Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 18

Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 HERRASKÓR Skechers Ellington spariskór fyrir herra með Memory Foam innleggi. Fást einnig í brúnu. Stærðir 41-48,5. VERÐ 15.995 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Enn eina ferðina hafa alþingismenn kallað eftir betra skipulagi á þing- störfunum. Í níu mínútna löngum umræðum um fundarstjórn forseta nú í vik- unni var sérstaklega rætt um liðinn „Störf þingsins“, sem er á dagskrá tvisvar í viku. Af umræðunum má ráða að þingmenn geti byrjað að skrá sig á mælendaskrá með tölvu- pósti klukkan átta að morgni. Mæl- endaskráin er fljót að fyllast og því vissara að hafa snör handtök. Minnir þetta fyrirkomulag á þann hátt sem hafður er hjá mörgum golfklúbbum þegar kylfingar eru að panta sér rástíma. Þingmaður Samfylkingar, Oddný G. Harðardóttir, lýsti raunum síns flokks: „En mig langar sérstaklega að tala um liðinn störf þingsins, hvern- ig við skráum okkur inn á þann lið. Ég get sagt frá því að við sátum þrjú í þingflokki Samfylkingarinnar í þingflokksherberginu. Við vorum komin þangað 10 mínútur fyrir átta því að við áttum að fara á annan fund klukkan átta en vildum gjarn- an skrá Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar, inn svo hann gæti talað um að Gylfi Þ. Gíslason hefði orðið 100 ára í dag ef hann hefði lifað. Við biðum eftir laginu sem kemur á undan átta-fréttunum í Ríkisútvarpinu. En í morgun var lagið of seint. [Hlátur í þingsal]. En við áttuðum okkur á því og ýttum á „send“ og hann var númer níu í röðinni. Klukkan var bara rétt nokkrar sekúndur yfir átta. Þetta er eiginlega bara brandari, frú for- seti.“ Krakkar skríðandi yfir hausinn Píratinn Björn Leví Gunnarsson hóf umræðuna um fundarstjórn for- seta og hafði þetta að segja m.a: „Virðulegi forseti. Mig langar til að minnast aðeins á fundarliðinn störf þingsins. Þess vegna var ég að reyna að komast að hérna áðan þegar störf þingsins voru. Það virk- ar þannig að klukkan átta þarf að senda tölvupóst til að panta tíma í störfum þingsins. Hjá mörgum okk- ar er það sá tími þar sem við erum með krakka skríðandi yfir hausinn á okkur og erum að reyna að koma þeim í skólann. Það er mjög flókið að ná þessu öllu saman akkúrat á þeim tíma. Það er líka mjög mikið misvægi ef maður stillir það þannig að pósturinn sendist sjálfkrafa, þá er þetta bara orðið eins og að kasta teningi.“ Þyrfti að straumlínulaga Jón Steindór Valdimarsson í Við- reisn er nýr þingmaður. Svona blasti nýr vinnustaður við honum: „Frú forseti. Það er alveg óhætt að taka undir það að það er svolítið sérkennilegt að koma inn á þennan stað, sem ég vil nú ekki kannski kalla vinnustað, en engu að síður erum við að starfa hérna saman. Maður áttar sig á því að eðli þing- starfa er dálítið annað en að starfa í fyrirtæki þar sem stjórn fer með stjórn fyrirtækisins og menn vita nokkurn veginn hvað þeir eiga að gera. En ég vil taka undir það að það væri voða gott ef hægt væri að straumlínulaga þetta örlítið. En ég hef verið utan þings lengi og kann- ast einhvern veginn við umræðuna. Hún virðist vera alveg nákvæmlega sú sama á hverju einasta þingi, sama hverjir eru á þingi og sama hverjir stjórna þinginu, þannig að kannski er þetta bara ekki hægt.“ Forseti Alþingis, Unnur Brá Konráðsdóttir, lauk umræðunni: „Forseti hefur móttekið skilaboð þingmanna og vill koma því á fram- færi að forseti hefur óskað eftir til- nefningum í þingskapanefnd frá öll- um þingflokkum þar sem farið verður yfir með hvaða hætti við viljum mögulega íhuga breytingar á þingsköpum.