Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2017 Enska dablaðið The Financial Tim- es birti í fyrradag gagnrýni um tónleika Emilíönu Torrini og belg- ísku hljómsveitarinnar The Color- ist Orchestra, sem fram fóru í Islington Assembly Hall í Lund- únum degi fyrr, 8. febrúar. Segir m.a. í henni að hljóm- sveitin sérhæfi sig í að endurtúlka lög annarra listamanna og það sem hafi komið hvað mest á óvart á tónleikunum hafi verið sú mikla rýmistilfinning sem tónlistin hafi vakið. Hljómsveitin hafi myndað margslungin taktmynstur og mel- ódíur sem rödd Emilíönu, hrein og með andardráttarhljóði, hafi flotið ofan á. Þar á milli hafi hins vegar ekkert verið, eins og gagnrýnandi kemst að orði. Það hafi hins vegar verið hressandi að tónlistarmenn- irnir óttuðust ekki að mynda eyður og göt í flutningi sínum. Um tíma hafi Emilíana verið farin að missa athygli áheyrenda en náð henni aftur með flutningi á „Today Has Been OK“. Þá hafi flutningur Em- ilíönu og hljómsveitarinnar á „Jungle Drum“ verið glaðlegur. Gagnrýnandi gefur tónleikunum þrjár stjörnur af fimm mögu- legum. Raddfögur Emilíana Torrini. Tónleikar yfir með- allagi, að mati FT Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þær fréttir bárust í gær að Eiður- inn, kvikmynd Baltasars Kormáks, hefði verið seld til yfir 40 landa í mörgum heimsálfum, m.a. Norður- og Suður-Ameríku, Asíu, Evrópu og Ástralíu. „Það er frábært,“ segir Baltasar, staddur á alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Berlín, um söluna á Eiðnum og bætir við að honum hafi gengið nokkuð vel að selja kvik- myndirnar sínar. Spurður að því hvort þessa miklu sölu megi að einhverju leyti þakka hinni miklu umfjöllun og dreifingu sem kvikmynd hans Everest fékk á sínum tíma, segir Baltasar að e.t.v. megi þakka henni þann áhuga sem Eiðnum var sýndur fyrirfram. „Everest gekk rosalega vel, hún er sú af stóru myndunum mínum sem fór langvíðast alþjóðlega, þ.e. ekki í bara um Ameríku heldur um öll heimssvæðin, Kína og Japan o.s.frv. Það kannski kveikir áhugann en svo verður myndin auðvitað að standa undir sér. Hún er á íslensku og það ætlast enginn til þess að hún geri það sama og Everest en það opnar þennan möguleika að fólk sýni henni áhuga strax í byrjun,“ út- skýrir Baltasar. „Þetta eru miklu fleiri en 40 lönd því það eru ýmis svæði sem er ekki farið að telja til, t.d. í Afríku og Mið-Austurlöndum.“ Mikill áhugi fyrir íslensku efni Áhuginn á íslenskum sjónvarps- þáttum erlendis hefur vakið athygli hin síðustu misseri, m.a. á þáttunum Ófærð sem Baltasar framleiddi og hafa opnað dyr fyrir íslenskt sjón- varpsefni á alþjóðamarkaði. Nú síð- ast bárust fregnir af því að Fangar hefðu verið seldir til nokkurra landa og alþjóðlegrar efnisveitu. Baltasar nefnir sem dæmi um vel- gengni Ófærðar að þáttaröðin verði brátt aðgengileg á Amazon í Banda- ríkjunum og að til standi að end- urgera hana fyrir bandaríska sjón- varpsstöð. „Weinstein fyrirtækið keypti íslensku útgáfuna og seldi hana til Amazon og mér skilst að í Frakklandi hafi ekkert erlent efni fengið annað eins áhorf á árinu. Ég var að tala við náunga í morgun frá Studio Canal sem sagði að ótrúlegt væri að sex milljónir Frakka horfðu á þætti sem væru ekki bandarísk stórframleiðsla. Það er fáheyrt,“ segir Baltasar um velgengni þátt- anna og bætir við að þættirnir séu auk þess sýndir á „prime time“, þeim tíma þegar flestir horfi á sjón- varp. „Þetta er búið að vera svona mjög víða með Ófærð og ég held að það sé að opna dyr. Ólafur Darri (Ólafsson) hefur verið að gera það gott en hefur aldrei fengið aðra eins athygli sem leikari og fyrir Ófærð. Hann var á forsíðunni á Sunday Times þannig að þetta er að hafa öðruvísi áhrif, allt í einu erum við að stimpla okkur inn,“ segir Baltasar. Ófærð hafi komið í kjölfarið á vinsælum dönsk- um þáttaröðum og því megi tala um ruðningsáhrif. Sú heitasta á markaðnum Baltasar segir að salan á Eiðnum hafi byrjað á kvikmyndahátíðinni