Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2017, Page 30
Helgarblað 31. mars–3. apríl 20176 Viðhald húsa - Kynningarblað
Alhliða viðhald og endurbætur
Skjólverk
B
yggingafyrirtækið Skjólverk
ehf. hefur verið starfandi
frá árinu 1987, eða í rétt tæp
30 ár. Meginþungi starf-
semi fyrirtækisins liggur í
viðhaldi og endurbótum á húsnæði,
umfram verkefni á sviði nýbygginga.
Skjólverk sinnir reglulegu viðhaldi
og endurbótum á hátt á þriðja þús-
und íbúðum á höfuðborgarsvæðinu
í samstarfi við stærstu fasteignafélög
landsins, þar inni eru meðal annars
fjölmargar íbúðir í félagslega hús-
næðiskerfinu. En Skjólverk sinnir
líka þjónustu við einstök húsfélög
og vinnur því fyrir bæði litla og stóra
aðila.
Einstakur reynslu- og
þekkingargrunnur
Hjá Skjólverki starfar hópur fag-
lærðra iðnaðarmanna á hinum
ýmsu sviðum. Víðtæk þekking
þeirra og reynsla gagnast vel við hin
ýmsu vandamál sem hefðbundnar
byggingaraðferðir á Íslandi hafa í
för með sér. Margt er vel gert við
byggingu íbúða hér á landi en að-
ferðirnar og byggingarefnin hafa líka
skapað vandamál á borð við húsa-
sveppi, raka, skort á loftun á þökum
og slæma hljóðvist. Þessi vanda-
mál takast starfsmenn Skjólverks
á við, til dæmis með því að skipta
út byggingarefnum þar sem við á.
Hér kemur stór reynslubanki Skjól-
verks að góðum notum en fyrirtækið
vinnur auk þess oft í nánu samstarfi
við arkitekta og sérfræðinga á sviði
byggingaverkfræði og byggingareðl-
isfræði.
Heildarmynd og forgangsröðun
Skjólverk kappkostar að beita bestu
og nýjustu aðferðum hverju sinni
við lagfæringar og endurbætur.
Fyrir tækið virkjar þar, auk þekk-
ingar og reynslu eigin starfsmanna,
náið samstarf sitt við sérhæfða sam-
starfsaðila með mikla menntun og
reynslu hver á sínu sviði. Afrakstur
þess er lækkun viðhaldskostnaðar
og betri heildarsýn yfir ástand og
rekstur fasteigna.
Skjólverk býður upp á alhliða
viðgerðir á öllum tegundum fast-
eigna, til dæmis glugga- og gler-
skipti, endurnýjun og viðgerðir á
þakefnum, uppsetningu á utan-
hússklæðningu, pípulagnir, raflagn-
ir, múrvinnu, málun, dúklagningar
og fleira.
Auk einstakra viðhalds- og
endurbótaverkefna býður fyrirtækið
upp á nýbyggingar og viðbætur fast-
eigna og veitir auk þess langtíma-
þjónustu og ráðgjöf (LCC) vegna
viðhalds fasteigna.
Stórt og smátt – allar iðngreinar
Skjólverk tekur bæði að sér stór og smá
verk á sviði lagfæringa og endurbóta
og vinnur jafnt fyrir stóra sem litla að-
ila, eins og fyrr segir. Sérhæfð þekking
og kunnátta iðnaðarmanna Skjólverks
spannar vítt svið en fyrirtækið hefur á
sínum vegum iðnmeistara og faglærða
iðnaðarmenn í eftirtöldum greinum:
n Húsasmíði
n Málun
n Trésmíði
n Innréttingar/hurðir
n Múrverk
n Dúkalögn/veggfóður
n Pípulögn
n Pappalagnir/dúkur
n Raflagnir
n Niðurrif
n Blikksmíði
n Stíflulosun
Hver sá aðili sem þarf á þjónustu
iðnaðarmanna að halda, jafnt í stór-
um sem smáum verkefnum, getur
haft samband við Skjólverk og feng-
ið tilboð í verk. n
Skjólverk er til húsa að Funahöfða
8, 110 Reykjavík. Sími er 898-4520 og
netfang skjolverk@skjolverk.is
Á vandaðri heimasíðu fyrirtæk-
isins, www.skjolverk.is, er að finna
gagnlegar upplýsingar um starfsem-
ina og þá þjónustu sem í boði er.