Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Side 40
Helgarblað 17.–20. mars 201736 Menning Á srún Magnúsdóttir dans­ höfundur og þær 19 ung­ lingsstelpur sem taka þátt í dansverkinu Grrrls hljóta Lesendaverðlaun dv.is árið 2016 – en þær hlutu 840 atkvæði í netkosninu á dv.is, fjörtíu atkvæðum meira en sá næsti í röðinni. Það kemur kannski ekki á óvart að verkið hljóti lesendaverðlaunin enda hefur þessi litla danssýning notið óvenju mikilla vinsælda. Verk­ ið var upphaflega skapað fyrir og frumsýnt á Reykjavík Dance Festival í ágúst 2015, en vegna mikillar eftir­ spurnar hefur fjölda aukasýninga verið bætt við árið 2016. „Í Grrrrls hleypa Alexandra, Ásta, Dagný, Erla, Gunnhildur, Hrafn­ hildur, Hrefna, Katla, Lísbet, Marta, Nadja, Ólína, Jóhanna, Rakel, Salóme, Tindrá, Una, Unnur og Val­ gerður áhorfandanum tæpitungu­ laust inn í hugarheim sinn, ung­ lingsstúlkunnar,“ segir í umsögn dómnefndarinnar. „Þær tjá hugð­ arefni sín í gegnum dans og söng sem er í senn einfaldur, orkumikill og flæðandi. Stúlkurnar eru afslapp­ aðar og tilgerðarlausar, þær geisla af gleði og glettni á sama tíma og þær eru kraftmiklar og töff og afsaka ekki sínar skoðanir. Stúlkurnar eru alls konar, þær eru svona og hinsegin. Þær eru jafningjar. Þær eru framtíð­ in.“ Ásrún Magnúsdóttir er fædd árið 1988 og útskrifaðist af danslista­ braut Listaháskólans árið 2011. Hún hefur getið sér gott orð á undanförn­ um árum fyrir lífleg og framsækin þátttökuverk og dansverk þar sem hún vinnur með ólærðum dönsur­ um. Í Grrrls fékk hún hóp unglings­ stelpna til að vinna með sér að verki um tilfinningar unglingsáranna. „Þetta er svo flottur aldur. Það er einhver rómantísk, nostalgísk þrá eftir þessum unglingsárum hjá mér,“ sagði Ásrún í viðtali við DV þegar verkið var frumsýnt. „Ég mætti ekki með neinar fastmótaðar hugmyndir. Til að byrja með vorum við bara að leika okkur og kynnast í dansspuna og leikspuna. Þær hafa svo unnið saman í minni hópum og búið til efni. Svo fór ég að taka saman það sem hefur virkað og dýpkað suma hluti sem þær hafa komið með. Þarna eru bæði textar frá mér og þeim, þannig að þær eru algjörlega meðhöfundar verksins.“ n Þær eru framtíðin Ásrún Magnúsdóttir og stelpurnar í dansverkinu Grrrls hljóta lesendaverðlaun dv.is Helena Jónsdóttir hlýtur MenninGarverðlaun dv í flokki danslistar H elena Jónsdóttir hlýtur Menningarverðlaun DV í flokki danslistar fyrir braut­ ryðjandastarf í dansmynda­ gerð á Íslandi. Í umsögn dómnefndar segir: „Helena Jónsdóttir, dans­ og kvik­ myndagerðarkona, er tilnefnd fyrir brautryðjandastarf í dansmynda­ gerð á Ísland. Í hátt á annan áratug hefur Helena verið óhrædd við að deila hugmyndum sínum, þekkingu og aðferðum í dansmyndagerð. Hún hefur verið öflug í að skapa þessu listformi, þar sem kvikmyndagerð og danslist mætast, veg og virðingu og byggja það upp. Spor Helenu liggja víða og skiptir þá ekki máli hvort litið er til uppbyggingar náms í lista­ og kvikmyndaskólum lands­ ins, námskeiðahalds