Morgunblaðið - 15.03.2017, Page 6

Morgunblaðið - 15.03.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is Baðvörur fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús, veisluþjónustur, heilsugæslustofnanir o.fl. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjárfestar áforma að reisa allt að þúsund manna ferðaþjónustuþorp í Bláskógabyggð í Árnessýslu. Þorp- ið yrði í þriggja kílómetra fjarlægð frá Geysi í Haukadal og með versl- un og þjónustukjarna. Verkefnið markar tímamót í ís- lenskri ferðaþjónustu, enda þorpið reist gagngert undir slíka starf- semi. Notast verður við nýjar byggingaraðferðir sem gera kleift að reisa þorpið á skömmum tíma. Birgir Örn Arnarson, stjórn- arformaður fasteignaþróun- arfélagsins Arwen, segir stefnt að því að byggja þorpið á næstu fjór- um til fimm árum. Verkefnið sé enn á þróunarstigi. Húsin verði byggð úr tilbúnum timbureiningum sem eru framleiddar af Byko-Lat í Lett- landi. „Við höfum fest kaup á þremur samliggjandi jörðum, sem eru í sjónlínu við Geysi og með útsýni yf- ir Langjökul og í allar áttir. Þetta eru samtals 76 hektarar og þarna er búið að skipuleggja 8.000 fer- metra byggð, með sumarbústöðum og þjónustumiðstöð og mögulega sundlaug og hóteli. Við ætlum að fara í markaðsrannsókn í sumar og sjá hvað vantar á markaðinn og hvaða þjónustustig. Við erum tilbú- in að skoða nýja möguleika og fara nýjar leiðir,“ segir Birgir Örn. Um er að ræða jarðirnar Markholt, Einiholtsás og Kistutjarnir. Birgir Örn segir þjónustu- miðstöðina munu henta ferðamönn- um sem fara Gullna hringinn svo- nefnda. Þar verði boðið upp á verslun og þjónustu. Til skoðunar sé að gera göngustíga á svæðinu og útbúa hlaupabrautir og aðstöðu undir skíðagöngu á veturna. Marg- ir ferðamenn sæki orðið í útivist. Birgir Örn segir of snemmt að áætla kostnaðinn við verkefnið. Byggt við bjór- verksmiðju Kalda Birgir Örn segir að áður en byrj- að verði á þorpinu muni Arwen ljúka við nokkur þróunarverkefni. Félagið sé að ljúka við nýbygg- ingu undir bjórspa og veitingastað við Bruggsmiðju Kalda á Árskógs- sandi. Þar muni gestir njóta útsýn- is yfir Eyjafjörðinn, Hrísey og Kaldbak. Þá er félagið að byggja 1.450 fer- metra hús við Seljaveg í Reykjavík undir íbúðir og þjónustu. Miðað við að fermetrinn kosti 600-700 þúsund er söluverðið alls um milljarður. Húsin eru úr tilbúnum timburein- ingum frá Byko-Lat í Lettlandi og eru þau fyrstu sinnar tegundar í Reykjavík. Skammur fram- kvæmdatími hefur vakið athygli, enda eru húsin að verða fullbúin að utan aðeins 8 mánuðum eftir að jarðvinna hófst. Sunnan við ný- bygginguna, á horni Seljavegar og Nýlendugötu, mun Arwen reisa annað hús undir íbúðir. Eign- arhaldsfélagið Arwen Holdings var stofnað utan um uppbygginguna við Seljaveg og er Fasteignamark- aðurinn, Óðinsgötu, samstarfsaðili í verkefninu er varðar sölumál. Eftirspurnin margfalt framboðið Spurður um eftirspurnina eftir nýjum íbúðum í miðborginni segir Birgir Örn hana vera slíka að selja mætti hverja íbúð á Seljaveginum þrisvar til fjórum sinnum. Það vanti allar stærðir og gerðir af íbúðum á svæðinu. Hann reiknar með að slegist verði um rýmið und- ir veitingastaðinn. Birgir Örn segir Arwen Holdings jafnframt áforma að reisa íbúðar- hús úr timbureiningum á Miðbraut á Seltjarnarnesi og gera upp Skóla- vörðustíg 36 og reisa nýbyggingu á baklóð hússins. Á jarðhæð á Skóla- vörðustígnum verður verslun, eða veitingarekstur, en íbúðir á efri hæðum. Á síðustu árum hefur Birg- ir Örn og fjölskylda gert upp fimm einbýlishús í 101 og 105 Reykjavík, þar með talið einbýlishúsin að Laufásvegi 65 og 67. Fasteignaverð í miðborginni hef- ur hækkað mikið síðan Arwen hóf að endurgera húsin árið 1994. Birg- ir Örn segir aðspurður það tæplega myndu borga sig í dag að kaupa svona stórar og dýrar eignir mið- svæðis í Reykjavík til þess að gera þær upp og selja. „Annars vegar hefur fast- eignaverð í miðborginni jafnvel þrefaldast á skömmum tíma. Hins vegar er orðið að minnsta kosti tvö- falt dýrara að gera upp svona eign- ir en það var fyrir örfáum árum. Laun iðnaðarmanna og fleiri kostn- aðarliðir hafa hækkað mikið.