Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 12
Þegar tískuvikan gengur í garð í
stóra eplinu New York í Bandaríkj-
unum, þá ætlar allt vitlaust að verða
og hönnuðir keppast um að vekja
sem mesta athygli. Hönnuðurinn
Richie Rich, sem hér sést með rauða
húfu meðal fyrirsæta á nýlegri sýn-
ingu sinni, tók þetta alla leið og lék
sér með hugmyndir okkar um konur
og karla. Hann lét vöðvastælta karl-
menn klæðast kjólum, pilsum og öðr-
um flíkum sem við erum vön að sjá
konur klæðast. Vakti þetta þó nokkra
lukku, enda fátt eins hressandi og að
hrista upp í viðteknum venjum, tísk-
an á jú að ögra og vekja okkur. Richie
hefur komið víða við. Auk þess að
hanna tískufatnað, var hann sjón-
varpsstjarna, söngvari og sveif á
skautum.
Á tískupöllunum í New York er mikið um dýrðir og ögranir hverskonar
Richie Rich
leikur sér með
kynhlutverkin
AFP
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017
samstarfi við borgaryfirvöld í Mexíkó-
borg sett á laggirnar sérstaka kvenna-
strætóa fyrir konur, í Nýju Delí hafa
borgaryfirvöld bætt götulýsingu og
breikkað gangstéttir og fyrir tilstilli
verkefnisins í Ríó de Janeiro var búið til
snjallsímaforrit með staðsetningartæki
með upplýsingar um næstu lögreglustöð
og hvert konur geti leitað séu þær beittar
ofbeldi,“ segir Inga Dóra og bætir við að
það sé ósk UN Women á Íslandi að lands-
menn taki þátt í að auka öryggi kvenna
og stúlkna í borgum um allan heim með
því að kaupa Fokk ofbeldi húfuna, og
mótmæla ofbeldi á táknrænan hátt með
því að setja hana á kollinn.
„Ágóðinn rennur til fyrrnefnds
verkefnis, UN Women Öruggar borgir
(Safe Cities Global Initiative), en það er
gaman að geta þess að fyrirtækið Voda-
fone styrkti framleiðsluna og fyrir vikið
rennur allur ágóði til verkefnisins.“
Fokk ofbeldi húfan er ætluð full-
orðnum. Orðalagið er vísvitandi ögrandi
og ætlað að hreyfa við fólki. Ef orðalagið
fer fyrir brjóstið á fólki þá er mikilvægt
að muna að ein af hverjum þremur kon-
um verða fyrir ofbeldi á lífsleiðinni.
Fokk ofbeldi húfan fæst í verslun
Vodafone í Kringlunni og á vefsíðunni
www.unwomen.is dagana 10.-24. febrúar.
Húfan kostar 4.500 krónur og aðeins
til í takmörkuðu upplagi.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Það er með stolti sem UN Women á Íslandi kynnir nýjaFokk ofbeldi húfu, en húfunnier ætlað að vekja fólk til vit-
undar um hið stöðuga ofbeldið sem konur
og stelpur þurfa að þola á almennings-
svæðum í borgum veraldarinnar. Inga
Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra
UN Women á Íslandi, segir að ofbeldi
gegn konum, stúlkum og börnum í
almenningsrýmum sé vandamál um allan
heim. „Samkvæmt rannsóknum á vegum
Sameinuðu þjóðanna eru konur sem búa
á þéttbýlissvæðum tvöfalt líklegri til að
verða fyrir ofbeldi, sérstaklega í fátæk-
ustu löndum heims. Meira að segja í
öruggustu borgum heims eins og hér hjá
okkur í Reykjavík, þá verða konur fyrir
ofbeldi af ýmsu tagi fyrir það eitt að vera
konur. Víða um heim er slíkt ofbeldi dag-
legt brauð sem hamlar konum að lifa eðli-
legu lífi eins og til dæmis að ferðast til og
frá vinnu, ganga í skóla eða eiga sér fé-
lagslíf.“
Inga Dóra segir að með verkefninu
Öruggar borgir (Safe Cities Global
Initiative) vinni UN Women að því að
gera borgir heimsins öruggari fyrir kon-
ur og stúlkur með sértækum lausnum út
frá svæðisbundnum veruleika.
„Borgaryfirvöld í 22 löndum hafa
heitið því að gera borg sína öruggari og
er markmiðið að skapa konum, stúlkum
og börnum öruggt líf í borgum án ótta við
ofbeldi. Til dæmis hefur UN Women í
Stöndum saman gegn ofbeldi
UN Women fór af stað með herferðina Fokk ofbeldi í gær
þegar ný FO húfa var sett í sölu. Í tilefni af átakinu tók
ljósmyndarinn Saga Sig myndir af ýmsum þekktum og
óþekktum aðilum með húfuna. Myndirnar eru litríkar
og tákna margbreytileika samfélagsins og hvernig við öll
saman berjumst gegn ofbeldinu og getum breytt
samfélaginu í réttlátara samfélag.
Þau bera FO húfuna með stolti Eva María Jónsdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Toshiki Toma og systkinin Auðunn og Hrafnhildur Lúthersbörn, settu öll upp húfuna góðu.
Ljósmyndir/Saga Sig
1 af hverjum 3 konum í heim-
inum hefur þurft að þola of-
beldi. Ein af hverjum fimm
þurft að þola kynferðislegt of-
beldi.
99,3 prósent kvenna og
stúlkna á þéttbýlissvæðum í
Egyptalandi hafa upplifað kyn-
ferðislega áreitni og um helm-
ingur þeirra verður fyrir áreitni
daglega.
95 prósentum kvenna í Nýju Delí á Indlandi finnst þær
ekki öruggar á götum úti. 73 prósent þessara kvenna upp-
lifa ekki einu sinni öryggi í sínu nánasta umhverfi.
Um 70 prósent íslenskra kvenna upplifa sig óöruggar í
miðborg Reykjavíkur að næturlagi.
Yfir 600 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilis-
ofbeldi er ekki refsivert.
Konu er nauðgað á 26 sekúndna fresti í Suður-Afríku.
Í Brasilíu deyja 10 konur daglega vegna heimilisofbeldis.
Ástæður þess að UN
Women vinnur að því að
gera borgir öruggari
EIN AF HVERJUM ÞREMUR KONUM
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu