Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Morgunblaðið/Ásdís
Vinir Sigurjón og Mike saman utan við Ostabúðina við Skólavörðustíg þar sem Mike matreiddi með truffluafurðum.
íu. Hvíta trufflan er sjaldgæfari en
sú svarta, hún vex aðeins á Ítalíu og
aðeins í þremur héruðum þar. Hér
áður voru svín notuð til að leita uppi
trufflur, því þær vaxa við rætur
ákveðinna trjáa og það þarf að grafa
eftir þeim. En nú eru sérþjálfaðir
litlir hundar notaðir á truffluveiðum,
eins og þeir kalla leitina,“ segir
Sigurjón, sem hefur farið á trufflu-
veiðar og fylgst með hundunum.
„Þeir verða mjög æstir þegar
þeir hafa þefað uppi hvar trufflur
eru, skottið á þeim fer á fullt og þeir
byrja að grafa af miklum móð. En
það þarf að passa að þeir éti ekki
trufflurnar eða skemmi þær, því
þeir eru afar sólgnir í þær. Trufflu-
veiðimennirnir eru með sérstaka
hnífa til að ná trufflunum og þurfa
að vera mjög snöggir að skera áður
en hundurinn nær að éta þær. Veiði-
mennirnir verða að vera í góðu
formi til að fylgja hundunum eftir
og kasta til þeirra hundanammi svo
þeir snúi frá trufflunni.“
Jaðrar við slagsmálum
Sigurjón segir að þegar trufflu-
veiðunum sé lokið fari trufflu-
veiðimennirnir til eiganda trufflu-
fyrirtækisins, í hans tilfelli Claudio
hjá Savitar, og þá fari af stað há-
værar samningaviðræður um verðið.
„Það gengur mikið á með
handapati og jaðrar við slagsmál,
því verðið er mjög breytilegt. Einn-
ig þarf að þefa af trufflunum, snerta
og meta áferðina, skoða litinn og
fleira sem skiptir máli í gæðunum.
En að þessum látum loknum, þegar
menn hafa náð samkomulagi setjast
þeir niður og fá sér vínglas og allir
eru vinir. Þetta er mikið sjónarspil,“
segir Sigurjón og bætir við að með-
altruffla sé á bilinu 30-50 grömm og
þær kosti meira eftir því sem þær
séu stærri.
„Örfáir veitingastaðir á Íslandi
kaupa svartar trufflur í sína matar-
gerð, Holtið, Kolabrautin og Grillið,
en þá borga menn um 180 þúsund
fyrir kílóið. Kíló af hvítri trufflu
kostar í kringum milljón, komið
hingað til Íslands. Dýrasta truffla
sem hefur verið seld í heiminum var
hvít truffla, 1,3 kíló að þyngd, en
hún var seld á 330.000 dollara, rúm-
lega 40 milljónir íslenskra króna.“
Þróun með íslenskt hráefni
En truffluafurðirnar sem
Sigurjón hefur nú komið í sölu á Ís-
landi eru á viðráðanlegu verði fyrir
almenning.
„Fólk getur keypt trufflu-
hunang sem er gott með ostum og
út í salat, trufflu-chutney sem er
gott með hreindýrapaté og villibráð,
trufflu-balsamico sem er gott með
eftirréttum og truffluolíu í mariner-
ingu á nautakjöti eða yfir salat. Og
það þarf einungis að nota agnarlítið
af þessum afurðum í hvert sinn sem
matreitt er,“ segir Sigurjón og bæt-
ir við að hann og Ítalirnir vinir hans
hafi í samvinnu við þróunarverkefni
í Sjávarklasanum prófað íslenska
þorsklifur með trufflum.
„Það er gaman að prófa að
blanda saman óvæntum hráefnum
og Ítölunum fannst þetta sælgæti.
Við fórum í framhaldinu út í það að
niðursjóða þorsklifur með trufflum
og það kom vel út. Við prófuðum
þetta líka með laxi og búið er að
gera samning um framleiðslu á
niðursoðna laxinum með trufflunum
við erlendan stórmarkað. Núna höf-
um við áhuga á að búa til trufflu-
smjör og truffluost, úr íslensku
smjöri og íslenskum osti. Fyrsti
veitingastaðurinn til að vinna með
Savitar var Hamborgarafabrikkan
þeirra Simma og Jóa, en þeir truffl-
uðu einn borgarann og nefndu hann
Il maestro í höfuðið á Kristjáni Jó,“
segir Sigurjón og bætir við að stefnt
sé að því að vinna að þróun rétta
með Jóni Erni í Kjötkompaníinu og
hans fólki, til að að bjóða upp á í
kjötborðinu sem og í veislum.
Buffon þoldi illa að tapa
fyrir Íslendingum árið 2004
Vinur Sigurjóns, fyrrnefndur
meistarakokkur Michele Mancini,
starfar með honum og Savitar við að
þróa rétti sem matreiddir eru með
truffluafurðum, og hann var staddur
á Íslandi fyrir skömmu og bauð þá
upp á trufflufiskrétt í Ostabúðinni
við Skólavörðustíg.
