Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Síða 8
Vikublað 21.–23. mars 20178 Fréttir 115 eiga von á sekt Brot 115 ökumanna voru mynd- uð á Sæbraut í Reykjavík á föstu- dag. Að sögn lögreglu var fylgst með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, við Kirkju- sand. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 648 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 18 prósent, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 kílómetrar á klukkustund en þarna er 60 kílómetra hámarks- hraði. Sá sem hraðast ók mæld- ist á 93 kílómetra hraða. Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuð- borgarsvæðinu. Dró sér fé Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi á föstudag 25 ára karlmann í sex mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir fjár- drátt. Maðurinn var ákærður fyrir að draga sér rúmar 630 þús- und krónur af reikningi fatlaðs og þroskaskerts einstaklings, en hinn seki var persónulegur tals- maður hans. Þá notaði hann debetkort mannsins og keypti vörur og þjónustu til eigin nota fyrir tæpar 50 þúsund krónur. Maðurinn sem ákærður var játaði brotin fyrir dómi. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Spyr hvort salan á Arion sé málamyndagjörningur n Einn kaupandi flæktur í spillingarmál n Stjórnarandstaðan full efasemda F ulltrúar stjórnarandstöðuflokk- anna á Alþingi eru fullir efa- semda varðandi sölu á tæplega 30 prósenta hlut í Arion banka til þriggja erlendra vogunar- sjóða og bandaríska fjárfestingarbank- ans Goldman Sachs. Ekkert liggi fyrir um raunverulegt eignarhald, augljós- lega sé verið að leggja sig fram um að lágmarka afskipti ríkisvaldsins og velt- ir fyrrverandi forsætisráðherra því fyrir sér hvort um málamyndagjörning sé að ræða. Þá hafi í það minnsta einn þessara aðila sem nú hafa keypt orðið uppvís að mútugreiðslum og spillingu. Ekki megi gerast aftur að bankarnir lendi í höndunum á fólki sem kunni ekki með þá að fara. Tilkynnt var um söluna í gær en kaupendur eru vogunarsjóðirnir Attestor Capital LLP og Taconic Capi- tal Advisors UK LLP, sem báðir kaupa 9,99 prósenta hlut og Sculptor In- vestments s.a.r.l. sem kaupir 6,6 pró- senta hlut. Síðastnefndi sjóðurinn er tengdur Och-Ziff Capital Management Group sem á síðasta ári þurfti að greiða yfir 400 milljónir bandaríkjadala í sekt vegna mútugreiðslna og spillingar í Afríkuríkjum. Goldman Sachs kaupir þá 2,6 prósenta hlut. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar eru ekki hrifnir af ferli málsins. Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Fram- sóknarflokksins, hefur óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem kallað verður eftir frekari upplýsing- um um söluna og fulltrúar Fjármála- eftirlitsins verði boðaðir. Aðrir þing- menn stjórnarandstöðunnar hafa tekið undir þá kröfu. Hagkvæmt fyrir kaupendur Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir mjög ógagnsætt hverj- ir séu að kaupa hlut í bankanum og það sé óásættanlegt. „Mér sýnist líka að þetta sé hannað til að lágmarka að- komu stofnana ríkisins. Þarna kaupa tveir aðilar, tveir sjóðir, eignarhlut sem er rétt undir tíu prósentum. Eins og kunnugt er telst tíu prósenta eignarhlutur vera virkur eignarhlutur sem myndi kalla á að Fjármálaeftirlitið mæti hæfi hinna nýju eigenda.“ Katrín nefnir einnig að uppgefið kaupverð sé 0,81 prósent af bókfærðu virði bankans, þ.e. 81 eyrir af hverri krónu. Heimild sé hins vegar til þess að ríkið stigi inn í viðskiptin færi verð niður fyrir 0,8 aura af hverri krónu, þá myndi forkaupsréttur virkjast. „Þetta er svona eins hagkvæmt og það getur orðið.