Fréttablaðið - 30.10.2017, Síða 14
Handbolti „Fyrir utan fyrstu 20
mínútur í seinni leiknum var þetta
í heildina bara mjög jákvætt,“ segir
Sigursteinn Arndal, handboltasér-
fræðingur 365, um leikina tvo sem
íslenska landsliðið spilaði á móti
Svíum í síðustu viku. Sá fyrri vannst
en sá síðari um helgina tapaðist.
Sigursteinn lét nýverið af störfum
sem þjálfari U21 árs landsliðsins en
hann hefur á ferli sínum sem þjálf-
ari yngri landsliða stýrt mörgum
af ungu strákunum sem eru að fá
tækifæri með landsliðinu í síðustu
leikjum og fengu nú á móti Svíþjóð.
Kynslóðaskiptin eru komin og leik-
irnir tveir gegn Svíum lofa góðu.
„Það er gaman að sjá hvað við
erum komnir langt í rauninni. Það
er fátt búið að tala um meira en
þessi komandi kynslóðaskipti en
svo sáum við þarna að þetta verk-
efni er komið lengra en margir
héldu. Við höfum verið að mikla
þessi kynslóðaskipti fyrir okkur og
halda að þetta yrði svakalegt vesen
en við vissum samt að við værum
með marga flotta stráka sem hafa
Má ekki gleyma þeim bestu
Stórt skref var tekið í kynslóðaskiptum landsliðsins í handbolta um helgina þegar ungir og nýir menn
fengu mikið að spila gegn Svíum. Þeir njóta góðs af því að vera með heimsklassa leikmenn í kringum sig.
Janus Daði Smárason stýrði meira og minna sóknarleik íslenska liðsins um helgina en hann er kominn í stórt hlutverk hjá Geir Sveinssyni. Fréttablaðið/Eyþór
verið, meðal annars, að standa sig
vel með yngri landsliðunum,“ segir
Sigursteinn.
Heimsklassa menn mikilvægir
Tíu leikmenn úr Olís-deildinni voru
valdir í hópinn fyrir leikina tvo og
strákar sem eru tiltölulega nýfarnir
í atvinnumennsku eru komnir í stór
hlutverk.
„Þetta eru allt strákar sem þrátt
fyrir ungan aldur eru og voru í
stórum hlutverkum hjá liðum
sínum hérna heima og þeir tóku
fullt út úr því. Þess vegna eru þeir
á góðum stað í dag. Auðvitað eiga
sumir þarna margt eftir að læra en
það er nóg af hæfileikum þarna,“
segir Sigursteinn.
Hann bendir á að þrátt fyrir að
nýjabrumið sé spennandi megi ekki
gleyma reyndustu mönnum liðsins
sem eru algjör lykill í þessari upp-
byggingu.
„Það má ekki gleymast að við
erum ennþá með heimsklassa
leikmenn í Guðjóni Val og Aroni
Pálmarssyni. Það er þessum ungu
strákum svo mikils virði að hafa þá
í kringum sig. Þetta er ekki ósvipað
og var fyrir Gylfa og strákana í fót-
boltalandsliðinu að hafa Eið Smára
þarna. Guðjón kennir þessum strák-
um svo mikið og það var gaman að
heyra það frá honum hversu langt á
veg þessir ungu menn eru komnir,“
segir Sigursteinn.
þarf að selja Ými línuna
Maður seinni leiksins var vafalítið
Ýmir Örn Gíslason en Valsmaðurinn
var algjörlega magnaður í vörninni.
Strákurinn úr Olís-deildinni pakk-
aði saman stórstjörnum Svía og
sýndi að hann er meira en klár í
landsliðið og næstu skref á ferlinum.
„Hann hélt bara áfram að sýna
það sem hann hefur verið að gera
undanfarin misseri. Hann var algjör-
lega geggjaður í deildinni í fyrra,
hefur verið það líka núna, hann
var flottur í Evrópuleikjunum og
þegar hann fékk eldskírnina með
landsliðinu í júní. Það er ekki bara
að hann sé góður heldur er hann
svo skemmtilegur og mikill karakt-
er. Hann hefur fullt af hæfileikum
en það er þessi karakter sem gerir
svo mikið fyrir hann. Hann þrífst
á þessum barningi og látum,“ segir
Sigursteinn.
Valsmenn hafa verið að reyna að
gera hann að miðjumanni en flestir
áhugamenn um íslenska landsliðið
vilja sjá hann fara inn á línu.
