Fréttablaðið - 30.10.2017, Side 40

Fréttablaðið - 30.10.2017, Side 40
Það er hægt að fylla baguette brauð á margvíslegan hátt og útbúa heila máltíð. Ein hug- mynd er að skera það langsum að ofan og fylla það. Hér er uppskrift. 4 baguette 8 egg 4 msk. mjólk 8 sneiðar beikon 2 dl rifinn ostur 2 msk. graslaukur 8 basilblöð Hitið ofninn í 185°C. Skerið op í brauðið eftir því endilöngu að ofanverðu. Takið örlítið af brauðinu úr sárinu, þannig að það líti út eins og bátur. Steikið beikon og skerið síðan í litla bita. Hrærið saman eggin og bætið mjólk saman við, osti og graslauk. Hellið blöndunni í brauðið og bakið í 15 mínútur eða þar til eggin stífna. Látið aðeins kólna áður en skorið er í bita. Dreifið niðurskornum basilblöðum yfir. Heitt brauð með eggjum Hundar gætu verið að reyna að segja okkur eitt- hvað með svipbrigðum. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY Samkvæmt nýrri rannsókn reyna hundar að sýna mannfólki tilfinningar sínar með svip- brigðum. Rannsóknin leiddi í ljós að hundar sýna mun meiri svipbrigði ef manneskja horfir til þeirra en ef ekki. Áður var talið að hundar sýndu svipbrigði ósjálfrátt út frá tilfinningum sínum og væru ekki að reyna að tjá sig. Rannsóknin sýndi að hundar eru ólíklegir til að sýna tilfinningar ef þeir eru bara að horfa á mat, þó þeir séu spenntir fyrir honum. Þeir sýna mun meiri svipbrigði ef manneskja horfir til þeirra, sem gefur í skyn að þeir séu að reyna að segja okkur eitthvað. 24 hundar af ýmsum kynjum á aldrinum eins til tólf ára tóku þátt í rannsókninni. Svipbrigði hundanna voru mæld með tölvukerfi sem nemur þau áreiðanlega út frá vöðvahreyfingum í andliti og borin voru saman svipbrigði hunda sem var ýmist horft á, litið frá eða þeir hunds- aðir alveg. Algengustu svipbrigði hundanna voru að lyfta brúnum svo augun virðist stærri, svokölluð hvolpaaugu. „Niðurstöðurnar styðja þá hugmynd að hundar séu næmir fyrir athygli mannfólks og að svipbrigðin séu hugsanlega tilraunir til tjáskipta, ekki bara tilfinningaleg viðbrögð, eins og áður var talið,“ segir Dr. Juliane Kaminski, sem leiddi rannsóknina. Hún telur hugsanlegt að svip- brigðin hafi þróast samhliða tamningu hunda. Hundar tjá sig með svipbrigðum Það þarf víst engan snilling til að semja góða hryllingssögu. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY Shelley A.I. er gervigreind sem var sköpuð af vísinda-mönnum við MIT háskólann í Bandaríkjunum. Hún skrifar hryllingssögur og er furðu góð í að láta hárin rísa. Shelley er skírð í höfuðið á Mary Shelley, höfundi sögunnar um Frankenstein. Shelley er reikni- rit sem les hryllingssögur sem birtast á Reddit undir /r/nosleep og kennir sjálfri sér að skrifa sögur af sama toga. Shelley hefur komið á óvart með árangri sínum. Í raun er Shelley ekki svo frum- leg að geta skapað eigin sögu frá grunni. Shelley dregur innblástur frá stuttum setningum eða texta- brotum og spinnur svo sína eigin sögu. Hryllingsaðdáendur geta líka veitt henni innblástur með því senda henni texta í gegnum Twitter. Hún þarf að fá hugmyndir frá okkur mannfólkinu til að geta kennt sjálfri sér að búa til texta og orðasambönd, byggja upp spennu, skapa hápunkta, ná fram rétta and- anum og fleira. Það er kannski útaf þessum skorti á frumleika sem reiknirit eins og Shelley ná meiri árangri við að skrifa hryllingssögur en aðrar gerðir af sögum. Hryllingssögur þurfa skelfi- legar aðstæður í ógnvekjandi tón með réttu orðfæri, dularfullum persónum og hraðri framvindu, en ekki flókna baksögu eða góðar útskýringar. Með öðrum orðum þarf ekki að vera Nóbelsskáld til að láta fólki renna kalt vatn milli skinns og hörunds. Gervigreind skrifar ógnvekjandi hryllingssögur GIACOMO PUCCINI #islenskaoperan H Ö N N U N : H G M MIÐASALA Á OPERA.IS 28. OKTÓBER · 5. NÓVEMBER · 11. NÓVEMBER AUKASÝNING 18. NÓVEMBER ÖRFÁ SÆTI LAUS! ,,TILFINNINGIN VAR ÓSVIKIN OG KRISTJÁN BRÁST EKKI AÐDÁENDUM SÍNUM“ ,,BÆÐI SÖNGUR OG LEIKUR ÓLAFS KJARTANS VAR, FRÓMT SAGT, FRÁBÆR“ ,,EIN ÞEKKTASTA ARÍA VERKSINS ,,VISSI D ÁRTE...” VAR ÓVIÐJAFNANLEGA FLUTT AF CLAIRE RUTTER” ,,BJARNI FRÍMANN BJARNASON VAR STJARNA KVÖLDINS“ MORGUNBLAÐIÐ/IB 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R 3 0 -1 0 -2 0 1 7 0 5 :0 7 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 1 8 -3 3 B C 1 E 1 8 -3 2 8 0 1 E 1 8 -3 1 4 4 1 E 1 8 -3 0 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.