Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017
Álfahöllin nefnist nýtt leikrit eftir
Þorleif Örn Arnarsson í leikstjórn
höfundar sem frumsýnt verður á
Stóra sviði Þjóðleikhússins 8. apríl.
Álfahöllin kemur í stað sýningar-
innar Aftur á kreik sem áður hafði
verið auglýst, en þar ætlaði Þorleif-
ur að leikstýra nýrri leikgerð á
skáldsögu Timurs Vermes.
„Þorleifur mun skapa nýtt verk í
nánu samstarfi við listræna sam-
verkamenn sína og leikhópinn,“
segir í tilkynningu frá Þjóðleikhús-
inu. Samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðleikhúsinu mun leikstjórinn
takast á við sögu Þjóðleikhússins í
Álfahöllinni um leið og hann rann-
sakar íslenskt samfélag, með öllum
mögulegum aðferðum leikhússins.
Rétt er að rifja upp að Guðjón Sam-
úelsson, arkitekt Þjóðleikhúss-
byggingarinnar, lýsti húsinu sem
voldugum hulduhamri „þar sem
fegurð lífsins blasir við, þegar í
hamarinn er gengið“.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðleikhúsinu ákvað leikstjórinn
að sleppa hendinni af Aftur á kreik
þar sem rannsóknarvinna hópsins
hafði fremur leitt til skoðunar á
samtímanum, stöðu heimsmála og
gildi leikhússins á tímum net-
væddra samskipta. Niðurstaðan
varð að skapa nýja sýningu frá
grunni, þar sem þættir úr sögu ís-
lenskrar leiklistar eru til skoðunar.
Rauði þráðurinn er saga Þjóðleik-
hússins og byrjað á vígsluhátíðinni
1950 áður en sagan er rakin til sam-
tímans. Um leið er verið að skoða
samfélagið, stöðu þess í dag og
framtíðarhorfur.
Leikstjóri Þorleifur Örn Arnarson.
Álfahöllin kemur í stað Aftur á kreik
Töfruð djúp / Conjured Depths
nefnist sýning sem Alana LaPoint
opnar í Listasafninu á Akureyri,
Ketilhúsi, í dag kl. 15.
„LaPoint er að mestu leyti sjálf-
menntaður listamaður sem hefur
haldið fjölmargar einkasýningar og
tekið þátt í samsýningum á heima-
slóðum sínum í Vermont í Banda-
ríkjunum á síðustu tíu árum,“ segir
í tilkynningu og rifjað upp að La-
Point hafi unnið undir leiðsögn
abstraktmálarans Galen Cheney
2007-2009.
„Þetta landslag sem má sjá á sýn-
ingunni varð til vegna löngunar til
að tjá þá hrifningu sem ég upplifi
þegar ég stend í fjöruborðinu,“ seg-
ir LaPoint um verk sín.
Sýningin stendur til 26. febrúar
og er opin þriðjudaga til sunnudaga
kl. 12-17. Leiðsögn um sýningar
Listasafnsins er á fimmtudögum kl.
12.15-12.45. Aðgangur er ókeypis.
Fjöruborð Alana LaPoint opnar sýningu sem innblásin er af náttúrunni.
Alana LaPoint sýnir Töfruð djúp
Björg Brjánsdóttir flautuleikari
og Tina Margareta Nilssen píanó-
leikari ásamt Stine Aarønes fiðlu-
leikara og Brjáni Ingasyni fagott-
leikara koma fram á tónleikum í
Hljóðbergi, tónleikasal Hannes-
arholts, í dag, laugardag, kl. 14.
Á efnisskránni eru hluti af fiðlu-
sónötu í c-moll eftir Edward
Grieg; sónata fyrir fiðlu og píanó
nr. 7 í c-moll eftir Ludwig van
Beethoven; píanótríó nr. 1 í c-moll
eftir Dmítríj Shostakovitsj. Miðar
eru seldir á midi.is og við inn-
ganginn.
Leika verk eftir Grieg, Beethoven og
Shostakovitsj í Hannesarholti í dag
Listamenn Í efri röð eru Brjánn Ingason
og Björg Brjánsdóttir, en í þeirri neðri Tina
Margareta Nilssen og Stine Aarønes.
Breski uppistandarinn Michael
McIntyre hefur sýningarferðalag
sitt með uppstandið Big World
Tour í Laugardalshöll 4. maí.
Samkvæmt upplýsingum frá Senu
er McIntyre óhemjuvinsæll bæði í
heimalandi sínu og víðar.
„McIntyre hefur margoft fengið
tilnefningar fyrir framkomu sína,
meðal annars hefur hann tvisvar
verið tilnefndur til BAFTA-verð-
launa,“ segir í tilkynningu og rifjað
upp að McIntyre hafi hotið tvenn
British Comedy-verðlaun, tvenn
Chortle-verðlaun og National
Television-verðlaun.
Almenn sala hefst fimmtudaginn
23. febrúar kl. 10 á tix.is, en póst-
listaforsala Senu Live fer fram dag-
inn áður fyrir þá sem skráðir eru á
póstlistanum. Aðeins eru 2.500
númeruð sæti í boði.
