Morgunblaðið - 11.02.2017, Síða 39

Morgunblaðið - 11.02.2017, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 ✝ Sigurjón Ingi-berg Bjarnason fæddist 26. maí 1951. Hann lést á heimili sínu í Gautaborg í Svíþjóð 5. desember 2016. Foreldrar hans voru Sigþrúður Karólína Elísabet Þórðardóttir, f. 19. ágúst 1905, d. 11. nóvember 1979, og Bjarni Helgason, f. 3. október 1919, d. 19. maí 2010. Systkini Sigurjóns sammæðra eru María Þórlaug Friðleifs- dóttir, f. 9. mars 1929, d. 14. september 1994, Bára Val- gerður Friðleifsdóttir, f. 20. des- ember 1930, d. 8. júlí 2014, Frið- rún Þóra Fjóla Friðleifsdóttir, f. 3. mars 1932, d. 20. mars 1963, Ægir Breiðfjörð Friðleifsson, f. 17. júlí 1934, d. 1. febrúar 1999, Jón Friðrik Breiðfjörð Frið- leifsson, f. 15. ágúst 1936, d. 28. mars 2000, Svavar Friðleifsson, f. 16. september 1937, d. 14. ágúst 2011, Jónína Guðrún Frið- leifsdóttir, f. 9. júní 1939, d. 15. október 1996, Grétar Frið- leifsson, f. 12. júní 1943, Hjördís Lilja Jónasdóttir, f. 19. janúar 1945. Sigurjón var í sambúð með Maríu Lovísu Jack, f. 28. ágúst 1946, í nokk- ur ár. Börn þeirra eru Sigurlín Bjarn- ey, f. 9. febrúar 1975, og Sig- tryggur Jón, f. 24. febrúar 1977, voru ættleidd af hjón- unum Gísla Arn- bergssyni, f. 23. mars 1946, og Lovísu Þórð- ardóttur, f. 15. desember 1948, d. 20. janúar 2014. Sigurjón og María bjuggu á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og í Kefla- vík uns þau fluttust til Svíþjóðar árið 1981 og settust að í Gauta- borg þar sem Sigurjón bjó æ síð- an. Sigurjón ólst upp hjá móður sinni í Hafnarfirði. Eftir vana- lega skólagöngu stundaði hann ýmis störf til sjós og lands. Hann lærði m.a. rafsuðu sem hann vann mikið við. Eftir að til Sví- þjóðar kom stundaði hann hin og þessi störf, m.a. rafsuðuvinnu vegna olíuborpalla en lengst af húsvörslu í stóru húsfélagi og síðast í skóla í Gautaborg. Útför hans fór fram í Gauta- borg 11. janúar 2017. Okkur setti hljóð þann 5. desem- ber er við fréttum að Sigurjón Ingi- berg Bjarnason, kær vinur og sam- ferðamaður til áratuga, væri látinn. Við hjónin kynntumst Sigurjóni er hann hóf búskap með Maríu Jack, systur Davíðs árið 1973 og var hann eftir það alltaf sem einn af fjöl- skyldu okkar þótt leiðir hans og Maríu skildu. Reyndar var það svo að hann og María voru alla tíð í mjög góðu sambandi og leið varla svo dagur hin síðari ár að þau töl- uðust ekki við í síma og það oftast tvisvar til þrisvar á dag. Oft dvaldi hann hjá henni um jól og páska og hún heimsótti hann til Gautaborgar. Nokkrum sinnum komu þau líka saman til Íslands. Þótt vík væri milli vina, Sigurjón í Svíþjóð og við á Íslandi, þá héldum við alltaf góðu sambandi með sím- tölum og heimsóknum. Síðast heim- sóttum við Sigurjón í byrjun sept- ember s.l. og gistum hjá honum eina nótt. Við komum með lest til Gauta- borgar eftir heimsókn til Maríu í Åseda. Á lestarstöðinni tók Sigur- jón á móti okkur, hress og kátur að vanda. Fylgdum við honum heim til hans og áttum þar ánægjulegt síð- degi og kvöld við skemmtilegt spjall og nutum góðs matar sem hann útbjó. Sigurjón var snyrtilegur í umgengni og var sífellt að bæta og laga heimili sitt sem bar snyrti- mennsku hans gott vitni. Þegar Sigurjón kom til Íslands var hann vanur að gista hjá okkur og þá var hann vakinn og sofinn um að gera eitthvað sem að gagni mætti koma, s.s. að slá lóðina, bera á hurðir og garðhúsgögn svo eitt- hvað sé nefnt. Iðjuleysi var honum ekki að skapi jafnvel ekki þótt í fríi væri. Þegar hann var á Íslandi ferðuðumst við í nokkur skipti saman um landið og var ánægju- legt að hafa hann með í för. Sigurjón var skemmtilegur fé- lagi, glaðsinna og jákvæður, þótt hann sigldi ekki alltaf lygnan sjó og ætti í áralöngu stríði við Bakkus konung. Oft hafði hann betur í þeirri glímu jafnvel árum saman en svo brá konungurinn fyrir hann fæti á ný. Alltaf hélt hann þó já- kvæðni sinni og skemmtilegu skop- skyni