Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2017, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2017, Qupperneq 47
Helgarblað 31. mars–3. apríl 2017 Menning 39 Myndlistargagnrýni í krísu N únó og Júnía er nýtt ís- lenskt fjölskylduleikrit sem gerist í framtíðar- landinu Kaldóníu þar sem afburðarmennskan er ræktuð af kappi. Þess er vænst af þegnum landsins að þeir geri ætíð betur í dag en þeir gerðu í gær og með reglubundnum frammistöðumælingum eru íbú- arnir hvattir til dáða á öllum svið- um. Það eiga alltaf allir að vera á toppnum í Kaldóníu. En þrátt fyrir þrotlausa vinnu framúrskarandi vísindamanna landsins, hefur enn ekki fundist lækning við Þokunni sem lagst hefur á marga íbúa á liðnum árum. Þokan lýsir sér á þann hátt að líkamspartar virðast hverfa og í svæsnustu tilfellum verður sýkt- ur einstaklingur alveg ósýnileg- ur. Til þess að forðast smit hafa íbúar Kaldóníu lokað af land- svæði með múr og flutt þangað alla sýkta einstaklinga. Það stöðv- ar þó ekki smit og dag einn kemst Núnó, afburðareinstaklingur, al- heimsmeistari og sendiherra, að því að vinstri handleggurinn á honum er horfinn. Í stað þess að tilkynna sjúkdómseinkennin heldur hann þeim leyndum og lofar strokusjúklingnum Júníu, sem er alveg orðin ósýnileg, að hjálpa henni að finna lækningu. Í leiðangrinum álpast Núnó inn á landsvæði þar sem hippahug- sjónir eða einhvers konar barna- leg jafnaðarmennska ríkir með- al íbúa. Þar skarar enginn fram úr, allir una afslappaðir og glaðir við lágmarks verðmætasköpun án nokkurra vandamála. Þessi þáttur var einn veikasti hluti handrits- ins, bæði vegna pólitískrar ein- földunar en ekki síður vegna þess að tækifærið var ekki nýtt til þess dýpka verkið með því að sýna hvaða vandamál eru ráðandi í slíku samfélagi. En allt blessast þetta að lokum og Núnó og Júnía komast að því að efasemdir, kvíði og vanlíðan vegna of mikils álags, valda þokueinkennunum. Lækn- ingin felst í umhyggju og sann- gjarnari kröfum til íbúa Kaldóníu. Leikurinn leið fyrir það hversu flöt textameðferðin var þegar leik- ið var á móti Júníu, hinni ósýni- legu. Samtölin voru ekki nógu vel skrifuð og leiktæknin ásamt hljóð- vinnslu radda gekk ekki upp. Þar hefði þurft að finna betri lausn- ir. Einnig vann einsleitni íbúa Kaldóníu og hippanna góðu ekki með verkinu, dýpri karaktersköp- un í handriti og persónulegri bún- ingar hefðu aukið spennu og dýpt verksins, það skorti bæði flóknari og meira spennandi persónur í verkið. En margt er líka vel gert og má þar nefna bellibrögðin sem beitt er til þess að búa til ósýnileika Núnós og Júníu. Einnig lýsingu, myndbönd, leikmuni og með- ferð leiktjalda sem beitt var með einstaklega fallegum hætti. Dom- inique Gyðu og Alexander Dantes eru skorður settar í hlutverkum Júníu og Núnós vegna annmarka í handriti og leikstjórn, en bæði Al- exander og Bjarni ná hins vegar sjarmerandi leiksprettum í ofsa- þjálfunarbúðum Kaldóníu í fyrri hluta sýningarinnar. Þá er þáttur aukaleikaranna líka góður, vera þeirra á sviðinu var fallega unnin og skapaði ágæta mynd af samfé- lagi Kaldóníu. Þrátt fyrir brotalamir í handriti og leikstjórn þá er Núnó og Jún- ía sýning með brýnt erindi. Boð- skapurinn er ekki stappaður upp í áhorfendur, lausnin er kannski