fyrir dans­ og kvikmyndahátíðir, verkefnavals fyrir bíóhús og sjónvarp eða innsetningar í gallerí og leikhús. Er þá ónefnd brúar smíðin sem felst í að skapa tengsl við hátíðir og framleiðendur á alþjóðavettvangi, en þeim tengsl­ um deilir hún gjarnan með öðrum ungum dansmyndagerðarmönnum. Eftir Helenu liggur fjöldinn allur af dansmyndum. Enn ein rósin í henn­ ar hnappagat er velgengni myndar hennar og Veru Sölvadóttur, Gone, sem hlaut á árinu 2016 fjölda alþjóð­ legra verðlauna og viðurkenninga.“ Myndavélin er uppáhaldsdansfélaginn Helena, sem er lærður dansari, kynnt­ ist dansmyndaforminu í kringum aldamót þegar hún vann hjá íslensku kvikmyndafyrirtæki. „Það sem heill­ aði mig við þetta form var að þarna gat ég á stuttum tíma séð, frétt af höfundum og listamönnum í minni grein í gegnum þessa miðla. Mér fannst þetta svo tilvalið fyrir okkur hér á Íslandi, þar sem peningarnir eru af svo skornum skammti, til að við gætum kynnt okkur heiminn eða komist í kynni við aðra í okkar grein. Það heillaði mig svakalega að geta unnið hér heima á Íslandi og sent rödd mína út og um allan heim án þess að kaupa flugmiða.“ Dansmyndir eru ekki eingöngu danssýningar sem eru teknar upp á myndband, held­ ur eru þær leikn­ ar myndir með tónlist, án tals og sprottnar upp úr heimi nú­ tímadansins. Hel­ ena segist oft nota enska hug­ takið „physical cinema“ í stað dans­ myndanafnsins og talar raunar um kvikmyndatökuvélina sem uppá­ haldsdansfélaga sinn. „Þegar maður er með hreyfi­ mynd, myndavél á hreyfingu og dansara að hreyfa sig er maður með þrjá vinkla sem eru allir á hreyf­ ingu. Ég komst að því mjög fljótlega að það var mjög erfitt og tímafrekt að grípa hreyfinguna svo hún skilaði sér á tjaldið. Að reyna að grípa hreyf­ ingu er svolítið eins og að reyna að taka mynd af fiski í sjó – að reyna að skipa honum að vera kyrr. En þetta heillaði mig mjög mikið, að ná að skila fallegu listformi eins og dansinum,“ segir hún. Helena hefur gert fjölda mynda sem hafa verið sýndar á ólíkum vett­ vangi. Hún hefur haldið fyrirlestra, tekið þátt í málþingum og kennt fjölda listamanna námskeið í dans­ myndagerð. Nýjasta myndin hennar er Gone sem hún vann með samkennara sínum í Kvikmyndaskóla Íslands, Veru Sölvadóttur, og skartar Ingvari E. Sigurðssyni í aðalhlutverki. Myndin er tileinkuð eiginmanni hennar, Þorvaldi Þorsteinssyni lista­ manni sem lést árið 2013 þegar myndin var enn í vinnslu. n Brautryðjandi í dans- myndagerð á Íslandi Þær hlut einniG tilnefninGar í danslist dómnefnd: Karen María Jónsdóttir (formaður), Ólöf Ingólfsdóttir, Margrét Áskelsdóttir. n Þyri Huld Árnadóttir fyrir dans sinn í verkinu What a feeling n Katrín Gunnarsdótir fyrir tvö ólík höfundarverk á einu dansári, Kvika og Shades of history n Steinunn Ketilsdóttir fyrir listrænar rannsóknir sem eiga sér fáar fyrirmyndir í dansheiminum á Íslandi n Ásrún Magnúsdóttir danshöfundur og allar stelpurnar í Grrrrls

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.