„Þetta er í þriðja sinn sem ég
kem til Íslands, sem er ótrúlega fal-
legt land, hvílík náttúra,“ segir
Mike, eins og hann er alltaf kall-
aður. „Ég er heillaður af öllu sem ís-
lenskt er og ég er einn af þessum
brjáluðu aðdáendum íslenska lands-
liðsins í fótbolta. Ég á íslenskar
landsliðstreyjur og hvað eina,“ segir
hann og bætir við að út af þessu hafi
þeir lent í svolitlu rifrildi, hann og
Gianluigi Buffon vinur hans,
landsliðsmarkmaður Ítalíu og einn
af frægustu íþróttamönnum heims,
en Mike er yfirkokkur á veit-
ingastað Buffons. „Buffon er bara
fúll út í Íslendinga af því hann kom
hingað til að spila árið 2004 og liðið
hans tapaði gegn Íslendingum,“ seg-
ir hann og hlær.
Hissa á hlýju Íslendinga
„Því miður komst ég ekki til
Frakklands í fyrra á EM til að fylgj-
ast með ótrúlegri velgengni íslenska
liðsins, ég var að vinna á veitinga-
staðnum hans Buffons, en ég fylgd-
ist með í sjónvarpinu í eldhúsinu, og
þegar Íslendingar unnu Englend-
inga fagnaði ég rosalega. Það voru
nokkrir breskir viðskiptavinir að
borða á veitingastaðnum á þessu
augnabliki, og þeir skildu auðvitað
ekkert í þessum látum,“ segir Mike
og bætir við að honum líki vel
hversu opnir og vinalegir Íslend-
ingar eru.
„Ég hefði ekki trúað því að
þessi þjóð hér í köldu norðri væri
svona hlý. Ég hef eignast ótrúlega
marga íslenska vini í Íslands-
heimsóknum mínum. Mér finnst
eins og við Sigurjón höfum alltaf
þekkst, og þegar hann kemur í bæ-
inn minn á Ítalíu heilsa allir honum.
Þegar ég segi fólki heima á Ítalíu að
ég sé að fara til Íslands eru allir
mjög áhugasamir, af því Ísland er
framandi og spennandi, ólíkt öllu
öðru. Ég kann einstaklega vel við
mig í Vestmannaeyjum, þar er para-
dís.“
Sigurjón kynntist hinum fræga
Buffon í gegnum Mike. „Á hótelinu
hans Buffon starfar nánast öll fjöl-
skylda hans, foreldrar, systur hans
tvær og mágur, sem öll eru mikið
íþróttafólk. Móðir hans er stærsta
kona sem ég hef séð, en hún var
Ítalíumeistari í 16 ár í kúluvarpi.
Faðir hans var í landsliði Ítala í
frjálsum íþróttum, en allt er þetta
auðmjúkt fólk, engir stjörnustælar í
því. Buffon er dásamlegur maður,“
segir Sigurjón, sem hefur orðið
heimilisvinur þessarar ítölsku fjöl-
skyldu og dvelur á Ítalíu stóran
hluta af vetrinum.
Girnilegt Trufflufiskurinn sem
Mike bauð upp á í Ostabúðinni.
Three Amigos Hinn heimsfrægi
Buffon, Sigurjón og Mike.
Truffluafurðirnar fást í Ostabúð-
inni við Skólavörðustíg, Kjötkomp-
aníinu í Hafnarfirði og Búrinu á
Granda.
Spurningakeppni eða pubquiz verður
á Stofunni kaffihúsi á Vesturgötu 3
klukkan 20:30 í kvöld. Spurningahöf-
undur og spyrill verður Sigurbjörn
Kristjánsson, betur þekktur sem
Siddi. Spurningaþema verður fyrir
kvöldið eins og venjan er og munu
spurningarnar fjalla um ávexti, ís,
auglýsingar og orgíur. Í viðburðar-
upplýsingum kemur fram að spurt
verður um ýmsa ávexti sem fyrirfinn-
ast á jörðinni, ísinn sem er svo vin-
sælt að fá sér í eftirrétt og orgíur
sem er hægt er að stunda fyrir/
eftir/á meðan maður fær sér ís
ásamt þeim auglýsingum sem finna
má í nánast hvaða formi sem er.
Verðlaun eru veitt skörpustu,
skemmtilegustu og slökustu kepp-
endum. Verðlaun eru einnig veitt fyrir
2. sæti og miðjusætið ásamt því að
liðið með besta nafnið fær verðlaun.
Spurningum er skipt í þrjár lotur,
hefðbundnar spurningar, valmögu-
leikaspurningar og svo í síðustu lot-
unni er að finna tóndæmi ásamt
hefðbundnum spurningum. Hámark
fjórir keppendur saman í liði og lofar
spurningahöfundur miklu fjöri. Þeir
sem hafa áhuga eru hvattir til að
mæta 20:30 og keppni hefst stuttu
síðar. Ekkert þátttökugjald er í spurn-
ingakeppnina og eru allir sem hafa
áhuga á skemmtilegum spurninga-
keppnum eru hvattir til að mæta.
Ávextir, auglýsingar, ís og orgíur er þema kvöldsins
Þema Spurningahöfundur setti saman mynd úr spurningaþema kvöldsins.
Spurningakeppni á Stofunni
Stofan Spurningakeppnin fer fram á
neðri hæð Stofunnar kaffihúss.