full einföld en samt er hér á ferð spennandi og brýnt efni til um- ræðu og umhugsunar. Börnum með kvíða- og þunglyndisein- kenni fjölgar stöðugt og það auð- veldar ekki meðferð þeirra hversu skilningur og fræðsla um sjúk- dóminn er takmörkuð. Þetta verk hvetur til umræðu og eykur skiln- ing á andlegum sjúkdómum með- al barna og ungmenna og það er vel gert. n Bryndís Loftsdóttir ritstjorn@dv.is Leikhús Núnó og Júnía Höfundar: Sigrún Huld Skúladóttir og Sara Marti Guðmundsdóttir Leikstjóri: Sara Marti Guðmundsdóttir Leikarar: Alexander Dantes Erlendsson, Bjarni Snæbjörnsson og Dominque Gyða Sigrúnardóttir og fleiri. Ljósa- og myndbandshönnun: Ingi Bekk Leikmynda- og leikmunahönnun: Brynja Björnsdóttir Búningar og gervi: Íris Eggertsdóttir Sviðshreyfingar og dans: Katrín Mist Haraldsdóttir Leikfélag Akureyrar sýnir í Hamraborg í Hofi Kröfur og Kvíði í KaldóNíu„Þrátt fyrir brotalamir í handriti og leikstjórn þá er Núnó og Júnía sýning með brýnt erindi. Alltaf á toppnum Íbúar Kaldóníu eiga stöðugt að vera að bæta sig og fylgst er með árangrinum með frammistöðu- mælingum – en þetta mikla álag sem íbúarnir búa við hefur ófyrirséðar afleiðingar í för með sér. Með gagn- rýni eign- umst við tungumál H elga Óskarsdóttir, myndlistar- kona og ritstjóri vefmiðlsins Artzine, segist hafa stofnað miðilinn til að bregðast við skorti á myndlistarumfjöllun. Hún sagði að þótt það væri fallegt hvað netið stæði öllum opið og hver sem hefð orkuna og áhug- ann gæti tekið þátt í um- ræðunni þá væri enn- þá mikil- vægt að rýnt væri í listina í hefðbundn- um fjölmiðl- um. „Ef mynd- listin fær ekki rými í fjölmiðlum þá hættir hún að vera raunveruleg og mikilvægi hennar gagnvart samfélaginu verður ekki jafn áþreifanlegt. En á meðan fjöl- miðlar sýna myndlistinni svo lítinn áhuga getum við unnið með hinn anarkíska miðil fólksins, netið,“ sagði hún. Hún talaði um reynslu sína sem listamaður. Á þeim árum sem hún var að stíga sín fyrstu skref hafi ver- ið fjallað um nánast hverja einustu myndlistarsýningu. Hún sagði það hafa haft mikið gildi fyrir hana að fá faglega gagnrýni um sína fyrstu einkasýningu, þar sem verk hennar voru sett í samhengi við listasöguna og eldri erlenda listamenn. Hún lagði einnig áherslu á að gagnrýni hafi átt þátt í því að almenningur og listamenn sjálfir eignuðust tungu- mál til að tala um listina. Gjá milli myndlistar og almennings M agnús Guðmundsson, menningar- ritstjóri Fréttablaðsins, gekkst við því að Fréttablaðið hafi ekki staðið sig sem skyldi í umfjöllun um myndlist á undan- förnum árum en sagði að í vetur hafi í fyrsta skipti tekist að koma á myndlistargagnrýni í blaðinu. Hann sagði að hvatningin úr myndlistarheiminum hafi hins vegar ekki verið mikil, viðbrögðin við gagnrýninni hafi verið lítil sem engin. Eins og Einar Falur lagði hann áherslu á að gagnrýni í fjölmiðlum væri hugsuð fyrir almenna lesendur þótt hún gæti vissulega komið fagfólkinu að einhverju gagni og ætti að geta kveikt umræður. Hann sagði reynslu sína af listrýni hins vegar sýna að það síðastnefnda væri sjaldnast raunin, jákvæð- um dómum sé jú dreift á samfélagsmiðlum eða þeir notaðir í auglýsingum en án þess að þeir leiði til nokkurrar umræðu. Neikvæðir dómar skrifaðir af fagmennsku