í Toronto í fyrra og hafi því tekið dá- góðan tíma. „Þetta er uppsafnað og verið að klára síðustu svæðin. En ég er hins vegar hérna í Berlín að selja Adrift,“ segir Baltasar og víkur tal- inu að næstu kvikmynd sem hann mun leikstýra. – Það vissi enginn af þessari mynd, Adrift, fyrr en í morgun, eða hvað? Baltasar hlær. „Það má eiginlega segja það, ég var ekkert að fara hátt með hana. Hún er líka að seljast úti um allan heim og það er svolítið öðruvísi, þetta er stór mynd og það er talað um að hún sé sú heitasta á markaðnum hérna,“ segir hann. En hefur þetta kvikmyndaverk- efni verið lengi í pípunum? „Ég er búinn að vera að semja í nokkra mánuði, fann þetta handrit í gegnum mína kontakta og leist vel á. Hand- ritshöfundarnir áttu handritið sem er óvenjulegt því oft eiga stúdíóin handritin, eru búin að kaupa þau og þróa,“ segir Baltasar. „Ég fékk svo leikkonuna, Sheilene Woodley, til að taka að sér aðalhlutverkið í mynd- inni og fór með þetta til stúdíóanna, sem framleiðandi og leikstjóri, til að fá myndina fjármagnaða. Það er það sem ég er búinn að vera að gera í tvo mánuði.“ Frábær leikkona og karakter – Hvers vegna sóttistu eftir þess- ari leikkonu, Woodley? „Af því mér finnst hún frábær. Ég sá hana í The Descendants með George Clooney og hún var frábær í henni,“ segir Baltasar um leikkon- una sem er 25 ára og rísandi stjarna í Hollywood. „Svo er hún líka bara karakter, hefur verið að mótmæla í Dakota, Trump og gaspípunum og því öllu saman. Ég gat varla náð í hana því hún var alltaf einhvers staðar úti að mótmæla. Þetta er al- vörustelpa og karakter, með bein í nefinu,“ segir Baltasar og bætir við að margar ungar leikkonur í Holly- wood hafi sóst eftir hlutverkinu. „Þetta er sönn saga um stelpu sem er hetja, hún er hetjan og ég vildi að áherslan væri lögð á sterkan karakter,“ segir Baltasar um hlut- verkið sem Woodley tók að sér. En hver er sagan? „Hún fjallar um par sem kemur frá Tahítí og er fengið til að sigla skútu fyrir ríkt fólk sem það kynnist, til San Diego sem er jafnlangt og vegalengdin frá Íslandi til Los Angeles. Þau lenda í versta fellibyl sögunnar á miðri leið … og svo vil ég ekki segja mikið meira,“ segir Baltasar. Hér sé því bæði um ástarsögu að ræða og sögu af fólki sem þarf að takast á við nátt- úruöflin og reyna að lifa af. Hörðustu siglingamenn heims Líkt og í kvikmyndum sínum Djúpinu og Everest mun Baltasar leitast við að gera allt eins raunveru- legt og hægt er í Adrift. „Mitt plan er að fá hörðustu sigl- ingamenn í heimi til að sigla skút- unni í brjáluðum öldum og síðan vinna þetta þaðan,“ segir hann og bætir við að það eina sem geti stöðv- að hann sé tryggingafélag eða að hann verði handjárnaður við staur. Baltasar þekkir vel til siglinga, keppti í þeim þegar hann var dreng- ur og segist því ekki óttast sjóinn. „Nú er ég bara á fullu að reyna að finna út hver sé besta lausnin,“ segir hann um tæknilegar hliðar kvik- myndarinnar, þ.e. að færa skútu í miðjum fellibyl upp á hvíta tjaldið með sannfærandi hætti. Baltasar segir að hverri kvikmynd fylgi ný og lærdómsrík áskorun. „Mig langar að upplifa spennandi hluti í gegnum myndirnar mínar og að fara til Tahítí og gera þetta er í mínum augum bara spennandi æv- intýri.“ Kvikmyndar á Tahítí  Eiðurinn verður sýndur í yfir 40 löndum  Shailene Woodley leikur í næstu kvikmynd Baltasars, Adrift Í vanda Baltasar í Eiðnum í hlutverki Finns sem þarf að takast á við kær- asta dóttur sinnar en sá er miskunnarlaus eiturlyfjasali. Ungstirni Shailene Woodley í kvikmyndinni The Descendants frá árinu 2011. Woodley er fædd árið 1991 og nýtur vinsælda í Hollywood. Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 2 OG 3:40 TILBOÐ KL 1:45 TILBOÐ KL 1:45 5% SÝND KL. 8 SÝND KL. 5, 8, 10.30 SÝND KL. 8, 10.15 SÝND KL. 1.45, 4, 6 SÝND KL. 10.40 SÝND KL. 1.45 - ísl tal SÝND KL. 2, 3.40, 5.45 svalandi ísar í einum kassa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.