Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Page 24
Vikublað 21.–23. mars 20174 Bestu pizzur bæjarins - Kynningarblað Þ egar nýir eigendur tóku við Keiluhöllinni í Egilshöll var eitt af fyrstu verkefnum þeirra að breyta veitinga­ staðnum sem þar hafði verið starfræktur. Eftir nokkurra mánaða tilraunaeldhús og prufu­ keyrslur var Shake & Pizza stofnaður haustið 2015. Sérhönnuð ostablanda og sykurlaust pizzudeig Markmiðið með staðnum var að bjóða upp á hágæða pizzur úr há­ gæða hráefni og með nýjum áhersl­ um. Mikið var lagt í undirbúning á staðnum og það var markmið að ögra öllum viðmiðum þegar kom að pizzu. Allt skyldi þróað frá grunni. Sem dæmi var þróuð sérstök osta­ blanda úr fjórum mismunandi ost­ um til að ná fram rétta ostabragð­ inu og réttri áferð. Osta­ blanda Shake & Pizza saman­ stendur af Cheddar, Gouda, Mozzarella og Maribo. Einnig var sett saman algjörlega ný pizzusósa með parmesanosti og sérstaklega samsettri krydd­ blöndu sem gerir sósuna svo góða að hún er notuð sem dip­sósa með öðrum forréttum. Pizzudeigið var einnig prófað í þaula og er án viðbætts sykurs, en flestallir pizzustaðir eru með sykur í deiginu. Sykurleysið gerir deigið léttara í maga og áferðina almennt ferskari. Öðruvísi pizzur „Strax í upphafi var ákveðið að setja saman öðruvísi pizzur í bland við klassískar og allar skyldu þær vera 12” að stærð. Það að hafa allar pizzur 12” er stór þáttur í gæðum staðarins, því að aðrar stærðir eru hreinlega ekki eins góðar. Í 12” stærðinni er hlutfall áleggs, deigs og sneiðar rétt. Enda var og er 12” stærðin hin eina sanna pizzustærð,“ segir Sigmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Shake & Pizza. „BBQ Kjúklingapizza, HotWings­ pizza með gráðaostasósu til hliðar, Pulled Pork BBQ­pizza, Sesarsal­ at­pizza og pizza með Mozzarella­ ostastöngum og nachos­ostasósu eru dæmi um pizzur sem eru ekki á hverju strái. LasVegans­pizzan er ný á matseðli en hún er 100% vegan, með tómatpúrrusósu, veganosti, sætum kartöflum, rauðlauk, svepp­ um , ananas og jalapeno. Hún hefur verið gríðarlega vinsæl frá því að hún kom á matseðil og við finnum fyrir miklu þakklæti meðal vegan­ fólks á Íslandi.“ Beikonsultupizzan er vinsælust Beikonsultupizzan er furðulegasta og vinsælasta pizzan hjá Shake & Pizza. Í stað pizzusósu er sett beikonsulta sem gefur pizzunni sætubragð og setur hana strax á nýj­ ar slóðir þegar kemur að pizzum. Ofan á beikonsultuna er síðan sett dálítið af jalapeno, sem er mótvægi við sætuna enda sterkur pipar. Þetta jafnvægi á milli sætu og sterkju er meginkjarninn í þessari pizzu. Síð­ an er pepperóní og kjúklingur á pizzunni sem gefur henni salt og fyll­ ingu. Osturinn fer síðan yfir hráefnið og pizzan er bökuð. Eftir að hún kemur úr ofninum er ferskt nachos, sem er steikt á staðnum daglega, brytjað yfir pizzuna, og loks er hvít topping­sósa Shake & Pizza sett yfir til að ramma þetta allt saman inn. Beikonsultan til Las Vegas Í mars 2016 fóru Vilhelm Einarsson og Sigmar Vilhjálmsson með Beikonsultuna í stærstu pizzukeppni í heimi, International Pizza Expo. Beikonsultupizzan fékk þátttöku­ rétt í flokknum „International Non­ Traditional pizzas“ sem er eftirsóttasti flokkurinn. En eins og nafnið ber með sér er þetta flokk­ urinn þar sem þátttak­ endur keppa um nýjungar og nýsköpun í pizzugerð. Af þeim 50 pizzum sem tóku þátt í úrslitum hafnaði Beikonsultupizzan í 4. sæti. En það munaði aðeins 0,02 stigum að pizzan hefði hreppt 3. sætið. Þessi árangur er mjög merki­ legur því þarna eru saman komnir margir af bestu pizzustöðum heims. Aldrei áður í sögu keppninnar hef­ ur beikonsulta verið notuð á pizzu og aldrei áður hafa Íslendingar tek­ ið þátt í þessari keppni. Það vakti því ansi mikla athygli að Ísland skyldi eiga fulltrúa og hvað þá ná 4. sæti í sinni fyrstu keppni. „Villi stóð sig fá­ ránlega vel í þessari keppni, enda er pressan mikil og þér er skammt­ aður ákveðinn tími til að skila af þér fullskapaðri vöru. Hann er með stál­ taugar drengurinn og stóð sig ótrú­ lega vel,“ segir Sigmar. Shake & Pizza í Krónunni Vinsældir Shake & Pizza hafa verið gríðarlegar frá því að Beikonsultan sló í gegn í Las Vegas. „Beikon­ sultupizzan er langvinsælasta pizza staðarins og voru fyrirspurnir um hvar hægt væri að nálgast beikons­ ultu frá viðskiptavinum kveikjan að því að Shake & Pizza ákvað að hefja framleiðslu á sultunni til sölu í versl­ unum,“ segir Sigmar. Krónan sýndi því áhuga að selja vörur Shake & Pizza í sínum versl­ unum enda er ansi vinsælt hjá Beikonsultupizzan Var valin 4. besta pizza í heimi í stærstu pizzukeppni í heimi, International Pizza Expo. Fjórða besta pizza í heimi er á Íslandi Shake & Pizza þegar orðinn næststærsti pizzustaður landsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.