Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 30

Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 Ármúla 15, 108 Reykjavík Sími 515 0500 fasteignakaup@fasteignakaup.is fasteignakaup.is Fasteignasalinn þinn fylgir þér alla leið í söluferlinu, frá upphafi til enda Sirrý lögg. fasteignasali Erna Vals lögg. fasteignasali Íris Hall lögg. fasteignasali Guðmundur Kjartanssonvarð skákmeistariReykjavíkur 2017. Fyrstisigur Guðmundar á þess- um vettvangi en fyrir lokaumferð- ina hafði hann ½ vinnings forskot á Dag Ragnarsson og Lenku Ptacnikovu. Guðmundur hafði í 8. umferð unnið lykilskák gegn Birni Þorfinnssyni sem rakin var í síð- asta pistli. Tap fyrir Lenku í 3. umferð hægði örlítið á ferð hans en þó ekki meira en svo að hann vann sex síðustu skákir sínar. Rétt fyrir síðustu áramótin vann Guð- mundur alþjóðlegt mót í Fær- eyjum en næsta verkefni hans er þátttaka á Aeroflot-mótinu í Moskvu sem hefst 21. febrúar. Þar sem Björn Þorfinnsson vann Dag Ragnarsson og Lenka tapaði fyrir Guðmundi Gíslasyni náði Björn einn 2. sæti en lokaniðurstaðan varð þessi: 1. Guðmundur Kjartansson 8 v. (af 9) 2. Björn Þorfinnsson 7 v. 3.- 6. Lenka Ptacnikova, Guðmundur Gíslason, Dagur Ragnarsson og Daði Ómarsson 6½ v. 7.-10. Örn Leó Jóhannsson, Björgvin Víg- lundsson, Benedikt Jónasson og Jóhann Ingvason 6 v. Á Nóa Síríus mótinu dró svo til tíðinda sl. þriðjudagskvöld þegar Daði Ómarsson vann Guðmund Kjartansson og náði forystu fyrir lokaumferðina ásamt Þresti Þór- hallssyni. Þeir eru báðir með 4½ vinning en Daði fékk ½ vinnings yfirsetu í 3. umferð og hefur því unnið allar fjórar skákirnar sem hann hefur teflt og reiknast árang- ur hans uppá 3.237 Elo-stig; 100% árangur skorar hátt á Elo- kvarðanum! Í 3.-7. sæti koma Guðmundur Kjartansson, Jóhann Hjartarson, Helgi Áss Grétarsson, Björgvin Jónsson og Jón Viktor Gunnarsson með 3½ vinning. Þröstur hefur hvítt gegn Daða í lokaumferðinni. Dellutaflmennska Hou Yifan á Gíbraltarmótinu Frægasta delluskák sem sögur fara af fór fram á heimsmeist- aramóti stúdenta í Graz í Austur- ríki sumarið 1972. Tveir „ófúsir ferðalangar“, v-þýski stórmeist- arinn og papýrusfræðingurinn Ro- bert Hübner og bandaríski stór- meistarann Kenneth Rogoff, sem síðar haslaði sér völl á vettvangi hagfræðinnar, áttu að tefla á 1. borði í viðureign stórþjóðanna. Af einhverjum ástæðum vildu þessir heiðursmenn ekki tefla þennan dag og sömdu jafntefli án taflmennsku. Skákstjórinn greip inn í atburða- rásina og krafðist þess að þeir tefldu „almennilega skák“. Ákveðið „afstöðuvandamál“ er ekki óþekkt meðal skákmanna og það braust fram með eftirminnilega hætti þennan dag. Aftur settust Hübner og Rogoff að tafli og tefldu eft- irfarandi skák: Hübner – Rogoff 1. c4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Rg1 Bg7 4. Da4 O-O 5. Dxd7+ Dxd7 6. g4 Dxd2+ 7. Kxd2 Rxg4 8. b4 a5 9. a4 Bxa1 10. Bb2 Rc6 11. Bh8 Bg7 - Samið jafntefli. Á opna mótinu á Gíbraltar, sem lauk um síðustu helgi með sigri bandaríska stórmeistarans Hikaru Nakamura, trúðu menn vart eigin augum þegar heimsmeistari kvenna, kínverska skákdrottningin Hou Yifan, gafst upp með hvítu eftir fimm delluleiki gegn Indverj- anum Babu Lalith í lokaumferð mótsins: 1. g4 d5 2. f3 e5 3. d3 Dh4+ 4. Kd2 h5 5. h3 hxg4 og hvítur gaf. Hou Yifan baðst síðar afsökunar á framgöngu sinni en sagði ástæð- una þá að mótsstjórnin á Gíbraltar hefði sveigt reglur um pörun á þann hátt að í sjö skákum af tíu hefði hún mætt konum og þeim viðureignum verið stillt upp sem einhvers konar uppgjöri við heims- meistara kvenna. Hefði þetta haft slæm áhrif á sig og því hefði hún mótmælt með þessum hætti. Guðmundur Kjart- ansson Skákmeistari Reykjavíkur 2017 Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Þórir Benedikts Efstu menn Guðmundur Kjartansson, skákmeistari Reykjavíkur 2017; Lenka Ptacnikova, Guðmundur Gíslason, sem kom akandi frá Ísafirði til að tefla, og Dagur Ragnarsson. Viðskiptaráð Ís- lands birti nýlega út- tekt á fasteignum rík- issjóðs. Úttektin á að sýna að það sé mjög óhagstætt fyrir ríkið að eiga fasteignir sem hýsa stofnanir sam- félagsins. Nær væri að selja fjárfestum nánast allt húsnæði ríkisstofnananna og leigja það síðan af fjárfestunum, væntanlega undir sömu starfsemi og í þeim