“ Ríkið þarf að setja reglur „Við hefðum nú gjarnan viljað fá að vita hverjir það eru sem eru að kaupa þetta, í gegnum vogunarsjóði,“ segir Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinn- ar. Hann segir allt benda til þess að viðskiptin hafi verið sniðin með þeim hætti að ríkið hefði sem minnsta að- komu að þeim, bæði eignarhlutur hvers aðila, sem og verð á hvern hlut. Nauðsynlegt sé að setja heildstæðar reglur um fjármálastarfsemi í landinu svo ríkið hafi eitthvað um það að segja í hverra höndum bankar lendi. Logi segir að eigi yfirhöfuð að selja banka þá væri æskilegt að það yrði gert til áreiðanlegs aðila, gjarnan erlends, sem hefði reynslu af bankastarfsemi og hygðist koma að slíkri starfsemi hér á landi til framtíðar. „Slíkur aðili hef- ur ekki fundist hingað til en það má ekki gerast aftur að bankarnir lendi í höndunum á fólki sem ekki kann með þá að fara.“ Telur líklegt að tengsl séu milli aðila Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, tekur í sama streng og kollegar hans í stjórnar- andstöðunni. „Margt við þetta er ankannalegt. Þarna forðast menn aug- ljóslega að fara yfir tíu prósentin þegar kemur að eignarhlutnum. Hins vegar gilda sömu reglur ef um tengda að- ila væri að ræða en um það vitum við ekki neitt. Mér finnst hins vegar líklegt að svo sé, það hafa verið mikil tengsl á milli þeirra sjóða sem starfað hafa hér á landi. Ef um íslensk fyrirtæki væri að ræða þá væru tengsl þeirra skoðuð, undirliggjandi eignarhald borið saman til að kanna hvort þetta væru tengdir aðilar. Menn hljóta að gera kröfu um það þegar verið er að selja þetta stór- an hlut í banka sem er kerfislega mikil- vægur í íslensku efnahagslífi og að hluta til í eigu ríkisins, að þessar upp- lýsingar komi fram í dagsljósið,“ segir Sigmundur. Sigmundur bendir einnig á að við samningana um stöðugleikaframlög hafi verið gengið frá ákvæði þess efnis að tækist Kaupþingi ekki að selja hlut sinn í Arion banka fyrir lok árs 2018 myndi ríkissjóður leysa bankann til sín. „Það vekur upp spurningu hvort þetta sé einhver málamyndagjörning- ur, að þarna séu menn að selja sjálf- um sér bankann, því að miklu leyti eru þetta sömu aðilar og eiga í Kaupþingi, til að komast hjá aðkomu ríkisins á næsta ári,“ sagði Sigmundur. „Maður getur ekki annað en velt fyrir sér samhenginu í þessu og þá komum við aftur að því að við vitum ekki hverjir eru á bak við þessa sjóði. Gætu verið tengingar við aðila sem voru að semja um sölur á krónueign- um við losun hafta? Ég skal ekki segja en það er alla vega ljóst að stjórnvöld hafa verið í viðræðum við vogunar- sjóði út af aflandskröfunum,“ sagði Sig- mundur enn fremur. Salan ekki vandamál Smári McCarthy, þingmaður Pírata, segir sjálfa söluna á Arion banka ekki vandamál heldur hverjir kaupi. „Þetta eru vogunarsjóðir og ekki hægt að greina raunverulegt eignarhald, hvaða einstaklingar eru á bak við þessi kaup. Það fólk verður að koma fram,“ segir Smári og bætir við að saga kaupend- anna sé ekki slétt og felld. „Við vitum að einn þessara aðila, Och-Ziff, hefur þurft að borga sektargreiðslur upp á ríflega 400 milljónir dollara vegna mút- ugreiðslna í fjölda Afríkulanda. Með því hefur sjóðurinn átt beinan þátt í spillingarmálum. Ég er ekki viss um að þetta séu aðilar sem við viljum fá sem eigendur að mikilvægum fjármála- stofnunum á Íslandi.“ n Katrín Jakobsdóttir Mynd SigTRygguR ARi Logi Már Einarsson Mynd SigTRygguR ARi Sigmundur davíð gunnlaugsson Mynd SigTRygguR ARi Smári McCarthy Lítt hrifin Stjórnarandstaðan er ekki hrifin af sölu á um 30 prósenta hlut í Arion banka til vogunarsjóða og Goldman Sachs. Mynd RóbERT REyniSSon Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.