Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 12

Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta truffluævintýri á upp-haf sitt í því að fyrir tveim-ur árum fékk ég ítalskavini mína til að koma til Vestmannaeyja á ítalska daga sem ég hélt þar. Þetta voru meistara- kokkarnir Michele Mancini og Marco Savini, ásamt Alberto Kappé og ítölskum undirleikara sem kom með Höllu Margréti söngkonu. Trufflur voru í aðalhlutverki og ítölsku kokkarnir töfruðu fram góð- gæti fyrir gesti, en Marco er með- eigandi eins þekktasta trufflu- fyrirtækis Ítalíu, Savitar, sem framleiðir afurðir úr trufflum. Ég fór líka með þessa ítölsku vini mína til Reykjavíkur á nokkra veitinga- staði og þeir urðu heillaðir af hæfi- leikum íslenskra kokka og framsýni þeirra. Þeim finnst frábært hvaða slóð fólk er að feta hér í matargerð, veisluþjónustu og öðru slíku. Eftir þetta vildu þeir ólmir gera eitthvað með Íslendingum og í framhaldinu fór ég að kynna mér trufflur,“ segir Sigurjón Aðalsteinsson veitinga- stjóri Einsa kalda, veitingastaðar á Hótel Vestmannaeyjum, en hann hefur nú hafið innflutning á trufflum og truffluafurðum til Íslands, í sam- vinnu við þessa ítölsku vini sína sem eru með gríðarlegan Íslandsáhuga. Með hundum á truffluveiðum „Trufflur eru jarðsveppir sem hafa verið notaðir í matargerð öld- um saman. Trufflur voru lúxusvara og eru enn. Tvenns lags tegundir af trufflum eru til, svartar og hvítar. Sú svarta vex í nokkrum löndum, Spáni, Króatíu, Frakklandi og Ítal- Ítalirnir eru alveg heillaðir af Íslandi Hann hefur eignast góða vini í ítölskum meistarakokkum og markmanninum heimsfræga Buffon, en kokkurinn hans er harður aðdáandi íslenska karlalands- liðsins í knattspyrnu. Ítalíuævintýri Eyjapeyjans Sigurjóns Aðalsteinssonar hefur undið upp á sig og nú flytur hann inn ítalska jarðsveppi, svokallaðar trufflur. Morgunblaðið/Ásdís Gómsæti Ítalskar hágæða truffluafurðir Sigurjóns sem fást nú á Íslandi. Blak Sigurjón og Veronica systir Buffons, en hún var í landsliði Ítala í blaki. Tónlistarmaðurinn og kerfisfræð- ingurinn Jónas Sigurðsson verður gestur Gunnar Hersveins rithöf- undar og heimspekings í Heim- spekikaffinu í Gerðubergi í kvöld 15. mars, kl. 20. Þeir munu spá meðal annars í hamingjuna út frá kerfum. Heimspekilegum spurn- ingum verður varpað fram eins og: er hægt að greina hamingjuna eins og tölvukerfi? Getur gervigreind upplifað hamingju? Er hamingjan margslungið kerfi, snögg upplifun eða eitthvað annað? Heimspeki- kaffið í Gerðubergi hefur verið vin- sælt undanfarin misseri, en þar er fjallað á mannamáli um hvers kon- ar líferni er eftirsóknarvert. Gestir í Heimspekikaffinu taka virkan þátt í umræðum og hafa margir fengið gott veganesti eftir kvöldin og hugðarefni til ræða frekar. Gunnar Hersveinn hefur umsjón með dag- skránni og leiðir gesti í lifandi um- ræðu um málefnin. Hann hefur m.a. skrifað bækur um gildin í líf- inu og samfélaginu. Jónas Sig er þekktur fyrir einstakan og kraft- mikinn lifandi flutning með hljóm- sveit sinni, Ritvélar framtíðarinnar, og texta sem láta engan ósnortin. Allir eru velkomnir á viðburðinn. Heimspekikaffi á Borgarbókasafninu Gerðubergi Hugsuður Jónas Sig & Ritvélar framtíðarinnar gáfu út lagið Hamingjan er hér, árið 2010. Jónas mun fjalla um hamingjuna í Heimspekikaffinu í kvöld. Spurt er: Hvað er hamingja? Málfundur um húsnæðismál ungs fólks og hvað er til ráða? verður í Stúdentakjallaranum kl. 20.30 í kvöld. Stjórnmálamenn og sérfræð- ingar í faginu ræða málin og svara spurningum úr sal. Í pallborði munu sitja Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri, Nichole Leigh Mosty, formaður velferðarnefndar Alþingis, Guðfinna Guðmundsdóttir, fasteignalögmaður og fulltrúi í umhverfis og skipulags- ráð Reykjavíkurborgar, og Konráð S. Guðjónsson frá greiningardeild Arion banka. Allir eru velkomnir. Málfundur um húsnæðisvanda ungs fólks á Íslandi Eignalausa kynslóðin Morgunblaðið/Eggert Borgarstjóri Dagur mætir á fundinn. Í dag miðvikudag, mun Íslandsdeild Amnesty International, Rauði krossinn á Íslandi og Mannréttindaskrifstofa Ís- lands standa að málþingi um stöðu flóttamannamála í Evrópu og á Íslandi. Málþingið er í Háskóla Íslands, stofu 132 í Öskju. Málþingið hefst kl. 12 og stendur yfir í klukkutíma. Sérstakur gestur Íslandsdeildar Am- nesty International, kanadíski lög- fræðingurinn Anna Shea, verður meðal framsögumanna. Hún starfar sem rannsakandi og ráðgjafi hjá aðal- stöðvum Amnesty International í London. Framsaga Önnu ber heitið, Europe’s Refugee Crisis: Solution Looking for a Problem? Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá Rauða krossinum á Íslandi, heldur erindi um stöðu flóttamannamála á Íslandi, hvað gengur vel og hvað má betur fara. Mar- grét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, leiðir málþingið. Öll erindin verða flutt á ensku og bjóða skipuleggjendur mál- þingsins alla áhugasama velkomna. Endilega mætið og hlustið á framsögur um … … mannréttindi og málefni flóttamanna í Háskóla Íslands Morgunblaðið/Eggert Velkominn Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, bauð sýrlenska flóttamenn velkomna til landsins á Bessastöðum í janúar síðastliðnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.