Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 14

Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14 GOTT ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM Á UNGA FÓLKIÐ Verið velkomin til okkar í sjónmælingu Afgreiðum samdægurs Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Í svari Jóns Gunnarssonar, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, við fyrirspurn frá Einari Brynjólfs- syni, þingmanni Pírata, um við- brögð við lokun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli (NA/SV) kemur fram að samgöngu- ráðuneytið hefur skoðað að opna NA/SV flugbraut á Keflavík- urflugvelli sem er í sömu stefnu og neyðarbrautin 06/24 á Reykjavík- urflugvelli. Fyrirspurn þingmannsins er svo- hljóðandi: „Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til að bregð- ast við lokun svokallaðrar neyðar- brautar (NA/SV) á Reykjavíkur- flugvelli sem hefur leitt til þess að við óhagstæð veðurskilyrði er óger- legt að lenda sjúkraflugvélum í nánd við eina hátæknisjúkrahús þjóðarinnar?“ Í svari ráðherrans kemur fram að miðað við þá forsendu að NA/SV brautin yrði eingöngu nýtt sem varabraut fyrir innanlandsflug sé kostnaður við opnun hennar áætl- aður um 240 millj. kr. Til skoðunar sé hvort aðrar ódýrari lausnir séu mögulegar við að nýta brautina. „Samgöngustofa hefur eftirlit með rekstri flugvalla. Á grundvelli reglugerðar um flugvelli nr. 464/ 2007 skulu fyrirhugaðar breytingar á rekstri flugvalla gerðar í samráði við Samgöngustofu. Erindi um lok- un flugbrautar 06/24 barst til Sam- göngustofu frá Isavia árið 2014. Því fylgdi matsgerð Isavia þar sem lagt var mat á flugöryggislega áhættu af breytingunni fyrir notendur flug- vallarins og kynntar ráðstafanir til að tryggja áframhaldandi þjónustu fyrir notendur án þess að draga úr öryggi. Ekki var lagt mat á áhrif á aðra þætti, svo sem neyðarskipulag almannavarna, sjúkraflutninga, fjárhagslegar afleiðingar á flug- rekstur né flugvallarkerfið í heild,“ segir m.a. í svari ráðherra. Fram kemur í svarinu að Sam- göngustofa hefur heimilað lokun brautarinnar, eins og kunnugt er. Stofnunin hafi aftur á móti ekki af- greitt málið endanlega, þar sem eft- ir sé að taka afstöðu til ýmissa ráð- stafana sem Isavia hafi tilkynnt að nauðsynlegar séu vegna lokunar- innar til að auka nýtingu og bæta þjónustu vallarins með þeim braut- um sem eftir séu. Um ræði m.a. ráð- stafanir til að auka viðnám og bæta nýtingu brauta í hálku, hliðarvindi og við önnur óhagstæð veðurskil- yrði. Í þeim tilgangi hafi nýr og full- komnari brautasópur verið keyptur til snjóhreinsunar á brautum. Þá hafi verklagi við snjóhreinsun og hálkuvarnir verið breytt þannig að fyrr sé brugðist við en áður. Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki tekið vel í hugmyndir um að opna neyðar- brautina aftur. Ljóst sé að torsótt verði að ná sátt um það við núver- andi meirihluta borgarstjórnar. Torsótt að ná sátt um opnun  Áætlar að opnun NA/SV brautar í Keflavík kosti um 240 milljónir króna Morgunblaðið/RAX Sjúkraflug Sjúkraflugvél kemur inn til lendingar, en 06/24 er nú lokuð. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is „Vegagerðin hefur lagt áherslu á undanförnum mörgum árum að ákveðnar stofnbrautir væru með mislæg gatnamót til að tryggja gott og öruggt flæði umferðar á höfuð- borgarsvæðinu. Reykjavíkurborg hefur verið andsnúin slíkum gatna- mótum en Vegagerðin hefur lagt áherslu á að halda alltaf opnum þeim möguleikum í skipulagi borgarinnar að byggja mætti mislæg gatnamót þar sem það er talið nauðsynlegt – þótt það yrði ekki gert á næstunni. Það á einnig við um mislæg gatna- mót Bústaðavegar og Reykjanes- brautar.