“ Birgir Örn segir fjölskylduna hafa leigt út íbúðir til ferðamanna í skammtímaleigu. Sá markaður hafi breyst að undanförnu. Eftir styrk- ingu krónunnar hafi tekjurnar dregist saman um 20-30% í krónum talið miðað við útleigu í evrum og bandaríkjadölum. Nú sé lang- tímaleiga jafnvel hagkvæmari. Lóðarverðið hlutfallslega lægra Jakob Helgi Bjarnason er for- stjóri Arwen Holdings. Hann á ekki langt að sækja athafnasemi því hann er barnabarn Jóns Helga Guðmundssonar, forstjóra Norvík- ur. Jakob Helgi segir Arwen sjá sóknarfæri í að finna lóðir í mið- borginni til uppbyggingar. „Slíkar lóðir eru vandfundnar. Þess vegna kaupum við hús til þess að rífa, eða til að byggja stærri, eða gera upp og breyta. Við viljum vera miðsvæðis. Það kostar það sama að byggja í miðbænum og vera í ytri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Hér í miðborginni er fermetraverð- ið kannski 600-700 þúsund en lóð- arverðið 100-120 þúsund. Fer- metraverðið í úthverfum er 350-400 þúsund yst í úthverfum en lóð- arverðið 60-70 þúsund. Það er því tvöfalt hærra fermetraverð í mið- borginni sem vegur þyngra þrátt fyrir tvöfalt hærra lóðarverð,“ seg- ir Jakob Helgi og vísar til nýbygg- inga. Hann segir dæmið ganga upp, hvort heldur sem eignirnar eru leigðar út eða seldar. „Leigutekjur miðsvæðis verða öruggari með þéttingu byggðar og þær eru hærri en í úthverfum. Það eru jafnframt dæmi um að reynst hafi erfiðara að fá leigutaka undir atvinnuhúsnæði í úthverfum sem er hægt að treysta.“ Fjárfestar áforma þúsund manna þorp í nágrenni Geysis  Fasteignaþróunarfélagið Arwen stefnir á uppbyggingu í ferðaþjónustu á næstu fjórum til fimm árum Morgunblaðið/Ómar Ferðamenn Mikill fjöldi fólks er jafnan á ferð í Árnessýslu þar sem Gullfoss og Geysir laða að. Fyrirhugað ferðaþjónustuþorp Geysir Tu ng ufl jó t Hv ítá Gullfoss Grunnkort/Loftmyndir ehf. Jakob Helgi hefur á síðustu árum starfað fyrir Byko-Lat, dótturfélag Byko í Lettlandi. Hann segir einingahúsið á Selja- vegi byggt í samstarfi við fyrirtækið Modulus sem er í eigu Jakobs Helga og hálfsystur hans, Bertu Gunn- arsdóttur. Berta rekur fyrirtækið ásamt Jakobi Helga og Iðunni Jóns- dóttur móður þeirra sem er stjórn- arformaður félagsins. Einingarnar eru framleiddar af Byko-Lat, en hannaðar og fluttar inn af Modulus. Hann segir engin eigna- tengsl milli Modulus og Byko-Lat. Jakob Helgi segir marga kosti við þessa byggingaraðferð. Bygging- arnar verði hagkvæmari í verði og byggingartíminn styttri, sem aftur lækki fjármögnunarkostnað. Til dæmis sé byggingartíminn á Selja- vegi allt að hálfu ári styttri en ef byggt væri úr steinsteypu. Hljóðein- angrun sé mun betri en gengur og gerist á Íslandi, þrefalt gler í glugg- um og eldvarnir ekki lakari en í steinsteyptum húsum. Hann segir Modulus bjóða upp á innflutt hús sem eru með gólfefnum, blöndunartækjum, ljósum og fullfrá- gengin að utan. Hægt sé að reisa lít- ið einbýlishús á aðeins 12-13 vikum með þessari aðferð, að meðtalinni vinnu við að grafa grunn og steypa plötu. Ný byggingaraðferð Morgunblaðið/Baldur Ný byggingaraðferð Húsið við Seljaveg í Reykjavík er reist úr tilbúnum timbureiningum. Þar er gert ráð fyrir íbúðum og þjónusturými.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.