Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 34
Helgarblað 17.–20. mars 201730 Skrýtið Sakamál Í byrjun mars árið 2013 fluttu hjónin Lisa Kozoil-Ellis og Dash Ellis úr miðborg Chicago og sett- ust að í Elgin, smábæ í 56 kíló- metra fjarlægð frá Borg vinda. Töldu þau Elgin vera öruggari stað en Chicago og auk þess yrði um kær- komna hvíld að ræða frá ys og þys stórborgarinnar. Tveimur dögum síðar varð ljóst að þau höfðu tekið afdrifaríka ákvörðun. Dash og Lisa höfðu keypt sér raðhús í Garden Crescent Court, númer 4 vel að merkja. Einn ná- granna þeirra í sömu raðhúsalengju var Paul Johnson, frekar vafasamur pappír með fjölda dóma á bakinu. Þannig var mál með vexti að Lisa hannaði skartgripi með „goth“ ívafi og seldi undir vörumerkinu Foxy Goat Art, enda var hún, af vinum sínum, kölluð Foxy Goat, og eðlilega skartaði hún iðulega eigin hönnun. Óboðinn næturgestur Klukkan eitt eftir miðnætti, 2. mars, braust Paul Johnson inn til Ellis- hjónanna. Hann taldi víst að hjón- in væru ekki heima og hugsaði sér gott til glóðarinnar. Kannski hélt hann að skartgripir Lisu væru meira virði en raunin var, en hvað sem því líður þá var það gamall DVD-spil- ari sem heillaði kappann. En Paul var ekki einn á heimilinu. Lisa hafði verið uppi á annarri hæð, heyrt há- vaða niðri og íklædd náttsloppi, með hlébarðamynstri, fór hún niður til að kanna hverju sætti. Þar mætti henni Paul, með DVD-tækið undir höndum og skipti engum togum að hann réðst á Lisu. Ljóst er að eitthvað mikið gekk á því síðar upplýsti Maria Alecia Mora, nágrannakona Lisu, að hún hefði heyrt eitthvað sem hefði getað verið sársaukastuna. Varð Mariu, að eigin sögn, svo mikið um að henni kom ekki dúr á auga en þó aðhafð- ist hún ekkert frekar. Einum og hálf- um klukkutíma síðar kom Dash Ellis heim. Honum gekk erfiðlega að opna útidyrnar því rétt fyrir innan þær lá lífvana líkami Lisu: „Hún sýndi engin viðbrögð, liggjandi á grúfu,“ sagði hann síðar. Ásetningur eða tilviljun? Lisa hafði verið barin og stungin 55 sinnum með skrúfjárni og hnífi og síðan hafði bleikingarefni verið skvett yfir vettvanginn í tilraun til að eyðileggja sönnunargögn. Á meðal þess sem lögreglan velti fyrir sér var hvort tilviljun ein hefði ráðið örlögum Lisu eða hvort hún hefði verið myrt af ásetningi. Lisa var ágætlega kynnt og vinsæl og virk í listamannakreðsum Chicago, og fátt benti til annars en að um til- viljun væri að ræða. Fjölskylda Lisu og vinir söfnuðu 15.000 Bandaríkja- dölum sem skyldu renna til þess sem kæmi með upplýsingar sem leiddu til handtöku morðingjans. Nokkrum dögum síðar komst hreyfing á rann- sóknina. Lögreglan kemst á sporið Upplýsingar uppljóstrara lög- reglunnar beindu sjónum hennar að Paul Johnson. Hann hafði fengið ellefu ára dóm árið 2000 fyrir vopn- að rán, fengið reynslulausn, verið handtekinn fyrir innbrot árið 2010 og fengið fjögurra ára dóm og fengið reynslulausn enn og aftur árið 2012. Paul fullyrti að hann hefði var- ið kvöldinu þegar Lisa var myrt með hálfbróður sínum, Harry Dobrow- olsky, og gengið snemma til náða. Lögreglan var ekki sannfærð og samþykkti Harry að ræða við Paul, útbúinn upptökutæki. Í samtalinu lét Harry í það skína að hann óttaðist um sjálfan sig, lögreglan væri að reyna að klína morðinu hann. Paul reyndi að róa hálfbróður sinn og sagði: „Þú gerðir ekkert,“ og lofaði að hann myndi gefa sig fram ef svo færi að Harry yrði hnepptur í varðhald. Harry sagðist einnig hafa áhyggjur; hann vildi ekki missa hálfbróður sinn í grjótið – sem óhjákvæmilega yrði raunin ef lög- reglan kæmist að hinu sanna. „Þetta er eins og það er,“ sagði Paul þá. Harry sagður sekur Paul Johnson var handtekinn hálf- um mánuði eftir morðið á Lisu og ákærður. Þegar málið kom fyrir dóm, í maí 2015, fullyrti verjandi Pauls að Harry væri morðingi Lisu og það eina sem Paul væri sekur um væri að hafa hjálpað hálfbróður sín- um að „hreinsa upp skítinn“. Þetta var óvitlaus taktík hjá verj- anda Pauls því einhvern tímann á þeim tíma sem leið frá handtöku Pauls til réttarhaldanna hafði Harry tekið helsti stóran skammt af eitur- lyfjum og kvatt jarðlífið. Verjandinn sagði að Harry hefði verið „ráðvillt sál“ sem hefði aldrei haldist á starfi hvað þá öðru. Paul, á hinn bóginn, væri orðinn fyrir- myndarborgari með allt sitt á hreinu. Óyggjandi sönnunargögn Saksóknarar vísuðu þessum full- yrðingum til föðurhúsanna; vís- bendingar á vettvangi lygju ekki. Lífsýni úr Paul hefðu fundist inni á heimili Lisu og blóðug fótspor, sem samsvöruðu íþróttaskóm Pauls, hefðu fundist á að minnsta kosti tveimur stöðum inni á heimilinu. Ekki styrkti það málstað Pauls að klukkan þrjú um nóttina hafði hann halað niður lög- regluskannasmáforriti á farsíma sinn og í morgunsárið hafði hann leitað upplýsinga á vefnum varð- andi rannsóknir og samanburð á fingraförum og lífsýni. Eftir tveggja tíma bollaleggingar komst kviðdómur að þeirri niður- stöðu að Paul Johnson væri sekur um morðið á Lisu og í september 2015 var hann dæmdur til 50 ára fangelsisvistar. n „Það eina sem Paul væri sekur um væri að hafa hjálpað hálfbróður sínum að „hreinsa upp skítinn“. Banvænn Búferlaflutningur n Ellis-hjónin töldu sig örugg í litlum bæ n Sú sannfæring varð skammlíf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.