Fréttablaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 30.10.2017, Blaðsíða 46
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Ágúst Jóhannsson, húsgagnasmiður, Smárarima 26, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans, 19. október síðastliðinn. Útför hans verður gerð miðvikudaginn 1. nóvember í Grafarvogskirkju klukkan 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeir sem vilja minnast hins látna er bent á líknar- og hjálparstofnanir. María Haraldsdóttir Ólafía Ágústsdóttir María Ágústsdóttir Guðjón Hauksson Anna Ágústsdóttir Andrés Magnússon og afabörn. Móðir okkar Guðrún Guðlaugsdóttir frá Hellissandi, lést 20. október á dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigrún Fjóla Sigþórsdóttir Böðvar Haukdal Jónsson Pétur Ingi Vigfússon Svala Gunnarsdóttir María Anna Vigfúsdóttir Karl Friðrik Thomsen Fjalar Vigfússon Sigurlaug Guðmundsdóttir Sigþóra Vigfúsdóttir Hrönn Vigfúsdóttir ömmu og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorbjörn Guðmundsson blaðamaður, Kópavogstúni 5, lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 1. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vilja minnast hans láti líknarfélög njóta þess. Sigurrós Sigurðardóttir Kristjana Rós Þorbjörnsdóttir Örn Jóhannsson Guðmundur Þorbjörnsson Jóhanna Björk Briem barnabörn og barnabarnabörn. 1451 Kristófer Kólumbus landkönnuður fæðist. 1936 Mikið tjón verður vegna sjávarflóða á Suðvesturlandi. 1953 Mörður Árna- son stjórnmálafræð- ingur fæðist. 1960 Diego Mara- donna knattspyrnu- maður fæðist. 1970 Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver- andi ráðherra, fæðist. 2006 Síðasta skipið er afgreitt úr Daníelsslipp í Reykjavíkurhöfn. 2008 Íslenska kvenna- landsliðið í knattspyrnu tryggir sér þátttökurétt á EM í fyrsta sinn. Merkisatburðir Þetta er mikill heiður,“ segir Hreiðar Ingi Þorsteinsson sem hefur verið ráðinn stjórnandi kórs Mennta-skólans við Hamrahlíð. Þorgerður stýrði síðustu kóræfingu sinni á föstudag en Hreiðar Ingi tekur við á morgun, þriðjudag. „Það sem ég er svo þakklátur fyrir er að þetta hentar mjög mikið því sem ég hef verið að stefna að, sem er að kynna fyrir fólki krefjandi kórverk. Þannig hefur það verið í Hamrahlíðinni og ég myndi gjarnan vilja halda áfram að gera það með kórnum, halda við þessum arfi sem við eigum,“ segir Hreiðar Ingi. Hreiðar segist hafa fylgst vel með kór Menntaskólans við Hamrahlíð undan- farin ár. „Það hafa allir fylgst með kór- unum hennar Þorgerðar. Þetta er þannig kór að mann langar alltaf til að fylgjast með því sem er í gangi þar, það ríkir ferskur andi með nýrri, fallega sunginni tónlist. Þar er ótrúlegur metnaður,“ segir Hreiðar Ingi. Það henti sér mjög vel að vera í kringum krefjandi kórverkefni. „Sjálfur er ég tónskáld og vinn við að skrifa nýja tónlist og það smellpassar þess vegna fyrir mig að vera í þessari stöðu.“ Þorgerður Ingólfsdóttir var kórstjóri í Hamrahlíð í 50 ár. Glaður í bragði segist Hreiðar Ingi ætla að reyna að jafna það. „Látum reyna á það,“ segir hann og hlær. Þótt Hreiðar Ingi sé ekki orðinn fertugur hefur hann skrifað fjöldamörg tónverk sem hafa notið vinsælda. „Níutíu pró- sent af því eru kórverk,“ segir hann og bætir við að í næsta mánuði muni Kór Langholtskirkju halda tónleika þar sem mörg kórverka hans verði flutt. jonhakon@frettabladid.is Hreiðar tekur við keflinu af Þorgerði í Hamrahlíð Tónskáldið Hreiðar Ingi Þorsteinsson tekur við kór Menntaskólans við Hamrahlíð á morgun. Hann segir það smellpassa sér að vera með krefjandi kórverkefni og hlakkar til að taka við. Hreiðar Ingi stefnir á að jafna met Þorgerðar, sem stýrði MH-kórnum í 50 ár. Hreiðar Ingi Þorsteinsson tekur við kór Menntaskólans við Hamrahlíð af Þorgerði Ingólfsdóttur. Hún stýrði kórnum í fimmtíu ár. FréttablaðIð/EyÞór Sjálfur er ég tónskáld og vinn við að skrifa nýja tónlist og það smellpassar þess vegna fyrir mig að vera í þessari stöðu. Þann 30. október fyrir 76 árum var lokið við höggmyndir fjögurra Bandaríkjaforseta á Rushmore- fjalli í Suður-Dakóta í Bandaríkjunum. Verkefnið var stórt en hugmyndin er rakin til sagnfræðingsins Doane Robin- son. Upphaflega vildi Robinson höggva andlit frægðarmenna í Needles-fjall rík- isins en myndhöggvarinn og verkefna- stjórinn Gutzon Borglum hafnaði því vegna þess að fjallið þyldi ekki verkið. Þá voru frumbyggjar afar andvígir því að nokkuð yrði höggvið í fjallið. Robinson vildi á sínum tíma höggva andlit hetja bandaríska vestursins í fjallið en ekki forseta. Til að mynda landkönnuðanna Lewis og Clark sem og Buffalo Bill Cody. Fyrrnefndur Borglum hafnaði því einnig og fór fram á að fyrir valinu yrðu fjórir vinsælir Bandaríkja- forsetar. Svo fór að fyrir valinu urðu George Washington, fyrsti forseti Banda- ríkjanna, Thomas Jefferson, höfundur sjálfstæðisyfirlýsingarinnar, Theodore Roosevelt, leiðtogi Bandaríkjanna á miklu hagvaxtarskeiði og maðurinn á bak við Panamaskurðinn, og Abraham Lincoln, sem sameinaði Bandaríkin eftir borgarastríðið og afnam þrælahald. Fjallið er nú fjölsóttur ferðamanna- staður og sækja fleiri það heim ár hvert. Til að mynda heimsóttu 2,3 milljónir Rushmore-fjall árið 2010, 1,8 milljónir árið 2000 og 1,7 milljónir árið 1990. – þea Þ eTTA G e R ð I ST : 3 0 . o KTó B e R 1 9 4 1 Lokið við höggmyndir á Rushmore-fjalli rushmore-fjall. Mynd/COrbIS 3 0 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r18 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 3 0 -1 0 -2 0 1 7 0 5 :0 7 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 1 8 -4 2 8 C 1 E 1 8 -4 1 5 0 1 E 1 8 -4 0 1 4 1 E 1 8 -3 E D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.