„Hann var notaður á línunni í
sjö á móti sex og stóð sig frábær-
lega. Drengurinn þarf náttúrlega
að vilja spila á línunni en Vals-
menn þurfa bara að selja honum
þessa hugmynd. Okkur vantar fleiri
góða línumenn og hann gæti verið
alveg magnaður línu- og varnar-
maður sem myndi um leið fækka
skiptingum hjá okkur. Við höfum
undanfarin ár verið með of marga
í liðinu sem geta bara spilað annað
hvort,“ segir Sigursteinn Arndal.
tomas@365.is
Snæfell - Valur 71-78
Snæfell: Kristen Denise McCarthy 25/14
fráköst/7 stolnir, Anna Soffía Lárusdóttir
15, Sara Diljá Sigurðardóttir 12, Rebekka
Rán Karlsdóttir 12, Berglind Gunnarsdóttir
5, Andrea Bjort Ólafsdottir 2.
Valur: Hallveig Jónsdóttir 21/7 fráköst,
Alexandra Petersen 18/10 fráköst/7 stoð-
sendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 14,
Dagbjört Dögg Karlsdóttir 10, Ragnheiður
Benónísdóttir 7, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir
3/8 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 3/8 frá-
köst, Ásta Júlía Grímsdóttir 2.
Njarðvík - breiðablik 60-75
Njarðvík: Shalonda R. Winton 30/14
fráköst, Hrund Skúladóttir 15, Ína María
Einarsdóttir 6, Björk Gunnarsdótir 5, Linda
Þórdís Barðdal Róbertsdóttir 4/10 fráköst.
breiðablik: Ivory Crawford 34/17 fráköst,
Telma Lind Ásgeirsdóttir 11, Aldís Erna Páls-
dóttir 10, Sóllilja Bjarnadóttir 10, Auður Íris
Ólafsdóttir 5, Lovísa Falsdóttir 3, Isabella
Ósk Sigurðardóttir 2/10 fráköst.
Haukar - Keflavík 81-78
Haukar: Cherise Michelle Daniel 38/12 frá-
köst, Helena Sverrisdóttir 22/15 fráköst/6
stoðsendingar/6 stolnir, Rósa Björk Péturs-
dóttir 10, Fanney Ragnarsdóttir 8, Þórdís
Jóna Kristjánsdóttir 3.
Keflavík: Brittanny Dinkins 23/13 frá-
köst/13 stoðsendingar/6 stolnir, Þóranna
Kika Hodge-Carr 17/8 fráköst, Thelma Dís
Ágústsdóttir 13/9 fráköst, Emelía Ósk
Gunnarsdóttir 12, Birna Valgerður Benón-
ýsdóttir 5, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 4/7
fráköst, Kamilla Sól Viktorsdóttir 2, Erna
Hákonardóttir 2.
Stjarnan - Skallagr. 71-77
Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 20/11
fráköst/9 stoðsendingar, Bríet Sif Hinriks-
dóttir 14, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 13/7
fráköst, María Lind Sigurðardóttir 10, Ragna
Margrét Brynjarsdóttir 8/14 fráköst, Jenný
Harðardóttir 3, Bryndís Hanna Hreins-
dóttir 3.
Skallagrímur: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir
29/10 fráköst, Carmen Tyson-Thomas
23/20 fráköst/9 stoðsendingar, Jóhanna
Björk Sveinsdóttir 18, Guðrún Ósk Ámunda-
dóttir 5, Bríet Lilja Sigurðardóttir 2.
Staðan: Valur 10, Haukar 10, Stjarnan 8,
Skallagrímur 6, Breiðablik 6, Keflavík 4,
Snæfell 4, Njarðvík 0.
Nýjast
Domino’s-deild kvenna
Ýmir hélt bara
áfram að sýna það
sem hann hefur verið að gera
undanfarin misseri.
Sigursteinn Arndal
Í dag
19.50 burnley - Newcastle Sport
Orri Frá FrAM á nÝTT ár
Orri Freyr Gíslason, línu- og
varnarmaður Íslands- og bikar-
meistara Vals í Olís-deild karla í
handbolta, fór í aðgerð á þumal-
fingri á laugardaginn og spilar ekki
meira á þessu ári. Þetta er mikið
áfall fyrir Valsliðið enda Orri einn
albesti varnarmaður deildarinnar
og lykilmaður hjá Val. „Ég hitti
lækni á fimmtudaginn og hann
sagði mér að liðbandið í þuml-
inum væri orðið svo skaddað að ég
fór beint í aðgerð. Hann skar þetta
upp og saumaði liðbandið,“ segir
Orri Freyr. Hann verður í gifsi í
sex vikur og svo kemur í ljós hvað
gerist eftir þann tíma. „Ég er búinn
fram að áramótum. nú fer ég bara
inn í persónulegt þriggja mánaða
undirbúningstímabil. Lífið
leikur alveg við
mig,“ segir
Orri Freyr
léttur. Valur
er í öðru sæti
Olís-deildar-
innar með
ellefu stig, stigi
á eftir FH sem á
leik til góða.
3 0 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á n U d a G U r14 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
3
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
1
8
-2
9
D
C
1
E
1
8
-2
8
A
0
1
E
1
8
-2
7
6
4
1
E
1
8
-2
6
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K