Hefur sýningarferðalag sitt á Íslandi
Uppistandari Michael McIntyre.
Það er ekki nóg með að Batman þurfi að kljást
við glæpamennina í Gotham borg, heldur þarf
hann að ala upp dreng sem hann hefur ættleitt.
Metacritic 77/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 14.00, 15.40, 17.45
Sambíóin Álfabakka 10.40, 11.40, 13.00, 14.00, 15.20, 16.20,
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.15, 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 13.00, 14.00, 15.15
Sambíóin Akureyri 13.00, 15.20, 17.40, 20.00
Sambíóin Keflavík 13.00, 15.20, 17.40
The Lego Batman Movie Fifty Shades Darker16
Christian berst við innri djöfla sína og Anastasía lendir í heift
þeirra kvenna sem á undan henni komu.
IMDb 4,2/10
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 14.00, 16.50,
17.35, 19.30, 20.00,
22.00, 22.30
Háskólabíó 18.10, 20.50
Borgarbíó Akureyri
17.40, 20.00, 22.20
Hjartasteinn
Örlagarík þroskasaga sem fjallar um sterka vináttu
tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í
unglingsárin og uppgötva
ástina.
Morgunblaðið
bbbbm
IMDb 7,9/10Smárabíó
14.00, 17.00, 20.10,
22.30
Háskólabíó 15.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.40
Bíó Paradís 17.30
La La Land Þau Mia og Sebastian eru
bæði komin til Los Angeles
til að láta drauma sína ræt-
ast.
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 93/100
IMDb 8,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 15.00,
17.20, 20.00
Sambíóin Kringlunni 13.00,
15.40, 17.20, 18.20, 20.00,
21.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 17.20,
20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
xXx: Return of
Xander Cage 12
Xander Cage, sem allir héldu
að væri dauður, snýr aftur úr
sjálfskipaðri útlegð.
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 20.20,
22.40
Sambíóin Egilshöll 17.40,
22.20
Sambíóin Akureyri 22.20
Rings 16
Ung kona fórnar sjálfri sér
fyrir kærastann, en gerir um
leið hrollvekjandi uppgötvun
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
Sambíóin Akureyri 22.40
Sambíóin Keflavík 22.40
The Bye Bye Man 16
Þrír vinir uppgötva óvart
hryllilegt leyndarmál Bye-
Bye mannsins.
Metacritic 37/1010
IMDb 3,8/10
Laugarásbíó 22.40
John Wick:
Chapter 2 16
Leigumorðinginn þarf nú að
sinna beiðni félaga úr fortíð-
inni og takast á við stór-
hættulega morðingja.
Metacritic 74/100
IMDb 9,4/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
The Great Wall 16
Metacritic 36/100
IMDb 6,0/10
Laugarásbíó 20.00, 22.15
Monster Trucks 12
Metacritic 37/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Lion Metacritic 68/100
IMDb 7,9/10
Háskólabíó 15.10, 18.10
Passengers 12
Metacritic 41/100
IMDb 6,8/10
Háskólabíó 15.20
Why Him? 12
Metacritic 38/100
IMDb 6,5/10
Smárabíó 17.20, 20.00
Resident Evil:
The Final Chapter16
IMDb 7,0/10
Smárabíó 19.50, 22.55
Rogue One:
A Star Wars Story 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 66/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Patriot’s Day 16
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 70/100
IMDb 7/10
Laugarásbíó 20.00
Fantastic Beasts and
Where to Find Them
Bönnuð yngri en 9 ára.
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Assassin’s Creed 16
Metacritic 36/100
IMDb 6,7/10
Smárabíó 22.20
Elle/Hún
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 89/100
IMDb 7,3/10
Háskólabíó 20.50
Stór í sniðum
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 48/100
IMDb 3,9/10
Háskólabíó 18.00
Syngdu Kóalabjörninn Buster hefur
mikið verið að spreyta sig í
skemmtanageiranum.
Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 13.45
Sambíóin Álfabakka 10.40,
13.00, 15.20
Sambíóin Keflavík 13.00
Smárabíó 13.00, 15.10,
17.30
Háskólabíó 15.30
Vaiana Metacritic 81/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 10.40,
13.00, 15.20
Sambíóin Egilshöll 13.00,
15.20
Sambíóin Akureyri 13.00
Sambíóin Keflavík 15.20
Billi Blikk Kóalabjarnarstrákurinn Billi
Blikk heldur í sannkallaða
hættuför inn í auðnir Ástr-
alíu. IMDb 5,2/10
Laugarásbíó 13.45, 16.00,
18.00
Smárabíó 13.00, 15.20
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 13.00, 15.15
Paterson
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 90/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 22.00
Moonlight
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 99/100
IMDb 8,2/10
Bíó Paradís 20.00, 22.15
Besti dagur í lífi Olli
Mäki
Metacritic 91/100
IMDb 7,5/10
Bíó Paradís 22.30
The People vs. Fritz
Bauer
Bíó Paradís 18.00
Toni Erdmann
Bíó Paradís 18.00
Original Bliss
Bíó Paradís 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna