Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS T E X T I 15.9 - 16.4.2017 Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 26.3.2017 JOAN JONAS Reanimation Detail 2010/2012 26.10 - 26.02 2017 VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9. - 17.09. 2017 Opið fyrir umsóknir um Sumartónleika LSÓ til og með 21. febrúar. Sjá www.LSO.is Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is KAFFISTOFA heimabakaðar kökur SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Laugardaginn 11 febrúar kl. 15: Opnun ljósmyndasýninga, Steinholt - saga af uppruna nafna og Grímsey Sunnudaginn 12. febrúar kl. 14-16: Christopher Taylor og Cole Barash kynna ljósmyndasýningar sínar og árita bækur. Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Steinholt-saga af uppruna nafna í Myndasal Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Grímsey á Vegg Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Laugardaginn 11. febrúar: Júlía&Julia opna nýtt kaffihús Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi, opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Steinholt – saga af uppruna nafna er heiti sýningar breska ljósmyndarans Christophers Taylor sem verður opnuð í Myndasal Þjóðminjasafnsins í dag, laugardag, klukkan 15. Þetta er röð svarthvítra ljósmynda, hand- gerð falleg prentin gerð eftir filmum sem Taylor hefur lýst með gamalli Rolleiflex-filmumyndavél. Og mynd- efnið er ljóðrænt og að sumu leyti kunnuglegt Íslendingum: haf og hrörleg hús, fjöll og andlit, sauðfé, fiskur og náttúran eins og hún birt- ist norður við íshaf við Langanes og Melrakkasléttu. Toylor segir sýninguna fjalla um minningu staða og hann hefur sett hana upp víðar; þessar Íslands- myndir hans hafa þegar verið sýnd- ar í Kína og fleiri sýningar á þeim eru að fara upp í sama landi, og þá hefur bók með myndunum nýverið komið út hjá virtu þýsku forlagi. Taylor segist hafa komið reglu- lega til Íslands síðan á níunda ára- tugnum þar sem eiginkona hans, Álfheiður Haraldsdóttir er íslensk. „Faðir hennar fæddist á Þórshöfn og föðurfjölskylda hennar er af þessu svæði, norðausturhorninu, og Álf- heiður var á sumrin hjá ömmu sinni og nöfnu á Þórshöfn. Faðir hennar var sjómaður og fór að heiman þegar hann var 14 ára en síðustu árin sem hann lifði, frá 2011, var hann aftur á Þórshöfn, á elliheimili.“ En hann var ekki einn um að koma sér fyrir á Þórshöfn því árið 2010 bauðst Álfheiði og Taylor að eignast húsið sem amma hennar hafði á sínum tíma búið í og þau létu slag standa og hafa síðan dvalið þar um tíma á hverju ári. Og þá fór þessi myndröð, sem nú er sýnd í Þjóð- minjasafninu, að fæðast. „Ég byrjaði á sama tíma að gera upp húsið og taka þessa myndröð hér, myndir sem ég byggi að vissu leyti á sögu tengdafjölskyldu minnar og stöðunum þar sem þau bjuggu,“ segir Taylor. Sumar myndanna eru því teknar á stöðum þar sem horfnir forfeður Álf- heiðar gengu um grundu og aðrar á svæðum á milli þeirra. „Hugmyndin var í og með að kynnast svæðinu,“ segir Taylor. „Mest hef ég myndað á sumrin, eins og sjá má, en þá hef ég gjarnan verið hér í tvo til þrjá mán- uði, en ég hef líka myndað seint á haustin. Þá hef ég stundum unnið um tíma í fiski á staðnum, unnið í húsinu og verið að mynda. Það fer vel saman,“ segir hann og brosir. Á afskekktum stöðum Þegar blaðamaður hefur orð á að stemningin í myndheiminum sé nokkuð þunglyndisleg, eða dap- urleg, þá brosir ljósmyndarinn. „Það fer nú eftir því hvernig mað- ur skilgreinir orðið þunglyndislegt, en vissulega er ákveðin melankólía sem maður upplifir við að koma á staði sem hafa verið yfirgefnir. Það getur verið undarleg og tregafull til- finning, enda tengist ég nú fólkinu sem bjó þar gegnum konuna mína.