Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Qupperneq 38
Helgarblað 17.–20. mars 201734 Menning R ithöfundurinn Sjón hlýtur Menningarverðlaun DV 2016 í flokki bókmennta fyrir skáldsöguna Ég er sof­ andi hurð, síðustu bókina í þríleiknum CoDex 1962. Sjón hef­ ur einmitt hlotið þessi sömu verð­ laun fyrir fyrri tvo hluta þríleiks­ ins, Augu þín sáu mig, sem kom út árið 1994, og Með titrandi tár, sem kom úr árið 2001. Það er eins­ dæmi í tæplega 40 ára sögu Menn­ ingarverðlauna DV að rithöfundur hljóti verðlaun fyrir alla hluta eins og sama þríleiksins. Einstætt verk í íslenskri bókmenntasögu Í umsögn dómnefndar um bók­ ina segir: „Ég er sofandi hurð er glæsilegur endapunktur á ævin­ týralegum sagnabálki. Í heild sinni er þríleikurinn, sem hófst með Augu þín sáu mig, hélt áfram í Með titr­ andi tár og lýkur nú, einstætt verk í íslenskri bókmenntasögu. Frá­ sagnargaldur þar sem öllum brögð­ um er beitt til að skoða manninn í heiminum og hugmyndaflugið í manninum. Lokabókin heldur sig á slóðum dirfskufullrar sambræðslu bókmenntalegrar hámenningar, goðsagna og afþreyingarmenningar. Sjón hnýtir þá hnúta sem þarf og le­ yfir öðrum þráðum að lafa lausum af öryggi hins þroskaða en hrekkjótta sögumanns.“ Í viðtali við DV í desember sagði Sjón: „Í hverri bók reyni ég að takast á við eitthvað nýtt. Í þessari bók var ég að vinna með mjög brotakennda frásögn, láta á það reyna hversu brotakennd hún getur mögulega verið, hversu miklu ég get sleppt og hversu stór stökk ég get tekið. Þetta skiptir mig miklu máli bæði þegar ég skrifa og þegar ég les fagurbók­ menntir. Ég vil að hver einasta ný skáldsaga sé rannsókn á því hvað skáldsagan getur gert og hvað hún getur verið. Þegar við leggjumst í þá rannsóknarvinnu þá erum við líka að leita að því sem gerir skáld­ söguna að einstöku listformi.“ Verkið blessað í bak og fyrir Þegar verðlaunin voru afhent í Iðnó á miðvikudag var Sjón var stadd­ ur í Færeyjum að undirbúa Turninn á heimsenda, alþjóðlegt stefnumót rithöfunda frá eyjum og fræði­ manna sem fást við að skoða sam­ spil eyja og bókmennta, en viðburð­ urinn fer fram í Þórshöfn í Færeyjum í maí. Eiginkona hans, Ásgerður Jún­ íusdóttir, tók við verðlaununum fyrir hans hönd. Blaðamaður DV heyrði í Sjón eft­ ir að verðlaunin voru afhent og var hann yfir sig ánægður með heiður­ inn. „Menningarverðlaun DV í bók­ menntum eru elstu bókmennta­ verðlaun sem veitt eru á Íslandi og því mikill heiður að hljóta þau hvort sem er einu sinni, tvisvar eða þrisvar. Nokkrir af þeim höfundum sem ég lít mest upp til eru meðal fyrrverandi verðlaunahafa og mér þykir vænt um að vera í þeirra hópi. Ég átti sannar­ lega ekki von á því að fá verðlaun­ in að þessu sinni en nú hefur verkið í heild verið blessað í bak og fyrir og ég get haldið ótrauður áfram. Menn­ ingarverðlaun DV fyrir bókmenntir hafa haft þann kost í gegnum tíðina að koma á óvart og þau komu mér á óvart núna. Betri verklok get ég ekki hugsað mér.“ Manstu hvernig tilfinningin var þegar þú fékkst verðlaunin fyrir fyrstu bókina, þótti þér þetta mikil upphefð? „Já, það var stór stund á höfundar­ ferli mínum að fá Menningarverð­ laun DV fyrir Augu þín sáu mig, enda var það fyrsta opinbera viðurkenn­ ingin sem ég hlaut fyr­ ir ritstörf, ef undan eru skilin fyrstu verðlaun í ritgerða­ samkeppni sem haldin var í tilefni af iðnsýningu í Laugardalshöllinni vor­ ið 1978. Ég varð því afskaplega glað­ ur og flaug heim frá London, þangað sem ég var nýfluttur ásamt Ásgerði konu minni, til þess að taka á móti þeim og svo aftur út með fenginn daginn eftir. Verðlaunin styrktu mig í trúnni á það sem ég var að gera og það er gaman að leiðir okkar hafi leg­ ið svona saman af og til á þessum 22 árum sem eru liðin frá fyrstu kynn­ um.