Morgunblaðið - 11.02.2017, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017
Viktoría Her-mannsdóttir, frétta-maður á RÚV, á 30
ára afmæli í dag. Viktoría er
sjóuð í blaðamannabrans-
anum, en hún var lengi
blaðamaður á DV og var
meðal annars ritstjóri helg-
arblaðs Fréttablaðsins þar
til hún hóf störf á RÚV síð-
astliðið haust.
„Blaðamennskan er
skemmtileg vinna þar sem
maður fær tækifæri til að
kynnast alls konar fólki og
fjalla um áhugaverð málefni.
Ég er búin að vera í þessu í
nokkur ár og hef kynnst
ýmsu á þeim tíma. Ég hef
alltaf haft áhuga á blaða-
mennsku og byrjaði ung að
gefa út skólablöð og gera út-
varps- og sjónvarpsþætti
með vinkonum mínum í
Breiðholtinu. Ég ákvað svo
að verða blaðamaður þegar ég var ólétt að dóttur minni og réð mig á
DV sem var mikill skóli og skemmtilegur. Fyrstu mánuðina var alltaf
að líða yfir mig út af óskilgreindum meðgöngukvilla milli þess sem ég
elti uppi einhver skúbb.
Ég var í nokkur ár á DV og fór þaðan yfir á 365 og þaðan á RÚV.
Núna hef ég prófað þetta allt; prentmiðla, vef, sjónvarp og útvarp og
þetta hefur allt sinn sjarma. Mér þykir alltaf skemmtilegast að hitta
fólk sem hefur áhugaverðar sögur að segja og miðla þeim áfram því
öll eigum við okkar sögur. En auðvitað er skemmtilegast þegar eitt-
hvað sem maður fjallar um verður til þess að breyta einhverju.“
Viktoría segir áhugamálin aðallega snúa að fólki. „Ég var að fatta
að ég á eiginlega engin önnur áhugamál en að hitta fólk og drekka
kaffi eða eitthvað annað. Ég er mjög góð í því. En það kannski breyt-
ist með hækkandi aldri og maður fer að finna sér einhver almennileg
áhugamál,“ segir hún.
Viktoría ætlar að sjálfsögðu að halda upp á afmælið sitt. „Ég er svo
heppin að eiga afmæli á laugardegi og ætla að halda gott partí fyrir
fjölskyldu og vini. Maður verður að fagna þessu fyrst maður hefur lif-
að þessi 30 ár af. Besta hljómsveit landsins ætlar að troða upp þannig
að ég vona að það verði mikið fjör.“
Dóttir Viktoríu er Birta Hall sem er sex ára og kærasti Viktoríu er
Sólmundur Hólm, útvarpsmaður og skemmtikraftur.
Býst við miklu fjöri
í afmælinu í kvöld
Viktoría Hermannsdóttir er þrítug í dag
Mæðgurnar Viktoría og Birta.
G
eir Magnússon fæddist í
Reykjavík, 11.2. 1942
og ólst upp á Fjölnis-
vegi: „Hjá okkur
krökkunum á þessum
slóðum var Landspítalalóðin vinsæll
leikvangur, en þá voru þar aðeins
fjögur til fimm hús og nánast engin
bílastæði.“
Foreldrar Geirs fluttu í Kópavog
1954 og bjuggu þar svo alla sinn bú-
skap: „Móðurforeldrar mínir
bjuggu í Vestmannaeyjum og þang-
að fór ég á sumrin. Eyjarnar voru
paradís fyrir börn til leiks og starfs.
Ég var 10 ára þegar ég vann mér
fyrst fyrir kaupi í Eyjum. Börn
unnu við að stinga fisk úr stíum í
togurunum, bera saltfisk á stakk-
stæði og að roðrífa fisk í fiskvinnsl-
unum. Ég fór flest sumur til Eyja
fram yfir fermingu. Móðurbróðir
minn, Sigurður Gunnsteinsson, var
umboðmaður Loftleiða í Eyjum og
ég fékk oft að fara með og hafði
mjög gaman af.“
Geir var í Barnaskóla Austur-
bæjar og Gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar. Hann útskrifaðist frá Sam-
vinnuskólanum að Bifröst 1961.
Að námi loknu hóf Geir störf hjá
Sambandi íslenskra samvinnu-
félaga, sá þar um gjaldeyris-
viðskipti í nokkur ár, síðan um dag-
legar fjárreiður, var aðstoðarmaður
Þórhalls Björnssonar aðalféhirðis
til 1976, er hann varð framkvæmda-
stjóri fjármála Sambandsins. Því
starfi gegndi Geir til 1984, er hann
varð bankastjóri í Samvinnubanka
Íslands hf. Samvinnubankinn var
svo seldur Landsbanka Íslands í
árslok 1990.
Geir var ráðinn forstjóri Olíu-
félagsins hf. sumarið 1991 og
Geir Magnússon, fyrrv. bankastjóri og forstjóri – 75 ára
Myndarleg börn Hér eru börn Geirs og Kristínar, kát og hress, þau Kristinn Þór, Erla og Gunnsteinn.
Tekur eiginkonu og
golf fram yfir hestana
Hjónin Geir og Kristín sem leika
golf á fullu, hér heima og í Flórída.
Mosfellsbær Kíran Sedhai
fæddist 30. júlí 2016 kl.
1.44. Hann vó 3.330 g og var
50 cm langur. Foreldrar
hans eru Hulda Margrét
Eggertsdóttir og Rajan
Sedhai.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
NÝ OG GLÆSILEG
BLÖNDUNARTÆKJALÍNA
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Bað- og sturtutæki
með stút upp.
42.900 kr.
FMM SILJAN
Handlaugartæki
án botnv.
20.950 kr.
FMM SILJAN