Morgunblaðið - 11.02.2017, Síða 25

Morgunblaðið - 11.02.2017, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 tískir,“ sagði hann fyrr í vikunni og dró heilindi og pólitískt hlutleysi dómstóla landsins í efa. Þrír dómarar dæmdu í áfrýjunar- málinu og þeir samþykktu niðurstöð- una einróma. Tveir þeirra voru til- nefndir í réttinn í forsetatíð demókrata en repúblikaninn George W. Bush tilnefndi þann þriðja. Ein- róma niðurstaða dómaranna bendir ekki til þess að Trump sé fórnarlamb pólitísks samsæris demókrata í dómskerfinu. Margra mánaða málarekstur? Embættismenn í dómsmálaráðu- neytinu í Washington sögðust vera að meta kosti sína í stöðunni. Ráðu- neytið hefur nú tveggja vikna frest til að óska eftir því að dómstóllinn endurskoði úrskurðinn, annaðhvort að sömu dómarar taki málið upp að nýju eða allir dómarnir, að sögn fréttaskýranda AFP. Dómsmálaráðuneytið getur einnig áfrýjað málinu til hæstaréttar Bandaríkjanna. Sumir fréttaskýr- endur telja að einróma niðurstaða dómara áfrýjunarréttarins bendi til þess að dómsmálaráðuneyti geti beð- ið ósigur aftur komi málið fyrir hæstarétt. Þótt áfrýjunarrétturinn hafi hafn- að kröfunni um að ógilda bráða- birgðalögbannið á gildistöku tilskip- unarinnar hefur hann ekki sagt sitt síðasta orð í málinu, að sögn The Wall Street Journal. Blaðið segir að dómstóllinn eigi nú eftir að fara dýpra í ásakanirnar um að tilskipun- in samræmist ekki stjórnarskránni og búist sé við að það taki hann marga mánuði að komast að loka- niðurstöðu í málinu. Líklegt þykir að málinu verði áfrýjað oftar en einu sinni, hugsanlega til hæstaréttar, og talið er að málareksturinn geti tekið meira en ár. AFP Mótmæli gegn Trump Kona heldur á veggspjaldi með skopmynd af Donald Trump á útifundi í Teheran í tilefni af 38 ára afmæli íslömsku byltingarinnar í Íran. Umdeild tilskipun forsetans beinist m.a. að ríkisborgurum landsins. Hyggst áfrýja Donald Trump sagði að úrskurður áfrýjunardómstólsins vegna umdeildrar forsetatilskipunar hans væri „skammarlegur“. Donald Trump fullvissaði Xi Jinp- ing, forseta Kína, um að hann hygð- ist ekki víkja frá þeirri stefnu að Taívan og Kína væru formlega eitt ríki, í fyrsta samtali þeirra í síma eftir að Trump varð forseti Banda- ríkjanna. Talið er að með þessu vilji Trump draga úr spennunni sem hefur verið milli ríkjanna eftir að hann sagði í sjónvarpsviðtali að hann sæi enga ástæðu fyrir Bandaríkin til þess að fylgja stefnunni um „eitt Kína“ nema löndin tvö gerðu með sér sam- komulag um aðra hluti, m.a. við- skipti og málefni Norður-Kóreu. Trump hafði einnig reitt kínversk stjórnvöld til reiði með því að ræða við Tsai Ing-wen, forseta Taívans, í síma í desember. Sagðist Trump ekki ætla að láta Kínverja segja sér fyrir verkum. Trump fór oft hörðum orðum um stjórnvöld Kína fyrir kosningarnar i Bandaríkjunum í nóvember, sakaði þau m.a. um að hafa haldið gengi kínverska gjalmiðilsins óeðlilega lágu til að auka útflutninginn til Bandaríkjanna. Óformleg tengsl „Trump forseti samþykkti, að beiðni Xi forseta, að virða stefnu Bandaríkjanna um „eitt Kína“, sagði í tilkynningu frá Hvíta húsinu. Kín- verska utanríkisráðuneytið sagði að Xi Jinping hefði fagnað yfirlýsing- unni. Forsetarnir buðu einnig hvor öðrum í opinbera heimsókn. Ráðamenn kommúnista í Peking líta á Taívan sem uppreisnarhérað og hafa oft hótað stríði ef eyríkið lýsi yfir formlegu sjálfstæði. Stjórnvöld í Bandaríkjunum slitu formlegum tengslum sínum við Taívan árið 1979 þegar þau viðurkenndu stjórn kommúnistaflokksins á kínverska meginlandinu. Bandaríkin hafa hins vegar séð stjórnvöldum á Taívan fyrir vopnum til að koma í veg fyrir að Kínverjar sameini eyjuna og kín- verska meginlandið með