“ n Fullt hús hjá Sjón AllAr bækur þríleiksins CoDex 1962 eftir Sjón hAfA fengið MenningArverðlAun Dv þessi verk voru einnig tilnefnD í bókMenntAflokki Dómnefnd: Þorgeir Tryggvason (for- maður), Guðrún Baldvinsdóttir, Halla Þórlaug Óskarsdóttir. n Af ljóði ertu komin eftir Steinunni Sigurðardóttur n Draumrof eftir Úlfar Þormóðsson n Eyland eftir Sigríði Hagalín n Skegg Raspútíns eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur Menningar- verðlaun DV fyrir árið 1994 Menningar- verðlaun DV fyrir árið 2001 Tulipop hlýtur verðlAunin í flokki hönnunAr Í litríkum ævintýraheimi H önnunarfyrirtækið Tulipop hlýtur Menningarverðlaun DV í hönnunarflokki fyrir ævintýraheiminn Tulipop. Í umfjöllun dómnefndar segir: „Fyrir sjö árum stofnuðu Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árna­ dóttir fyrirtæki utan um Tulipop­ ævintýraheiminn. Síðan hafa um sjötíu vörur verið framleiddar und­ ir merkinu, meðal annars borð­ búnaður, lampar, töskur og annar nytjavarningur. Fyrirtækið hefur til þessa selt vörur sínar til 120 versl­ ana í 14 löndum, en nýverið keypti bandaríski leikfangaframleið­ andinn Toynami réttinn til fram­ leiðslu á Tulipop­leikföngum sem koma á markað síðar á árinu. Af­ rakstur samstarfsins eru bangsar, plastfígúrur og sparibaukur og verður leikföngunum dreift í hund­ rað verslanir í Bandaríkjunum til að byrja með.“ nostrað við smáatriðin „Við Signý erum gamlar vinkonur en haustið 2009 fórum við að spekúlera að gera eitthvað saman. Þá var ég nýkomin úr MBA­námi í London, og hún hafði verið að vinna sem teiknari, hafði gefið út og búið til vörur með myndunum sín­ um á og fengið myndir birtar í mjög flottum tímaritum. Hún var búin að þróa þennan flotta stíl og byrj­ uð að þróa alls konar karaktera. Við sáum að þetta var að falla í kramið hjá fólki á öllum aldri. Mér er sér­ staklega minnisstætt að stjúpdóttir mín og vinkonur hennar sem voru þá átta ára elskuðu allt sem Signý gerði. Þær byrjuðu að safna póst­ kortum og minnisbókum, vildu vita meira um karakterana og heim­ inn. Þegar við sáum þetta urðum við sammála um að það væri tæki­ færi í að búa til fyrirtæki í kringum þennan ævintýraheim,“ segir Helga Árnadóttir, annar stofnenda fyrir­ tækisins. En hvað er Tulipop? „Tulipop er ævintýraeyja sem er kannski svolítið ómeðvitað innblás­ in af Íslandi á ýmsan hátt, þarna eru til dæmis eldfjöll og hverir. Á Tulipop er ótrúlega fjölbreytt nátt­ úra, litrík og skringileg og þar býr skemmtilegt samansafn af litríkum og sniðugum karakterum sem að þó hafa allir sína galla – þetta eru sem sagt ævintýrapersónur sem eru þó bara eins og við öll inni við beinið.“ Hvað hafið þið að leiðarljósi í hönnuninni? „Fyrst og fremst viljum við gera vandaða og fallega hluti sem gleðja bæði börn og foreldra. Til dæmis finnst okkur fátt skemmtilegra en þegar mæðgur koma inn í búð og vilja kaupa hvor sinn Tulipop­hlut­ inn. Við viljum líka gera hluti sem endast, hluti sem eru eigulegir og fara ekki bara beint í ruslið, hluti sem eru litríkir en samt klassískir. Í teikningunum er líka föndrað við öll smáatriði til að ná þessu fullkomnu og fallegu,“ segir Helga. Tulipop­heimurinn er stöðugt að stækka og breikka, en um þess­ ar mundir eru þær stöllur að opna skrifstofu í Bandaríkjunum og fyrstu vörurnar eru komnar í verslanir vest­ anhafs. Næst á dagskrá er svo sería af stuttum teiknimyndum sem munu birtast á netinu, og síðan munu þær opna fyrstu Tulipop­búðina í mið­ borg Reykjavíkur á næstunni. n þAu voru einnig tilnefnD í hönnunArflokki Dómnefnd: Tinni Sveinsson (formaður) og Arnar Fells Gunnarsson. n AGUSTAV n Geysir n Oddsson eftir hönnunarfyrirtækið Döðlur n KALDA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.