Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 27

Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 Vel búnir vegfarendur Margir voru að spássera í miðborg Reykjavíkur í gær, bæði heimamenn og erlendir ferðamenn. Fólk var vel búið og lét nepjuna og vætuna ekki á sig fá. Golli Það er staðreynd að húsnæðisvandinn er mikill í borginni og lóðaskortur en borgin úthlutaði einungis sex fjölbýlishúsalóðum með fleiri en fimm íbúðum á fyrsta 31 mánuði kjörtímabils- ins. Uppbygging gengur of hægt, meðal annars vegna fárra lóðaúthlutana. Sam- kvæmt Þjóðskrá Íslands fjölgaði íbúðum í Reykjavík einungis um 1.644 frá 2010 til ársloka 2016 en nauðsynlegt hefði ver- ið að fjölga þeim um 700 á ári á þessu tíma- bili. Framsókn og flug- vallarvinir hafa ítrekað fjallað um lóðaskort í borginni og hve nauð- synlegt er að skipu- leggja meiri byggð í Úlfarsárdal og fjölga þar lóðum svo hægt sé að takast á við hús- næðisvandann. Á grundvelli tillögu Framsóknar og flug- vallarvina sem samþykkt var haust- ið 2015 er verið að endurskoða skipulag Úlfarsárdals. Úlfarsár- dalurinn er það svæði þar sem borgin getur úthlutað lóðum því flestar þær lóðir sem verið er að byggja á eða til stendur að byggja á eru í höndum fasteignafélaga á dýrustu stöðunum í borginni og hæpið að þar verði byggðar litlar og ódýrar íbúðir sem mikil þörf er á. Það gengur of hægt að byggja til að mæta þeirri miklu eftirspurn sem er og slíkt leiðir af sér verð- hækkanir. Ekki hjálpar til lítið lóðaframboð borgarinnar og stað- setning húsnæðisins, en þétting byggðar leiðir af sér hærra verð þar sem verið er að byggja á dýr- ustu stöðum borgarinnar, allt á kostnað unga fólksins sem hefur ekki ráð á því húsnæði sem er í boði. Það er mikilvægt að stækka byggðina í Úlfarsárdal til að hverf- ið verði sjálfbært og þeir innviðir sem borgin hefur og er að fjárfesta í komi að sem mestum notum, til að hægt sé að uppfylla skuldbind- ingar borgarinnar gagnvart kaup- endum lóða í hverfinu, til að upp- fylla skuldbindingar borgarinnar við Knattspyrnufélagið Fram, til að koma til móts við væntingar íbú- anna og til að auka lóðaframboð í borginni, sem er af skornum skammti. Stækka þarf hverfið enn meira en endurskoðun deiliskipu- lagsins gerir ráð fyrir og því eru vonbrigði að fyrirhuguð breyting nái ekki einnig til svæðisins fyrir ofan Mímisbrunn eins og við í Framsókn og flugvallarvinum höf- um ítrekað bent á. Eftir Guðfinnu Jóh. Guðmundsdóttur » Það er mikilvægt að stækka byggðina í Úlfarsárdal til að hverfið verði sjálfbært og þeir innviðir sem borgin hefur og er að fjárfesta í komi að sem mestum notum. Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina. Það þarf að úthluta lóðum í Úlfarsárdal Einhvers staðar segir að hið „smáa sé fagurt“,og sú þjóð sé á framtíðarvegi sem virðir sögu sína og ann landi sínu. Um langa hríð hefur minnimátt- arkennd hrjáð marga Íslendinga og birtist hún oft í virðing- arlausri umræðu um „okkur hér á skerinu, okkur á hjara veraldar, okkur sem vorum að skríða út úr torfkofunum“ o.s.frv. Bændur þessa lands og landbúnaðurinn hefur ekki notið sannmælis og þeirrar virðingar sem atvinnuvegurinn ætti að njóta vegna matvælaframleiðslunnar sem er heilnæm og án allra spilliefna og sýkinga. Oft er hagsmunum land- búnaðarins fórnað að kröfu versl- unar og innflutningsaflanna og skilningur er alltof lítill á nýju og mikilvægu hlutverki bændanna í matvælaframleiðslunni og ekki síð- ur í þjónustu við erlenda ferða- menn. Það er landið og sagan sem hefur skapað þessa þjóð, við eigum þetta land saman, okkur ber að taka sameiginlega ábyrgð. Í ríkissjóð streyma evrur og dollarar úr veskj- um ferðamanna sem koma nú bæði sumar og vetur til að upplifa Ísland en ekki síst náttúruna á lands- byggðinni. Útlendingarnir eiga ekki orð yfir hinni ósnortnu náttúru og tröllauknu fegurð blánandi jökla og svartra sanda, eldur og ís eru and- stæður þessa lands og undur en einnig saga þess fólks sem þetta magnþrungna land hefur fóstrað. Sagan og menningin verður þannig einnig aðdrátt- arafl. Forystumenn bænda og sveitarfé- laga verða að þora Ferðamennirnir dást að sveitunum, fólki sem lifir og starf- ar við einstakar aðstæður, heldur utan um sögu forfeðranna og lifir á búskap og náttúruauðlindum sem ekki eiga sinn líka. Þetta þykir þeim mörgum geðfelldari framtíðarsýn en sú sem birtist í risavöxnum verk- smiðjurekstri sem víða hefur rutt sér til rúms. Á sama tíma hugsa ráðamenn, og því miður margir forystumenn bændanna, eins