hervaldi. Hyggst halda stefn- unni um „eitt Kína“  Kínverjar fagna yfirlýsingu Trumps Saksóknarar í Danmörku hafa ákært sextán ára gamla stúlku fyrir að hafa ætlað að fremja hryðju- verk. Hún er fyrsta konan sem er ákærð fyrir hryðjuverkastarfsemi í Danmörku. Stúlkan var handtekin í bænum Kundby á Sjálandi í janúar í fyrra með sprengiefni sem talið er að hún hafi ætlað að nota til að sprengja tvo skóla. Mikil leynd hefur hvílt yfir mál- inu frá því stúlkan var handtekin og hafa dómskjöl þess ekki verið aðgengileg almenningi og fjöl- miðlum. Saksóknari í Kaupmannahöfn gaf í gær út tilkynningu þar sem kom fram að stúlkan hefði verið ákærð fyrir tilraun til þess að fremja hryðjuverk. Hún hefði ætlað að sprengja einkaskóla fyrir gyð- inga (Carolineskolen) í Kaup- mannahöfn og skóla sem hún gekk sjálf í, Sydskolen í Fårevejle. Stúlk- an hafði snúist til íslamstrúar. Saksóknarinn LiseLotte Nilas segir að stúlkan sé ákærð fyrir að hafa búið til sprengjurnar og ætlað að sprengja þær. 25 ára karlmaður sem var handtekinn í tengslum við málið hafi verið látinn laus og verði ekki ákærður. Maðurinn hafði áður barist með vígasamtökum í Sýr- landi og sagt að hann væri félagi stúlkunnar. Nilas sagði að ljóst væri að maðurinn tengdist ekki fyrirætl- unum stúlkunnar á nokkurn hátt og því hefði hann verið látinn laus. Hann hafði setið í gæsluvarðhaldi síðan í fyrra. ÁKÆRA VEGNA HRYÐJUVERKASTARFSEMI Í DANMÖRKU Sextán ára stúlka undirbjó hryðjuverk ANNUAL GENERAL MEETING OF CCP HF. The annual general meeting of CCP hf., company no. 450697-3469, will be held on 27 February 2017 at the company’s headquarters at Grandagarður 8, Reykjavík, starting at 16:00 GMT. AGENDA: Report on the company’s state and activities during the 2016 calendar year. Review and request for approval of the company’s consolidated financial statements for the year ended 31 December 2016. Decision on the disposal of the company’s profit or loss for the year ended 31 December 2016. Decision on remuneration of the members of the Board of Directors. Proposal by the Board of Directors on the company’s compensation policy. Election of the Board of Directors. Election of auditors. Proposals to amend the Articles of Association: Proposal to reduce the share capital by cancelling 46,388 of the company’s own shares as a part of a scheme to reduce the share capital following the purchase of own shares for an amount between USD 20 and USD 25 per share. Article 2.01 of the Articles of Association will be amended accordingly. Proposal to renew an authorization for the Board of Directors under Article 2.03 of the Articles of Association to decide upon an increase of the share capital by 1,680,735 class A shares to the fulfillment of stock purchase option agreements with employees. The authorization will be valid until 26 February 2022. Proposal to renew an authorization for the Board of Directors under Article 2.09 of the Articles of Association to purchase 367,166 of the company’s own class A shares. The authorization will be valid until 26 February 2022. Proposal to amendArticle 4.03 to reflect that shareholders controlling at least 1/20 of the share capital can call for a shareholder meeting to be held. Proposal to amend Article 4.08 to reflect the right of a shareholder to have an advisor speak on his/her behalf during shareholder meetings. Other business lawfully brought to the meeting. Candidates for the Board of Directors need to send notice in writing of their candidacy to the company’s headquarters at least five days prior to the annual general meeting. Reykjavík, 10 February 2017 CCP‘s Board of Directors 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.