síðu á Instagram sem er stór- skemmtilegt að fylgjast með. n Girnileg bleikja. Fólk sækir í gæðin og verðið hefur lækkað Fiskbúð Hólmgeirs, Þönglabakka 6 V ið opnuðum í miðri kreppu og síðan hefur allt verið upp á við hjá okkur,“ segir Hólmgeir Einarsson, eigandi Fiskbúðar Hólm- geirs sem staðsett er í Mjóddinni, nánar tiltekið að Þönglabakka 6. Fiskbúðin, sem stofnuð var þann 15. júní 2009, hefur notið mikillar velgengni og er rómuð fyrir gæði, hreinlæti, framúrskarandi þjón- ustu og hagstætt verð – en nýlega lækkaði Hólmgeir kílóverð á öllum fiski um 200 krónur: „Ástæðan var hagstætt ferð á fisk- mörkuðum en við gætum þess ávallt vandlega að skila verðlækkunum til viðskiptavina. Þetta er lækkun upp á 10 til 20 pró- sent, mismunandi eftir tegundum,“ segir Hólmgeir. Meirihluti viðskipta- vina Fiskbúðar Hólmgeirs er íbúar í hverfinu en einnig kemur töluvert af fólki úr Kópavogi. „En hingað kemur líka fólk langt að út af gæðunum. Við leggjum mikið upp úr að bjóða einungis gæðahrá- efni. Auk þess pössum við ofboðs- lega vel upp á hreinlæti. Þú finnur til dæmis ekki fiskilykt hérna inni í búðinni. Síðast en ekki síst leggjum við mikla áherslu á að veita góða þjónustu,“ segir Hólmgeir. Aðspurður um vinsælar fisk- tegundir segir Hólmgeir að þorsk- urinn sé alltaf að vinna á en langa sé líka orðin vinsæll fiskur. Vin- sældir þessara tegunda séu að einhverju leyti á kostnað ýsunnar en almennt ríkir fjölbreytni í fiskneyslu landsmanna. Fiskbúð Hólmgeirs býður upp á mikið úrval af tilbúnum réttum en Hólmgeir segir að samtals séu um 40 bakkar í borðinu hjá hon- um, með ferskum fiski og tilbúnum réttum. n Sem fyrr segir er Fiskbúð Hólm- geirs til húsa í Mjóddinni, að Þönglabakka 6, Reykjavík. Búðin er opin mánudaga–fimmtudaga frá kl. 9.00 til 18.30 og föstudaga frá kl. 9.00 til 18.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.