“ Taylor er sjálfmenntaður ljós- myndari en hefur komið víða við í listinni, og þá einkum í gegnum ljós- myndunina en hann hefur kennt og sýnt víða en einkum í Kína. Þau Álf- heiður eru hins vegar búsett í Suð- ur-Frakklandi. „Þessar myndir hér hef ég tekið á fimm til sex árum. Fyrsta árið hérna átti ég ekki bíl og kannaði þá um- hverfi Þórshafnar á reiðhjóli,“ segir hann. „Ég hjólaði til dæmis út eftir Langanesi og svaf á ströndinni vaf- inn inn í teppi. Þá tók ég þessa mynd þarna um miðnæturleytið,“ segir hann og bendir á húmdökkt lands- lagsform við hafið. Sýnin í myndunum er ljóðræn og kyrr, þar sem áhorfandinn horfir með ljósmyndaranum á haf og fugla. „Já, ljóðræni þátturinn er mér mik- ilvægur. Saga fjölskyldunnar heldur utan um rammann en vitaskuld er meginsagan sem birtist hér saga mín sjálfs. Þetta er mín túlkun á upplifununum, ekki skráning á sögu tengdafjölskyldunnar. Stundum hef ég farið í langar göngur, í tvo til þrjá daga, og hef notið þess að kanna þennan hluta landsins. Og hef þá komið á suma að mér finnst afskekktustu staði Ís- lands og finnst það heillandi. Á sín- um tíma hefur verið gríðarleg fá- tækt á þessu svæði inn til landsins.“ Sýndar í Kína Þegar Taylor er spurður út í fólkið sem birtist á sumum myndanna, þá bendir hann á fullorðinn mann á einni myndinni og segir að það sé tengdafaðir sinn. „Ég tók þessa mynd aðeins viku áður en hann lést. En þarna“ – hann bendir á aðra ljós- mynd – „er hann tveimur árum fyrr“. Þegar spurt er að því hvort þessi viðamikla myndröð frá norðaust- urhorni Íslands hafi verið sýnd víð- ar, segist Taylor hafa sýnt hana í galleríum í tveimur borgum í Kína en hann hefur sýnt oft þar í landi. Og kínverskir sýningargestir kunnu greinilega vel að meta það Ísland sem birtist í myndum hans, því fleiri sýningar á þeim eru á döfinni þar. „Ég hef komið reglulega til Kína undanfarin þrjátíu ár og mér finnst skemmtilegt að sumir sem fjalla um þessar myndir sjá í þeim tengingar við málverk frá Song-tímabilinu. En kannski hefur Kína, og kynni mín af kínverskri list, haft áhrif á sýn mína og hvernig ég upplifi heiminn – líka hér á Íslandi. Það er skemmtileg hugmynd, enda er ég heillaður af kínverskri menningu.“ Undarleg og tregafull tilfinning  Christopher Taylor sýnir ljósmyndir sínar frá norðausturhorni landsins Morgunblaðið/Einar Falur Ljóðrænt „Ég byrjaði á sama tíma að gera upp húsið og taka þessa myndröð hér, myndir sem ég byggi að vissu leyti á sögu tengdafjölskyldu minnar og stöðunum þar sem þau bjuggu,“ segir Taylor en húsið er á Þórshöfn. Á Veggnum, sýningarými fyrir framan Myndasalinn í Þjóðminja- safninu, er opnuð í dag sýningin Grímsey með litmyndum eftir bandaríska ljósmyndarann Cole Barash. Barash er þrítugur ljósmyndari, búsettur í New York og hefur hann verið virkur á sýningarvettvangi undanfarinn áratug. Árið 2015 kom út samnefnd bók með 57 ljós- myndum sem Barash tók í Grímsey. Um verkefnið segir ljósmyndarinn meðal annars í texta sem fylgir myndunum: „Þegar ég dró leið mína inn á Ís- landskortið var mér starsýnt á lít- inn landskika, nálægt veðruðum kanti kortsins, eyju langt norður af ströndinni merkt Grímsey. Það sem vakti áhuga minn var 5,5 km breið- ur veðurbarinn klettur á heim- skautsbaugnum, búsvæði 86 ein- staklinga. Mér fannst ég verða að kanna svæðið nánar og uppgötva hulda fjársjóði eyjunnar… Fyrir ferðina hafði ég hvorki afl- að mér upplýsinga né gert áætlanir um dvölina en eftir að hafa stigið frá borði hafði ég uppi á konu sem útvegaði gististað. Næstu tíu daga dvaldi ég aleinn í litlum kofa og skoðaði eyjuna í krók og kring. Ég knúði dyra, heilsaði og brosti hlý- lega. Á köldum dögum kynti heitt kaffið undir áhuga mínum á að læra meira um menningu þessa af- skekkta staðar. Ári síðan snéri ég til baka til að halda verkinu áfram en í þetta skipti um sólríkt sumar. Vinnan fólst í því að taka myndir af íbúum í návígi innan veggja heimilisins og skrásetja viðbrögð þeirra við birtu og landslagi. Ég treysti á eigið innsæi til að leiða í ljós það áhuga- verða og óvænta: Litbrigði, hluta innréttingar eða þögn í hyldýpi ein- semdar. Verkefnið mótaðist af þessum einstaka stað í heiminum og ég steig inn í samfélag sem er ósvikið, fólkið er lítið upptekið af sjálfu sér, iðjusamt og sannarlega gott. Með mínum augum séð eru það þessi atriði sem móta fólkið og gera það ólíkt öllu öðru sem ég hef kynnst…“ Grímsey – einstakur staður Litríkt Ein af ljósmyndum Coles Barash af mannlífi og stöðum í Grímsey.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.