veki svo enn minni eftirtekt. Undantekning séu aðeins þeir dómar sem eru uppfullir af gífuryrðum og persónulegum árásum – slíkir dómar veki athygli og kveiki umræður. Magnús varpaði fram þeirri hugmynd að vandamál myndlistarinnar fælist kannski í þróun hennar á síðustu áratugum. Öðrum listgreinum frem- ur hafi hún slitið af sér alla hlekki, þanist út fyrir mörk hins hefðbundna og gert allt að sínu, leyft allt og álitið allt eiga rétt á sér. Þótt hann væri sjálf- ur hrifinn af þessari þróun sagðist hann velta fyrir sér hvort myndlistin hafi þannig fjarlægst almenning, orðið óaðgengilegri og lokaðri innan afmark- aðrar senu, hvort það hafi myndast gjá milli myndlistar og almennings. Þar sem skylda fjölmiðils væri fyrst og fremst við þennan sama almenn- ing sagði Magnús ekki ljóst hvernig umfjöllun um myndlist ætti helst að vera háttað – eflaust þurfi að endurskoða forsendurnar fyrir myndlistargagnrýni áður en farið er aftur af stað. Hann sagði enn fremur að kannski þyrfti að fræða almenning frekar um forsendur nútímamyndlistar, enda sé fræðsla um myndlist nánast ekki til staðar í skólakerfinu. Verkefnið væri ekki að endurheimta fortíðina, heldur hugsa hvernig megi skapa aftur almenna um- ræðu um myndlist. virkilega djúp menn- ingarumfjöllun þarf sérhæfðan vettvang Þ röstur Helgason sagði að þegar hann kom inn í starf sitt sem dag- skrárstjóri Rásar 1 fyrir þremur árum hafi hann haft það að mark- miði að endurlífga menningarblaðamennsku og menningarmið- lun á Íslandi. Hann sagði það hins vegar taka tíma í stofnun á borð við Ríkisútvarpið, en þess væru þó farin að sjást merki, til dæmis með menningarþættinum Lestin sem hefði bæst við dagskrá Rásar 1 í vetur. Þröstur vitnaði í Birgi Andrésson myndlistar- mann sem sagði eitt sinn að á Íslandi væri fjallað um myndlist í útvarpi og bókmenntir í sjónvarpi. Hann sagði þetta hins vegar ekki vera alslæmt, kostur útvarpsins væri að þar gæfist tími og því ekki slæmt í sjálfu sér að fjalla um myndlist í útvarpi. Hins vegar þyrfti einnig að fjalla um myndlist í sjón- varpi og benti á að nú væri að hefja göngu sína nýr sjónvarpsþáttur um myndlist á RÚV, þátturinn Opnun. Hann tók undir með Einari Fal og Magnúsi og sagði hlutverk fjölmiðilsins vera að benda almennum notendum á það sem er að gerast í samfélaginu, útskýra og veita upplýsingar. Á sama tíma væri miðillinn einnig í samræðu við listamennina og galleríin. Hann lagði áherslu á að sú umræða gæti hins vegar aldrei orðið virkilega djúp í fjölmiðlum, hún þurfi á öðrum miðlum og vettvangi að halda. Vanda- málið á Íslandi væri hins vegar að slíkur vettvangur væri varla til. Að lokum boðaði Þröstur opnun nýs menningarvefjar RÚV þar sem öll menningarumfjöllun stofnunarinnar yrði aðgengileg, ritstjóri hafi verið ráðinn til að hafa umsjón með vefnum og stefnt væri á opnun á næstu dögum eða vikum. „Til að skrifa gagnrýni þarf visst hugrekki.“ Valtýr Pétursson var myndlistargagnrýnandi Morgunblaðsins í 36 ár og var málþingið haldið til heiðurs honum. Staða myndlistar- gagnrýni til umræðu Magnús Gestsson, Aðal- steinn Ingólfsson, Magnús Guðmundsson, Helga Óskarsdóttir, Einar Falur Ingólfsson, Þröstur Helga- son og Jón B.K. Ransu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.