Morgunblaðið - 15.03.2017, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017
alvöru grillaður kjúklingur
Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585
Opið alla daga kl. 11-22
15. mars 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 111.79 112.33 112.06
Sterlingspund 135.58 136.24 135.91
Kanadadalur 83.09 83.57 83.33
Dönsk króna 15.992 16.086 16.039
Norsk króna 13.035 13.111 13.073
Sænsk króna 12.519 12.593 12.556
Svissn. franki 110.85 111.47 111.16
Japanskt jen 0.9713 0.9769 0.9741
SDR 150.7 151.6 151.15
Evra 118.9 119.56 119.23
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 144.379
Hrávöruverð
Gull 1203.55 ($/únsa)
Ál 1881.0 ($/tonn) LME
Hráolía 51.49 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Greiningardeildir Arion banka og
Íslandsbanka eru á einu máli í þeirri
spá sinni að 12 mánaða verðbólga
muni lækka í 1,8% nú í mars en hún
reyndist 1,9% í febrúar. Þannig hækki
vísitala neysluverðs um 0,2% frá fyrra
mánuði. Hagstofan mun birta þróun
vísitölunnar á grundvelli reglubundinna
mælinga sinna þann 28. mars næst-
komandi.
Í spám greiningardeildanna kemur
fram að hækkun húsnæðisliðar vísi-
tölunnar muni áfram draga vagninn
og hafa áhrif til hækkunar um 0,2%.
Arion banki telur að fatnaður og skór
muni hafa áhrif á hækkun vísitölunnar
sem nemur 0,12 prósentustigum en
Íslandsbanki telur að sá liður hafi áhrif
til hækkunar sem nemi 0,22
prósentustigum. Er það rakið til út-
söluloka. Hækkunin er sögð minni nú
en oft áður á þessum árstíma og
nefna greiningardeildirnar að harðn-
andi samkeppni ráði þar miklu, ekki
síst koma H&M inn á markaðinn.
Spá því að verðbólgan
lækki í 1,8% í mars
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Fjarskipti og 365 miðlar hafa undir-
ritað samning um kaup Fjarskipta á
öllum eignum og rekstri 365 miðla,
að undanskildum eignum er varða
útgáfu Fréttablaðsins. Kaupverð er
á bilinu 3.125-3.275 milljónir króna
og mun endanlegt kaupverð ráðast
af rekstrarárangri hins keypta fram
að afhendingu.
Hlutabréf Fjarskipta í Kauphöll
Íslands hækkuðu um 5,74% í gær, og
kosta nú 56,90 kr. hver hlutur.
Kaupin eru með fyrirvara um
samþykki Samkeppniseftirlitsins,
sem gefur sér 110 daga til að skoða
málið, að því er fram kom á kynn-
ingarfundi vegna viðskiptanna.
Kaupverð verður greitt annars
vegar með 32.380.952 hlutum í Fjar-
skiptum á genginu 52,5 krónur á hlut
og hins vegar með 1.425-1.575 millj-
ónum króna í reiðufé.
Einnig yfirtekur kaupandi vaxta-
berandi skuldir að fjárhæð 4.600
milljónir króna ásamt viðskipta-
skuldum upp á 1.550 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfall samstæðu verður
um 40% eftir kaupin. Stefán Sigurðs-
son, forstjóri Vodafone, segist í sam-
tali við Morgunblaðið vera ánægður
með niðurstöðuna. „Ég er ljómandi
ánægður. Okkur finnst þetta vera
tækifæri fyrir bæði félög, fyrir
starfsmenn beggja félaga og eigend-
ur, sem og fyrir viðskiptavini. Ég
held að þetta verði sterkara félag.
Þetta eru miðlar sem eru mikilvægir
fyrir Ísland og menningu á Íslandi.
Það liggja tækifæri í að taka við
þessu og þróa áfram. Við erum bjart-
sýn á verkefnið,“ sagði Stefán.
Óttast ekki fréttastofurekstur
Aðspurður segist Stefán ekki ótt-
ast það að reka óháða fréttastofu.