“ Voru of sein að ýta á takkann „send“  Þingmenn slást um að fá að tala í „Störfum þingsins“ Morgunblaðið/Eggert Björn Leví Það er mjög flókið að ná þessu öllu saman akkúrat á þeim tíma. Frá áramótum hefur Hringurinn veitt styrki til tækjakaupa á Barna- spítala Hringsins og Landspítala upp á 20,5 milljónir króna. Stærsti styrkurinn, tæpar 13 milljónir, er til vökudeildar vegna endurnýjunar á gjörgæslukerfi en m.a. verða keyptir 14 nýir gjör- gæsluvagnar. Hjarta- og brjósthols- skurðlækningar á LSH við Hring- braut fengu 4,2 milljónir til að kaupa blóðstorkumæli. Tækið gerir kleift að mæla nákvæmlega hvort og þá hvaða efni vanti til eðlilegrar blóð- storku hjá sjúklingum sem er að blæða eða eru í aukinni hættu á að blæða. Skurðstofa E-5 á LSH Fossvogi fékk 3,4 milljónir kr. til að kaupa linsur til aðgerða á eyrum barna og berkjuspeglunartæki. Tækið er t.d. notað til að að sækja aðskotahluti í lungnaberkjur, skoða lungnabygg- ingu eða gera á þeim aðgerðir. Einn- ig nýtast tækin þegar illa gengur að tryggja loftveg barna við svæfingu. 20 milljóna styrkir frá Hringnum Barnaspítalinn Hringurinn hefur veitt myndarstyrki frá áramótum. Borgarráð hefur staðfest álit nafna- nefndar sem lagðist gegn því að heiti Hallsvegar í Grafarvogi yrði breytt í Fjölnisbraut. Hugmyndin að nafnbreytingunni er upphaflega komin frá Hverfisráði Grafarvogs, sem vildi tengja nafn götunnar við íþróttafélag hverfisins, Fjölni. Rökin voru m.a. þau að vegurinn tengdi stóran hluta Graf- arvogs við helstu íþrótta- og frí- stundamannvirki hverfisins. Meðal annars lægi vegur þessi meðfram keppnisíþróttavelli og sundlaug við Dalhús. Nafnanefndin kom saman í byrjun árs og fjallaði um þetta mál og fleiri. Fundinn sátu Ármann Jakobsson, Guðrún Kvaran, Borghildur Sturlu- dóttir og Nikulás Úlfar Másson. Nöfn hluti af þróunarsögunni Nafnanefndin segir í greinargerð með hinni neikvæðu umsögn að heiti gatna sé hluti af þróunarsögu Reykjavíkur og myndi því stóran kafla í safni örnefna í landi Reykja- víkur. Það sé að öllu jöfnu ekki talið rétt að breyta götuheitum og teljist þau rök að um mikilvæga starfsemi sé að ræða ekki nægjanleg ástæða til þess að breyta eldri götuheitum. Ef af þessari breytingu yrði skap- aðist slæmt fordæmi, þar sem vænta mætti að mörg starfsemi teldi sig til þess komin að eftir henni yrði nefnd gata í Reykjavík. Þegar tillagan um nafnbreytingu var til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsráði var fulltrúi Fram- sóknar og flugvallarvina, Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir, henni með- mælt. Í bókun benti hún m.a á fordæmi, sem væri heitið Fylkisvegur. Þá minnti hún enn fremur á að nafni götunnar Bratthöfða hefði á sínum tíma verið breytt í Svarthöfða og þar hefði verið vitnað í nafn í frægri bíó- myndaröð. Á sama fundi nafnanefndar gerði hún tillögu um að torg á horni Póst- hússtrætis og Tryggvagötu yrði nefnt Bæjartorg. Í greinargerð segir að árið 1884 hafi fyrsta bryggjan á vegum yfir- valda í Reykjavík verið byggð. Bryggja þessi lá beint út frá Póst- hússtræti og var hún byggð á þeirri hugsjón að vera fyrsta bryggjan sem almenningu hefði frjálsan aðgang að. Bryggjan fékk heitið Bæjar- bryggjan en síðar var farið að kalla hana Steinbryggjuna. Féll þá nafn Bæjarbryggju í gleymskunnar dá. Þess má í lokin geta að torg þetta er eflaust þekktast fyrir þá sök að þar stendur einhver frægasti pylsu- vagn í heimi, Bæjarins bestu. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Ófeigur Fjölnisvöllur Félagið fær ekki götuheiti í sínu nafni eins og óskað var eftir. Nafnanefnd lagðist gegn Fjölnisbraut  Nafnbreyting gæti skapað fordæmi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.