Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 36
Helgarblað 17.–20. mars 201732 Menning StockfiSh film feStival hlýtur verðlaun í flokki kvikmyndalistar H ildur Guðnadóttir, tón­ skáld og sellóleikari, hlýtur menningarverðlaun DV í flokki tónlistar. Í rökstuðningi dóm­ nefndar segir: „Tónskáldið Hildur Guðnadóttir hefur vakið athygli fyrir einstaklega persónulegan hljóðheim en tónlist hennar hefur verið gefin út af plötuútgáfunni Touch (With­ out Sinking (2009), Mount A (2010), Leyfðu ljósinu (2012) og Saman (2014)). Hildur hefur samið tónlist fyrir alls kyns hljóðfærasamsetn­ ingar og samhengi, sinfóníuhljóm­ sveitir, kammersveitir, kóra og leik­ hús; átt í gjöfulu samstarfi við aðra tónlistarmenn og samið eftirminni­ lega tónlist fyrir sjónvarpsþætti og kvikmyndir, þar á meðal sjónvarps­ þættina Ófærð og kvikmyndina Eiðinn og tónlist hennar hljómaði í stórmyndunum The Revenant og Sicario. Hildur er heiðarlegur, hug­ rakkur og leitandi tónlistarmaður sem fann snemma sína rödd, íhug­ ula og djúpa. Sú rödd hefur fengið að halda áfram að þroskast og vaxa með hverri nýrri áskorun sem tónlistar­ konan tekst á við.“ Samtal í formi flöskuskeytis Hildur Guðnadóttir er búsett og starfar í Berlín og vinnur um þessar mundir að tónlist við kvikmyndina Soldado, sem er framhald spennu­ myndarinnar Sicario. Móðir Hildar, Ingveldur G. Ólafsdóttir, tók við verð­ laununum fyrir hennar hönd og sagði það sérstaklega ánægjulegt að dóttur hennar hlyti verðlaunin, svo stutt væri síðan nánast engar íslenskar konur sinntu þessu starfi, og benti á að að­ eins nokkrir dagar væru síðan Jórunn Viðar féll frá, en hún var um 30 ára skeið eina konan í Félagi tónskálda. Í ræðu sem Hildur sendi með móður sinni sagði hún meðal annars: „Pabbi minn spurði mig einu sinni af hverju ég þyrfti alltaf að vera með svona mikið vesen í verk­ unum mínum, ég hef kannski ekki alltaf farið auðveldustu eða stystu leiðina að því sem ég hef tekið mér fyrir hendur og oft verið með meira vesen en góðu hófi gegnir. En það hefur alltaf verið gert í þeim tilgangi að búa til upplifanir og fara með skynfærin á staði sem við erum ekki vön,“ skrifaði Hildur. „Tónlist er fyrir mér eins og sam­ tal, samtal í formi flöskuskeytis. Maður kastar út skeytinu en ekki alltaf viss hvort einhver heyri eða fái skilaboðin. Að fá svona viðurkenn­ ingu þýðir að einhver hefur móttekið skilaboðin og tekið við upplifun. Það gleður mig ótrúlega mikið,“ sagði Hildur meðal annars í ræðunni. n Heiðarlegur, hugrakkur og leitandi tón- listarmaður hildur Guðnadóttir hlýtur verðlaunin í flokki tónlistar Þau voru einnig tilnefnd í flokki tónlistar dómnefnd: Elísabet Indra Ragnars- dóttir (formaður), Kristján Freyr Halldórsson og Alexandra Kjeld. n Tónleikastaðurinn Græni hatturinn n Plötuútgáfan Bedroom Community n Kjartan Sveinsson tónskáld n Katie Buckley hörpuleikari menningarverðlaun dv fyrir árið 2016 voru veitt við hátíðlega athöfn í iðnó miðvikudaginn 15. mars. verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1979 fyrir framúrskarandi árangur á menningarsviðinu, í þetta skiptið í níu flokkum – bókmenntum, fræðum, arkitektúr, hönnun, kvikmyndalist, danslist, leiklist, myndlist og tónlist. kristjan@dv.is Þessir voru einnig tilnefndir í flokki kvikmyndalistar dómnefnd: Vera Wonder Sölvadóttir (formaður), Valur Gunnarsson og Ísold Uggadóttir. n Jóhann Jóhannsson fyrir tónlistina við kvikmyndina Arrival n Heimir Sverrisson og Morten Jacobsen fyrir gervi í kvikmyndinni Eiðurinn n Leikhópur Hjartasteins n Heimildamyndin Keep Frozen K vikmyndahátíðin Stockfish Film Festival hlýtur verð­ launin í flokki kvikmynda­ listar. Hátíðin var fyrst haldin árið 2015 og var til­ raun til að endurvekja Kvikmynda­ hátíð í Reykjavík sem lagði upp laupana árið 2001. „Fátt hefur gert meira til að bæta kvikmyndamenningu þjóðarinnar á undanförnum árum en Bíó Paradís og Stockfish hátíðin henni tengd,“ segir í rökstuðningi dómnefndar­ innar fyrir valinu. „Auk þess að bjóða upp á úr­ val þess helsta í kvikmyndagerð heimsins fær hátíðin til sín góða gesti og heldur umræðufundi þar sem ýmsar hliðar kvikmyndalist­ arinnar eru ræddar. Stockfish gerir þannig sitt til að gera Íslendinga að betri kvikmyndagerðarmönnum og unnendum.“ afar mikilvæg hvatning „Fagfélögin í kvikmyndagerð höfðu mikinn áhuga á að endurvekja Kvik­ myndahátíð í Reykjavík. Það sem var markmið kvikmyndahátíðar og er markmið okkar er að vinna fyrir fólk­ ið í kvikmyndabransanum, standa fyrir tengslamyndun, halda málþing og fræðslu, hvetja ungt íslenskt kvik­ myndafólk með stuttmyndakeppni og koma með alþjóðlegar gæða­ myndir sem eru handvaldar inn. Markmiðið er mjög skýrt, að auðga kvikmyndamenninguna hér á landi,“ segir Marsibil. S. Sæmundardóttir, kvikmyndagerðarkona og fram­ kvæmdastjóri hátíðarinnar. „Það myndast svo skemmtileg stemning í Bíó Paradís, nánast eins og á litlum kvikmyndahátíðum úti á landi. Íslenskt kvikmyndagerðar­ fólk fær að kynna verkin sín og kynn­ ast erlendum framleiðendum,“ segir Marsibil og bendir á hvernig tengsla­ myndunin á hátíðinni hefur getið af sér ný og spennandi verkefni, fjár­ magn til íslenskra verkefna og svo framvegis. „Við erum líka ótrúlega sátt þegar einhver kemur út af bíó­ mynd á hátíðinni og segir: vá!“ segir Marsibil og hlær. En þegar þú tókst við verðlaunun­ um í Iðnó talaðir þú þó einnig um að framtíð hátíðarinnar væri óljós. „Já, undanfarin tvö ár hefur hátíðin verið haldin þrátt fyrir mikil vanefni. Við hefðum viljað láta fólk vita betur af okkur og þessum frá­ bæru myndum sem við höfum verið að sýna. Morguninn áður en verð­ launin voru afhent vorum við einmitt að ræða hvort við ættum yfirhöfuð að halda áfram. Við þurfum nefnilega nauðsynlega að fá meira fjármagn til að standa undir þessu – til þess að sinna hlutverki okkar. Þess vegna eru þessi verðlaun rosaleg hvatning.“ n Auðgar kvikmyndamenningu þjóðarinnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.