Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VIÐ HÖFUM TÆKIFÆRI
TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR
ATBURÐ SEM FELUR Í SÉR
OFBELDI.
NOTUM VIÐ TÆKIFÆRIN? Opið í dag 11-16
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Jakkar
kr. 8.900.-
Str. S-XXL
Litir: bleikt, grátt,
svart,blátt
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
VERÐHRUN
afsláttur af
fatnaði og
skóm!
60%
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Kringlunni 4c – Sími 568 4900Við höfum lækkað vöruverð í samræmi við tolla og gengi
NÝ SENDING
AF FLOTTUM
VORVÖRUM
Afmælisrit Davíðs Þórs Björgvinssonar
Skráning á heillaóskaskrá
Í tilefni af sextugsafmæli Dr.
Davíðs Þórs Björgvinssonar,
prófessors og fyrrum dómara
við Mannréttindadómstól
Evrópu, gefur Hið íslenska
bókmenntafélag út afmælisrit
honum til heiðurs.
Þeir sem vilja heiðra Davíð
Þór á þessum tímamótum
geta fengið nöfn sín skráð
á heillaóskaskrá, Tabula
Gratulatoria, sem birtist
fremst í ritinu.
Nánari upplýsingar:
afmaelisritdthb
Hægt er að skrá sig með því að senda
póst á svala@ru.is eða í síma 893-0910.
Samtökin ’78
boða til þjóð-
fundar hinsegin
fólks í dag. Verð-
ur fundurinn
haldinn undir yf-
irskriftinni Sam-
takamátturinn
2017. Samtökin héldu einnig slíkan
þjóðfund árið 2013.
María Helga Guðmundsdóttir,
formaður samtakanna, segir í til-
kynningu að markmið fundarins sé
ekki síst að móta stefnu félagsins til
lengri tíma. Haft er eftir Helgu
Baldvinsdóttur Bjargardóttur,
framkvæmdastjóra félagsins, að frá
árinu 2013 hafi Ísland dregist aftur
úr í alþjóðlegum samanburði á rétt-
indum hinsegin fólks,
Fundurinn verður haldinn í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Húsið verður opnað klukkan 13,
dagskrá hefst klukkan 13.30 og
fundurinn stendur til klukkan 17.
Þjóðfundur hinsegin
fólks haldinn í dag
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ágúst Einarsson, fyrrverandi pró-
fessor, rektor og alþingismaður,
mun í dag afhenda Bókasafni
Vestmannaeyja fyrsta skammtinn
úr stórri bókagjöf sinni til safns-
ins. Bækurnar gefur hann til
minningar um föður sinn, Einar
Sigurðsson, útgerðar- og athafna-
mann í Vestmannaeyjum, og af-
hendir þær á 111. afmælisdegi
hans. Bækur þessar eru meðal
annars allar útgáfur Biblíunnar
sem prentaðar voru á biskupssetr-
unum í Skálholti og á Hólum, það
er Guðbrandsbiblía frá 1584, Þor-
láksbiblía sem prentuð var 1644
og útgáfa af Steinsbiblíu úr Skál-
holti frá 1728.
„Kolfágætar bækur“
„Þetta er einstök gjöf og flestar
bókanna sem við fáum eru kol-
fágætar. Þetta breytir bókasafn-
inu okkar í Eyjum í öflugt fágæt-
issafn á landsvísu og ætlunin er að
gera ritin sýnileg og aðgengileg
bæjarbúum og öðrum sem vilja sjá
margar af helstu perlum bóksög-
unnar. Jafnframt er á prjónunum
að efna til viðburða þar sem efni
ritanna verður kynnt,“ segir Kári
Bjarnason, forstöðumaður Safna-
húss Vestmannaeyja.
Af öðru en Biblíunum sem
leynist í gjöfinni, sem er um 1.500
bækur, má nefna stafrófskver frá
1753 og latínurit frá 1556 og það
er hvergi til í opinberum söfnum
og stafrófskverið aðeins á Lands-
bókasafni. Mikið úrval annarra fá-
gætra höfuðrita íslenskrar bók-
mennta er þarna einnig að finna,
svo og frumútgáfur fyrstu bóka
helstu þjóðskáldanna, svo sem
Benedikts Gröndals, Davíðs Stef-
ánssonar, Gunnars Gunnarssonar
og Matthíasar Jochumssonar.
Einnig heildstæð söfn tímarita,
allt í frumútgáfum og þar má
nefna Fjölni, Íslensk sagnablöð,
Klausturpóstinn, Ný félagsrit,
Minnisverð tíðindi og Sunnanpóst-
inn. Margt af þessu ritmáli er
hvergi til nema á Landsbókasafni
Íslands - Háskólabókasafni.
Minningin ekki betur heiðruð
Bókagjöf Ágústs Einarssonar
verður skráð í Gegni, skráningar-
kerfi bókasafna undir formerkjum
Ágústssafns. Verður það uppi-
staðan í fágætissafni bókasafnsins
í Eyjum á líkan hátt og safn Dav-
íðs Stefánssonar er á Akureyri og
safn sr. Eiríks J. Eiríkssonar
Þingvallaprests í Bókasafni Ár-
borgar.
„Ég hef safnað bókum alveg síð-
an ég var ungur maður og safnið
er því orðið stórt. Mér finnst við
hæfi að gefa það til Vest-
mannaeyja,“ segir Ágúst Ein-
arsson. Bókaáhugann segir Ágúst
m.a. kominn frá föður sínum, Ein-
ari Sigurðssyni (1906-1977), sem á
sinni tíð var umsvifamestur ís-
lenskra útgerðarmanna. En Einar
var líka menningarlega sinnaður;
sjálfur átti hann mikinn fjölda
bóka og í Eyjum setti hann á
laggirnar bókasafn fyrir starfsfólk
sitt hjá Hraðfrystistöð Vest-
mannaeyja. „Mér finnst minning
föður míns varla betur heiðruð en
að gefa bækurnar mínar til Eyja,
fólki þar til fróðleiks og ánægju,“
segir Ágúst.
Einstakt bókasafn
til Vestmannaeyja
Ágúst Einarsson gefur Bókasafni Vestmannaeyja 1.500
fágæt rit í minningu föður síns, Einars Sigurðssonar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bókamaður Ágúst Einarsson með fáeinar bækur úr safni sínu. Í baksýn er
mynd af föður hans. Bókaáhugann segir Ágúst m.a. kominn frá föður sínum.