Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 10

Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 LLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is MOSFE Ert þú búin að prófa súrdeigsbrauðin okkar? Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Vegagerðin áformar að gera tvö hringtorg á Þingvallavegi í Mosfells- dal til að draga úr hraða á veginum og auka þar með umferðaröryggi og draga um leið úr umferðarhávaða. Bæjarblaðið Mosfellingur greinir frá. Vegagerðin vinnur að þessu í sam- ráði við Mosfellsbæ, sem fer með skipulagsmál í dalnum. Breyta þarf aðal- og deiliskipulagi vegna þessara framkvæmda og fer sú vinna fram á næstu mánuðum. Hringtorgin eru áformuð annars vegar við gatnamót Helgafellsvegar og afleggjarans að Laxnesi og golf- vellinum í Bakkakoti og hins vegar við mót Æsustaðavegar og Mosfells- vegar, þó aðeins vestar. Um leið verður vegtengingum og afleggjur- um fækkað á þessum kafla. Jónas Snæbjörnsson, umdæmis- verkfræðingur hjá Vegagerðinni, segir við Morgunblaðið að unnið sé að heildarskipulagi svæðisins. Markmiðið sé að auka umferðarör- yggi í dalnum, draga úr umferðar- hraðanum og fækka vegtengingum. Íbúar í dalnum hafa kvartað und- an ónæði frá aukinni umferð um Þingvallaveg. Samfara því hefur hraðinn aukist, sér í lagi í vesturátt niður af Mosfellsheiðinni. Jónas reiknar með að skipulags- vinnunni ljúki í sumar en ekki hafi verið ákveðið hvenær ráðist verði í framkvæmdir. Líklega verði það á allra næstu árum. Áætlun Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að tvö hringtorg og ein und- irgöng við Laxnes muni kosta um 250 milljónir króna. Áforma tvö hring- torg í Mosfellsdal  Ætlað að draga úr ökuhraða og auka umferðaröryggið Hringtorg í Mosfellsdal Þi ng va lla ve gu r Gljúfrasteinn Mosfells- kirkja Laxnes Bakkakot Laugabakki Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Sveitarfélagið hefur miklar áhyggjur af því að bryggjan í Flatey sé að brotna nið- ur og geti verið hættuleg,“ segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reyk- hólahrepps. Hún segir að áhyggjum hafi ítrekað verið komið á framfæri við Vega- gerðina, en góð hafnaraðstaða í Flatey sé hagsmunamál sveitarstjórnar, stjórnenda Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, íbúa í Flatey og þess mikla fjölda sem sæki eyj- una heim. Það einfaldi ekki málið að deilt sé um forræði yfir hafnarmannvirkjum og hver eigi að annast viðhald. Keyrt í springinn Framan við gamla frystihúsið í Flatey er steypt plan, en síðan kemur bryggjan í tveimur hlutum. Nær landi er gamli hluti bryggjunnar og er hann orðinn fúinn og lélegur, að sögn Ingibjargar, og er veiki hlekkurinn í þessum mannvirkjum. Hún þolir illa aukið álag sem fylgir nýrri og stærri ferju. Fremri hlutinn er nokkurra ára og einnig farinn að láta á sjá. Nýi Baldur er stærri en sá gamli og getur ekki lagst að bryggju nema með því að keyra í springinn. Landfestar eru þá settar á polla og hann notaður sem mót- staða á meðan ferjan er keyrð að bryggj- unni. Átökin eru það mikil að allt leikur á reiðiskjálfi, bæði nýja bryggjan sem fest er í og gamla bryggjan. Ingibjörg segir að bryggjan þoli ekki þessar aðfarir, sér- staklega ekki í slæmum vestanveðrum þegar átökin eru enn meiri en venjulega. Ekki hlutverk sveitarfélagsins Hún segir að ferjusiglingar frá Stykkis- hólmi í Flatey og þaðan til Brjánslækjar séu þjóðvegur þeirra sem eiga erindi í Flatey og því á forræði Vegagerðarinnar eins og verið hafi í áratugi. Sveitarfélagið hafi síðast unnið reglugerð með gjaldskrá fyrir höfnina árið 1947 eða fyrir 70 árum. Vegagerðin hafi tekið við höfninni án sér- stakra samninga þar að lútandi. „Fljótlega eftir hrun, þegar efnahags- lífið var í mestri lægð, fór Vegagerðin hins vegar að tína utan af sér verkefni, sem hún hafði haldið utan um í fjölda ára, þar á meðal hafnarmannvirkin í Flatey. Sveit- arfélagið hefur ekki viljað taka við höfn- inni, enda ekki þess hlutverk að reka ferjuhöfn. Ég hef hins vegar trú á að lausn finnist á þessu máli og Vegagerðin komi að nauðsynlegum endurbótum á höfninni,“ segir Ingibjörg. Slysahætta á bryggjunni Hún segir að Vegagerðin hafi komið með óformlega hugmynd um að setja tryggari polla uppi á landi til að halda á móti skipinu. Slíkt hafi þó ekkert verið út- fært og geti aðeins verið bráðabirgðalausn en ekki viðgerð. Til að tryggja öryggi á bryggjunni hefur fólki síðustu misseri verið bægt frá þegar Baldur leggst að. Ingibjörg segir að slysa- hætta sé fyrir hendi á bryggjunni og brýnt sé að ráðast í framkvæmdir sem allra fyrst. Telja að bryggjan geti verið hættuleg  Eldri timburbryggjan í Flatey á Breiðafirði þolir ekki aðfarirnar þegar Baldur leggst að bryggju  Reykhólahreppur vill úrbætur og er ekki sammála Vegagerðinni um forræði yfir mannvirkjum Ljósmynd/Reykhólahreppur Í Flatey Breiðafjarðarferjan Baldur við bryggju og fólk fylgist álengdar með. Sveitarstjóri hefur áhyggjur af slysahættu á bryggjunni. Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs, segir að Vegagerðin hafi gert úttekt á bryggjunni í Flatey. Ljóst sé að ráðast þurfi í lagfæringar á bryggjunni, meðal annars á krossbitum og þverbitum undir henni. Hann segist ekki geta sagt hvenær ráðist verði í þær framkvæmdir en það verði tæpast á þessu ári þar sem engar fjárveitingar séu fyrir hendi. Hann segir að bryggjan sé í eigu Reyk- hólahrepps og hafi upphaflega tilheyrt gamla Flateyjarhreppi. Sigurður segir að Vegagerðin hafi ekki rekið bryggjuna síð- ustu áratugi þó ríkið hafi fjármagnað end- urbyggingu hennar. Vegagerðin hafi í sjálfu sér engar heim- ildir til þess að reka bryggjuna. Hins vegar sé spurning hvort ekki væri eðlilegast að ríkið tæki formlega við bryggjunni og hún fengi í framhaldinu eðlilegt viðhald. Sam- hliða yrði tekið gjald af Baldri vegna notk- unar á mannvirkjunum. Engar fjárveitingar á þessu ári VEGAGERÐIN EKKI MEÐ HEIMILDIR TIL AÐ REKA BRYGGJUNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.