“ Þannig hljómar upphaf fréttar á heimasíðu Vegagerðarinn- ar. Vegagerðin tekur fram í fréttinni, að hún hafi af og til á undanförnum árum farið fram á umræðu við sam- göngudeild borgarinnar um gerð mislægra gatnamóta á Bústaðavegi og Reykjanesbraut, en fengið þau svör að slíkt væri ekki á dagskrá. „Það er því ekki rétt að Vegagerðin hafi ekki fylgt þessu máli eftir, eins og fulltrúi Reykjavíkurborgar hefur haldið fram. Það er heldur ekki rétt að þessi gatnamót hafi einungis verið sett á samgönguáætlun í mýflugu- mynd. Þau voru nú síðast sett í heild á samgönguáætlun 2015-2026 sem lögð hefur verið fram á Alþingi.“ Brú eða undirgöng? Fram kemur að undirbúningur að gerð mislægra gatnamóta á þessum stað var vel á veg kominn árið 2006 í samvinnu embættis borgarverk- fræðings og Vegagerðarinnar. Tvær megintillögur voru lagðar fyrir borg- arráð þar sem önnur tillagan gerði ráð fyrir undirgöngum undir Reykjanesbraut, en hin tillagan gerði ráð fyrir brú yfir Reykjanes- braut. Borgarráð hafnaði báðum til- lögunum og óskaði eftir lagfæring- um á gatnamótunum í plani. Undirgangatillagan gerði ráð fyrir örlitlum breytingum á vestasta far- vegi Elliðaánna, en brúartillagan gerði ekki ráð fyrir neinu raski á far- veginum. „Það er mikið stílbrot í kerfinu í dag að gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar skuli ekki vera mislæg. Tafir síðdegis eru mjög miklar og hætta á óhöppum og slys- um því mun meiri en ella. Til bráða- birgða var á árunum 2008 eða 2009 bönnuð vinstri beygja út úr Bústaða- vegi inn á Reykjanesbraut til norð- urs á annatímum að morgni og síð- degis. Þessi ráðstöfun hefur reynst vel á morgnana þegar umferðar- straumurinn er mestur til norðurs. Við gerð deiliskipulags Sprengi- sandsreits við vegamótin hefur borg- in fallist á að pláss verði fyrir mislæg gatnamót í framtíðinni,“ segir í frétt- inni á vef Vegagerðarinnar. Tölvuteikning/Vegagerðin Tillaga Ein útfærsla gatnamóta við Sprengisand. Hér er gert ráð fyrir brú af Reykjanesbraut á Bústaðaveg. Vegagerðin þrýstir á mislæg gatnamót  Reykjanesbraut/Bústaðavegur flöskuháls  Tvær lausnir Stjórn Faxaflóahafna sf. samþykkti sl. föstudag ársreikning félagsins fyr- ir árið 2016 og ber hann með sér að tekjur voru umfram áætlun og rekstrarliðir undir áætlun. Rekstrartekjur voru liðlega 3,4 milljarðar króna sem er 7,6% hækk- un á milli ára. Rekstrargjöld voru 2,7 milljarðar og hækkuðu um 6,1% á milli ára. Hækkun tekna stafa aðal- lega af auknum vöruflutningum. Hins vegar varð samdráttur í aflagjöldum milli ára en samdráttur í lönduðum afla og styrking krónunnar vegur þar þyngst, segir í greinargerð hafnar- stjóra með ársreikningnum. Tekjur Faxaflóahafna sf. af komu skemmtiferðaskipa námu alls 262,5 milljónum í fyrra eða sem nemur 7,7% heildartekna. Kostnaður á móti þeim tekjum er m.a. launakostnaður hafnarstarfsmanna, kostnaður við dráttarbáta og öryggisgæslu. Hagnaður ársins nam 742,8 millj- ónum. Langtímaskuldir fyrirtækisins lækkuðu um 86,7 mkr. á milli ára og voru um áramót 749,9 milljónir króna. Til fjárfestinga var ráðstafað lið- lega 1,9 milljörðum sem er nokkru hærra en gert hefur verið undanfarin ár. Framkvæmdir hófust á árinu 2016 við nýjan hafnarbakka utan Klepps auk þess sem gengið var frá samkomulagi við Björgun hf. um kaup eigna, rýmingu lóðarinnar á Sævarhöfða 33 og gerð 25.000 fer- metra lóðar samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Þá var unnið að hækkun kantbita á Grundartanga auk ýmissa verkefna í Gömlu höfn- inni. „Í heildina er niðurstaða ársreikn- ingsins vel viðunandi, en framundan eru stór verkefni í hafnarmálum, sem mikilvægt er að fyrirtækið sé í stakk búið að leysa á komandi árum,“ segir í frétt á heimasíðu hafnanna. sisi@mbl.is Vöruflutningar umfram áætlun  Rekstur Faxaflóahafna jákvæður Morgunblaðið/Rósa Braga Sundahöfn Um hana fer meg- inþunginn af innflutningnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.