og þeim beri að stefna öllum búskap í stærðir eins og víða í Evrópu, samningar við bændur miða að því að lítil og með- alstór fjölskyldubú verði ekki arð- vænleg rekstrareining. Svo er alltaf uppi krafan frá heildsölum og þeim stóru í smásöluversluninni að inn- flutningur verði aukinn og ekki má ræða áhættuna sem honum fylgir t.d. með innflutningi á hráu kjöti, varnaðarorðin eru þó frá læknum og færasta vísindafólki okkar. En okkar sérstaða snýr að heilbrigð- ustu búfjárstofnum veraldarinnar og jafnframt þeim viðkvæmustu vegna einangrunar, fjarri pestum heimsins í að verða tólf hundruð ár. Sem betur fer hafa þjóðir Evrópu hafið mikla baráttu gegn flæði sjúk- dómanna en víða er glímt þar við svo alvarlega þróun í notkun sýkla- lyfja í búfé og fóðri að lífi fólks er ógnað. Á Íslandi er jörðin ómenguð, fóðrið heilnæmt og lyfjalaust, dýra- pestirnar ekki til staðar. Matvaran í eldhúsi okkar einstök og örugg, fyr- ir þetta ber okkur að þakka og þessa stöðu eigum við að varðveita. Við eigum að setja okkur það markmið að framleiða sem allra mest af landbúnaðarafurðum okkar sjálf. Við eigum alls ekki að gefa evrópskum bændum eftir mark- aðinn. Fjölskyldubúin íslensku eru þau síðustu þeirrar gerðar á verald- arvísu segja bæði náttúruunnendur og fræðimenn erlendis. For- ystumenn sveitarfélaga og bænda roðna í vöngum og þora varla í glím- unni við fjölmiðla og stjórn- málamenn að taka upp málstað þessara einstöku búhátta, sem nú vekur athygli sem betri búskapur. Betri meðferð á dýrum og mikilvæg varðveisla á menningararfi. Gísli á Uppsölum, Heiða og Karólína Fyrir áratugum fundu Árni John- sen og Ómar Ragnarsson Gísla á Uppsölum sem hafði í raun sagt sig frá samfélaginu. Ómar gaf okkur innsýn í líf þessa einstaka manns þá í miðri jólahátíðinni. Það var ekkert að Gísla, hann lifði af landinu en líf hans snerti viðkvæman streng í brjósti okkar af því að við héldum að hann ætti svo bágt. En auðvitað erum það við sem þjáumst sjálf í miðju lífsgæðakapphlaupinu, mað- urinn er ógn með lífsháttum sínum á veraldarvísu. Nú gerðist það um þessi jól að Steinunn Sigurðardóttir gaf okkur innsýn í líf og baráttu fjalldalabónd- ans Heiðu á Ljótarstöðum. Allir sem lesa bókina sjá að líf hennar og verkefni eru storkandi stríð og bar- átta til að lifa af. Og í raun furðulegt af okkur sem ríkri þjóð að búa ekki betur að sauðfjárbændum og fólki í hinum dreifðu byggðum. Bænd- urnir eru landverðir, ljós og líf sem gleður ferðalanginn og veitir honum öryggi og þjónustu. En „trölla- trúin,“ skynjar ekki ákall t.d. ferða- manna að vernda búsetuna og þenn- an einstaka lífsmáta. Þegar græðgin fyrir sunnan felldi bank- ana var fólkinu í Árneshreppi refs- að með minni snjómokstri, en þeir báru enga ábyrgð á hruninu. Björgum nú því sem bjargað verður Loksins nú kemur Fréttablaðið með viðtal við Karólínu í Hvamms- hlíð, þýska að uppruna en íslenska í háttum. Hún er verkfræðingur að mennt og sér mögnuð tækifæri á „hjara veraldar,“ eins og úrtölu- mennirnir myndu orða það, býr við sauðfé, ullarvinnslu og útgáfu á fræðandi bókum um Ísland, er heimsborgari með verkefni í hinni stóru veröld en telst fjalldalabóndi í afskekktri sveit. Af hverju settist hún að í héraði „eyðibýlanna“? Hún veit að hið smáa er fagurt, þar liggja tækifæri ekkert minni en í 101 í Reykjavík eða Berlín. Ágætu ráðamenn lands og þjóð- ar, nú er mikilvægt að móta nýja byggðastefnu fjarlægra héraða og atvinnulífs, byggja upp innviði og þjónustu í mikilvægum þorpum en þau, ásamt bændunum, eru lykillinn að þjónustu við nýjan grundvall- aratvinnuveg, ferðaþjónustuna, sem skilar okkur öllum miklum arði. Það er farsælla að byggja landið allt en selja það auðmönn- unum, innlendum og eða erlendum. Ein dugleg bændafjölskylda er okk- ur dýrmætari en allir Núbóar heimsins. Ég skora á Alþingi, forsætisráð- herra Bjarna Benediktsson, og al- veg sérstaklega á landbún- aðarráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, og Jón Gunnarsson, samgöngu- og byggðamálaráð- herra, að hefja þegar aðgerðir til að efla og styrkja búsetuna í dreifðum byggðum og bjarga því sem bjargað verður. Eftir Guðna Ágústsson »Okkar sérstaða snýr að heilbrigðustu bú- fjárstofnum verald- arinnar og jafnframt þeim viðkvæmustu vegna einangrunar, fjarri pest- um heimsins í að verða tólf hundruð ár. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. ráðherra. Nú ber að hlúa að landbúnaðinum og landsbyggðunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.