sem beindist ekki síst að hon- um sjálfum. Að leiðarlokum er okkur efst í huga þakklæti til Sigurjóns fyrir vináttu og ánægjulegar samveru- stundir á liðnum árum og fyrir hve mikill vinur og félagi hann var Maríu. Guð blessi minningu vinar okkar Sigurjóns Bjarnasonar. Bergdís Ósk Sigmarsdóttir, Davíð Jack. Sigurjón Ingiberg Bjarnason Smáauglýsingar 569 Húsnæði óskast Fyrirtæki óskar eftir íbúð fyrir starfsmann Fyrirtæki óskar eftir fullbúinni íbúð með einu svefnherbergi fyrir starfsmann frá 1. apríl og í eitt ár. Íbúðin má vera fullbúin húsgögn- um eða tóm. Öruggum greiðslum heitið, hver mánuður fyrirfram- greiddur. Fyrirtækið greiðir að hámarki 200.000 kr. með öllu inni- falið, þ.e. hita, rafmagni, Interneti, hússjóði. Vinsamlegast hafið samband í tölvupósti: ragnarfj@gmail.com eða í síma 666 5570. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Verslun UNDIR ÞESSU MERKI SIGRAR ÞÚ Hálsmen úr silfri 6.900 kr., gulli 49.500 kr., (silfur m. demanti 11.500 kr., gull m. demanti 55.000 kr.), silfur- húð 3.500 kr. ERNA, Skipholti 3, s. 552 0775, www.erna.is Póstsendum Þjónusta ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD              Uppl. í s: 788 8870 eða murumogsmidum@murumogsmidum.is Múrum og smíðum ehf Byggingavörur Lóð undir smáhýsi Lítil (100m2+) lóð óskast fyrir 30 fer- metra smáhýsi. Mosfellsbær, Reykja- vík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður og fleiri staðir koma til greina. Uppl. sendist: magnus@vidur.is eða gsm. 660 0230, Magnús Ýmislegt 7.900 kr. 5.900 kr. 3.950 kr. 6.500 kr. 6.500 kr. 5.200 kr. Fylgstu með á Facebook Frú Sigurlaug Mjóddin s. 774-7377 Sundbolir • Tankini Bikini • Náttföt Undirföt • Sloppar Inniskór • Undirkjólar Aðhaldsföt Verkfæri Giftingar- og trúlofunarhringar frá ERNU Handsmíðuð hringapör úr silfri með alexandrite-steini sem gefur mikið litaflóð. Verð 27.500 á pari með áletrun. ERNA, Skipholti 3, sími 5520775, www.erna.is Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald VIÐHALD FASTEIGNA Lítil sem stór verk Tímavinna eða tilboð ℡ 544 4444 777 3600 jaidnadarmenn.is johann@2b.is  JÁ Allir iðnaðarmenn á einum stað píparar, múrarar, smiðir, málarar, rafvirkjar þakmenn og flísarar. Viðhalds- menn Tilboð/tímavinna s. 897 3006 vidhaldsmenn.is vidhaldsmenn@gmail.com Bílar aukahlutir Plexiform og bólstrun sími 6944772 Sætaviðgerðir og bólstrun farar- tækja, hlífðaráklæði saumað eftir máli. Lagervara, póstkassar, bæklingastandar á borð og vegg, tölvu- og skjástandar. Opið frá kl. 9 til 15. Sími 5553344. www.mbl.is/mogginn/ipad Gríptu tækifærið! Nú geta allir fengið iPad-áskrift Allt frá því að við kynntumst fyrst ár- ið 2005 líkaði okkur vel hvor við aðra, elsku Sigrún. Alltaf kallaðir þú mig „Sirrý þína“, sem mér þótti ofboðslega vænt um. Fyrstu ár- in eftir kynni okkar hringdir þú mjög oft í mig, svona bara til að spjalla. Eftir að þú fluttir svo á Hrafnistu, þar sem þér fannst þú örugg, urðu símtölin færri, en heimsóknum til þín fjölgaði. Síðustu ár fannst þér notalegast að halda kyrru fyrir á Hrafnistu og vildir lítið fara þaðan út. Við hátíðartilefni fórstu þó út með Sigrún Halla Eiríksdóttir ✝ Sigrún HallaEiríksdóttir fæddist 11. febrúar 1927. Hún lést 30. desember 2016. Útför Sigrúnar fór fram 11. janúar 2017. fjölskyldunni líkt og tvö síðustu jól sem eru mér og verða mér alltaf minnisstæð og dýr- mæt. Þessi jól varstu mjög spennt að koma til okkar, við áttum ótrúlega gott og langt spjall saman og þér lá sko ekkert á að fara heim. Þú sagðir „ef það verður búið að læsa á Hrafnistu þá hringi ég bara dyrabjöllunni og vinur minn (næturvörðurinn) opnar fyrir mér“. Ég keyrði þig svo heim í lok kvölds og áfram spjölluðum við alveg upp að dyrum. Þetta kvöld er ég svo þakklát fyrir að hafa átt með þér, elsku tengda- mamma. Hvíl í friði, elsku Sigrún mín, og Guð veri með þér. Þín, Sigríður (Sirrý).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.