er, t.d. skóla. Fasteign- arekstur eigi heima hjá einkaað- ilum segir í úttektinni sem telur það sóun og áhættu hjá ríkinu að eiga húsnæði til eigin nota. Út- tektin er áróður ætlaður til að blekkja stjórnmálamenn og al- menning í þágu fjárfesta sem ásælast nú verðmætar eigur sam- félagsins með auknum þunga. Áróðurinn er m.a. fólginn í því að útlista hve óhagkvæmt sé að ríkið eigi fasteignirnar sem það notar. Því til rökstuðnings segir m.a. í úttektinni: „Í þriðja lagi skapar opinber fasteignarekstur hags- munaárekstra. Þannig leigir ríkið sjálfu sér húsnæði sitt og situr því beggja megin borðsins í samn- ingaviðræðum“. Það var og. Hvernig ætli sé að semja við sjálf- an sig? Í hverju eru hagsmuna- árekstrarnir fólgnir? Margar mót- sagnir eru í þessari úttekt VÍ og langt frá því að hún sýni fram á hagkvæmi þess „að stjórn- málamenn leiti leiða til að lág- marka eignarhald ríkisins á fast- eignum“, eins og segir í úttektinni. Út- tekt sem þessi gæti hins vegar dugað til að blekkja stjórn- málamenn til að selja fjárfestum húsnæði ofan af stofnunum samfélagsins og leigja það síðan undir sömu starfsemi. Stjórn- málamönnum hafa oft verið mislagðar hend- ur við stjórn fjármála ríkis og sveitarfélaga vegna blindrar trúar sinnar á einkareksturinn og andfélagslegra viðhorfa. Í því sambandi má nefna einkavæðingu bankanna og fjár- mál sveitarfélaga eins og t.d. Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar sem seldu frá sér verðmætar eig- ur sem sveitarfélögin leigðu síðan undir sömu starfsemi. Ekki er í úttekt VÍ minnst á þá áhættu sem fólgin væri í því að afhenda einka- aðilum ráð á öllu húsnæði sem hið opinbera þarf að nota eða þau völd sem þeim væru fengin með slíkri eignasöfnun frá samfélaginu. Einkaaðilar réðu leiguverðinu. Samningsaðstaða ríkisins væri þröng þar sem það hefði selt ofan af stofnunum sínum. Ekki er í út- tektinni minnst á þann arð sem einkaaðilar tækju sér af leigu fast- eigna sem þeir keyptu af ríkinu og leigðu því aftur. Arð sem nú er hjá ríkinu sem eiganda fast- eignanna, fólginn í lægri út- gjöldum ríkisins vegna fast- eignanna sem það á og notar undir starfsemi. Samtök eins og Viðskiptaráð Íslands hafa það hlutverk að gæta hagsmuna við- skiptalífsins og efla „skilning“ al- mennings á frjálsræði í við- skiptum. VÍ og önnur svipuð samtök, svo sem Samtök fjármála- fyrirtækja og einstök fyrirtæki tengd þeim, hafa ítrekað lagt til að samfélagið selji fjárfestum öll helstu verðmæti samfélagsins svo sem Landsvirkjun, Keflavík- urflugvöll og mikilvæg veitu- og samgöngumannvirki. Fjármálafyr- irtækið Gamma upplýsti nýlega að það hefði fundað með fjárfestum beggja vegna Atlantshafsins til að kynna þeim að hér á landi væri hægt að græða meira á samfélag- inu en víða annarsstaðar. Öll starfsemi samtaka fyrirtækja og einstaklinga í fjármálastarfsemi miðar að því að efla og verja hags- muni þeirra. Ekki almennings. Al- menningur þarf að vera vel á verði gagnvart „fínum“ skýrslum og úttektum fjármálafyrirtækja og skyldra félaga sem eiga að sýna hagkvæmni þess að fjárfestar eignist innviði samfélagsins. Eng- ar niðurgreiðslur skulda ríkisins eða framkvæmdir á þess vegum eru svo nauðsynlegar og aðkall- andi að verjandi sé að selja eitt- hvað af innviðum samfélagsins þeirra vegna. Slíkt væri glapræði og afsal á hluta sjálfstæðis þjóð- arinnar í hendur fjárfesta. Al- menningur þarf að fylgjast með því hvaða stjórnmálamenn og samtök taka undir áróður VÍ og fjármálafyrirtækjanna. Öllum ætti að vera það ljóst að innviðir sam- félagsins, þ.e. fasteignir sem not- aðar eru til samfélagslegra þarfa, orku- og veitufyrirtæki, sam- göngumannvirki og ýmis þjónustu- fyrirtæki sem sækja tekjur sínar beint eða óbeint til almennings eiga að vera í eigu og stjórn sam- félagsins. Sé þessum þáttum sam- félagsins ekki stjórnað á viðunandi hátt verður að skipta um stjórn- endur en ekki láta fyrirtækin í hendur fjárfesta. Glapræði að selja fasteignir ríkisins Eftir Árna Þormóðsson »Úttektin er áróður ætlaður til að blekkja stjórnmála- menn og almenning í þágu fjárfesta sem ásælast nú verðmætar eigur samfélagsins með auknum þunga. Árni Þormóðsson Höfundur er eldri borgari. mbl.is alltaf - allstaðar Atvinnublað alla laugardaga mbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.