„Þetta verður klárlega mjög mikil-
vægt verkefni en ég sé fyrir mér að
við leysum þetta. Við verðum að sýna
fram á óhæði ritstjórnar og við verð-
um í stjórnskipulagi og stjórnarhátt-
um að vinna að því. Það eru líka
ákveðin tækifæri í því ef þú gerir það
vel, því þá njóta fréttirnar sem þú ert
með í þínum miðli trausts. Oft er tal-
að um að aðilar nálgist kaup á fjöl-
miðlum með völd eða pólitík í huga,
og það er kannski ákveðið tækifæri
að við komum ekki úr þeirri áttinni
inn í þetta, heldur meira á þeim for-
sendum að dreifa efni til fólks og
þróa það áfram.“ Stefán segir að-
spurður að þær farsímaáskriftir sem
fylgi með í kaupunum séu 13.000
talsins. 365 er með heildsölusamning
við Símann og viðskiptavinir 365 eru
því með SIM-kort frá Símanum. „Við
þurfum fyrst að bíða eftir Sam-
keppniseftirlitinu og sjá hvað það
gerir. Við höfum oft þurft að skipta
um SIM-kort og búnað hjá fólki, og
það verður bara verkefni eins og allt
annað,“ segir Stefán, spurður að til-
færslu viðskiptavina á milli félag-
anna.
Eftir sameiningu verður tekju-
hlutfall félagsins á þann veg að 57%
verða fjarskiptatekjur, 31%
áskriftartekjur sjónvarps, 9% aug-
lýsingatekjur og 3% aðrar tekjur.
Fjarskipti kaupa 365 fyrir
rúma þrjá milljarða króna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Yfirtaka Velta sameinaðs félags mun nema um 22 milljörðum króna og skila 5 milljörðum í EBITDA.
Samlegðaráhrif
» EBITDA hins keypta, með
fullum samlegðaráhrifum,
nemur um 1.750 milljónum
króna á ársgrundvelli. 60% er
vegna áætlaðrar kostnaðar-
samlegðar.
» Samlegð er mest vegna
tæknimála og kemur fram að
fullu innan 12-18 mánaða.
» 365 má setja á stofn nýjan
vefmiðil sem styður Frétta-
blaðið.
Taka yfir 4,6 milljarða í vaxtaberandi skuldum Fréttablaðið undanskilið
Gengi krónu veiktist lítillega í gær,
sama dag og gjaldeyrishöftum var
formlega aflétt, eða um 0,3-1% gagn-
vart helstu myntum, samkvæmt
upplýsingum frá Keldunni. Á mánu-
dag nam veikingin um 3%, en upp-
lýst var á sunnudag að haftalosun
stæði fyrir dyrum.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningardeildar Íslandsbanka,
segir í samtali við Morgunblaðið að
það sé styrkleikamerki fyrir krón-
una hve lítið hún hafi veikst síðustu
tvo daga. Fjármagn hafi ekki leitað
úr landi í stórum stíl eftir að höftum
var aflétt. „Undir niðri hlýtur það að
vera merki um tiltrú á íslensku krón-
una,“ segir hann.
Hlutabréf hækkuðu í gær og á
mánudaginn, og hafa sérfræðingar á
fjármálamarkaði sagt að ástæðuna
megi rekja til afnáms hafta. Úrvals-
vísitalan hækkaði meira í gær en á
mánudaginn, í gær nam hækkunin
1,4% en var 0,7% daginn áður.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að afnám gjaldeyrishafta gerði ís-
lenskan hlutabréfamarkað fýsilegri í
augum erlendra fjárfesta, meðal
annars vegna þess að skrifræði
minnkaði, auk þess sem nú væri er-
lendum fjárfestum boðið upp á gjald-
eyrisvarnir sem drægju úr áhættu
þeirra við kaup á íslenskum hluta-
bréfum.
Þrátt fyrir að fjármagnshöftum
hafi verið aflétt í gær eru enn við lýði
varúðarreglur vegna vaxtamunar-
viðskipta og takmarkanir á afleiðu-
viðskipti með íslenskar krónur.
helgivifill@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Varúð Við lýði eru varrúðarreglur
vegna vaxtamunarviðskipta.
Styrkleikamerki
fyrir krónuna
Krónan veiktist
lítillega í gær og
hlutabréf hækkuðu