Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.03.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 Guðrún Antonsdóttir lögg. fasteignasali Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu. Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð. Núna er tækifærið ef þú vilt selja. Hringdu núna í 697 3629 og fáðu aðstoð við að selja þína eign, hratt og vel. Ertu í söluhugleiðingum? Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is Manila. AFP. | Stríð stjórnvalda á Filippseyjum gegn fíkniefnum hefur kostað nær sjö þúsund manns lífið frá því að Rodrigo Duterte varð for- seti landsins í júlí síðastliðnum. Manndrápin hafa einnig mjög slæm- ar afleiðingar fyrir fjölskyldur þeirra sem eru líflátnir án dóms og laga. Mannréttindahreyfingar hafa lýst herferð Duterte sem „stríði gegn fátæku fólki“ vegna þess að þær telja það bitna aðallega á fátæk- um fjölskyldum. Á meðal þeirra sem lögreglan hef- ur gert að ekkjum er Sally Antonio sem er 43 ára gömul. Hún er úrvinda af þreytu vegna þess að hún hefur þurft að vera í þremur störfum eftir að hafa misst 19 ára gamlan son, helstu fyrirvinnu heimilisins, og eiginmann, sem var atvinnulaus, þegar lögreglumenn leituðu að fíkni- efnum á heimili þeirra fyrir sex mánuðum og skutu feðgana til bana. „Þegar þeir drápu eiginmann minn og son þá drápu þeir mig líka,“ segir Antonio. Ekkjan á fimm börn og barnabarn og reynir að fram- fleyta fjölskyldunni með því að vinna eins mikið og hún mögulega getur. Hún segist stundum ekki ná nema tveggja tíma svefni á dag. Hún starf- ar í þvottahúsi, sinnir útréttingum fyrir nágranna og starfar við öryggisgæslu í hverfi sínu. „Stund- um er ég svo úrvinda og kvalirnar í höndunum svo miklar að ég kemst ekki í vinnu í einn eða tvo daga,“ segir Antonio grátandi. „Þá þarf ég að fá lánaða peninga hjá nágrönnum og við þurfum að fara sparlega með mat.“ Antonio segir að 18 ára gömul dóttir sín hafi þurft að hætta há- skólanámi í sálfræði til að geta sinnt heimilisstörfum og gætt yngri systk- ina sinna. Helsta áhyggjuefni Ant- onio er að eiga ekki pening fyrir lyfj- um ellefu ára gamals sonar sem er hjartveikur. „Ég er svo reið. Af hverju þurftu þeir að drepa eigin- mann minn og son og fórna fjöl- skyldum eins og okkur.“ Segist hafa skotið í sjálfsvörn Antonio segir að eiginmaður sinn hafi neytt fíkniefna og hún hafi sjálf sagt yfirvöldum frá því. Hann hafi þó ekki verið fíkniefnasali. Sonur sinn hafi hins vegar aldrei komið ná- lægt fíkniefnum. Hún telur að hann hafi verið skotinn til bana vegna þess að hann bað lögreglumennina um að þyrma lífi föður síns. Í skýrslu lögreglunnar segir að feðgarnir hafi verið skotnir til bana í sjálfsvörn eftir að skotið hafi verið á lögreglumennina. Antonio segir aft- ur á móti að feðgarnir hafi ekki veitt mótspyrnu þegar lögregla leitaði á heimilinu. Lögreglan segir að alls hafi hún þurft að skjóta 2.500 manns í sjálfs- vörn frá því að hún hóf aðgerðirnar fyrir átta mánuðum en mannrétt- indasamtök draga þá tölu í efa. Am- nesty International telur að með manndrápunum kunni lögreglan að hafa gerst sek um glæp gegn mann- kyninu. Nær 7.000 manns hafa verið drepin í stríðinu frá því að Rodrigo Duterte varð forseti landsins í júlí sl. Stríð gegn fíkniefnum á Filippseyjum Heimild: Ríkislögreglan á Filippseyjum/Ljósmynd AFP: Noel Celis Í aðgerðum lögreglunnar Í árásum óþekktra vígamanna Heildarfjöldi þeirra sem hafa verið drepin frá 1. júlí, samkvæmt tölum frá lögreglu landsins síðustu mánuði 29. sept. 7. okt. 8. des. 31. jan. 13. mars17. jan. 2017 25. nóv. 1. júlí 2016 0 1.360 1.745 1.959 2.057 2.250 3.060 3.710 2.646 1.523 1.838 2.555 4.076 4.235 2.564 1000 2000 3000 4000 5000 6000 7000 . Sagt bitna aðallega á fátækum fjölskyldum  Nær 7.000 manns drepin í stríði gegn fíkniefnum AFP Manndráp Aftökum án dóms og laga mótmælt í miðborg Manila. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Fjárlagaskrifstofa Bandaríkjaþings hefur komist að þeirri niðurstöðu að tillögur leiðtoga Repúblikanaflokks- ins í heilbrigðismálum verði til þess að þeim landsmönnum, sem eru án sjúkratryggingar, fjölgi um 24 millj- ónir á tíu árum. Talið er að niður- stöður hagfræðinga fjárlagaskrif- stofunnar minnki líkurnar á því að tillögurnar nái fram að ganga á þinginu. Tillögurnar njóta stuðnings Don- alds Trumps Bandaríkjaforseta sem lofaði því fyrir kosningarnar í nóv- ember að afnema heilbrigðislöggjöf, sem hefur verið kennd við Barack Obama og kölluð Obamacare. Áætl- að er að með Obama-lögunum hafi um 20 milljónir fullorðinna og þrjár milljónir barna fengið sjúkratrygg- ingar. Löggjöfin varð hins vegar til þess að iðgjöldin hækkuðu verulega og leiddi til aukins kostnaðar fyrir tryggingataka og ríkið sem niður- greiðir tryggingarnar. 52 milljónir án trygginga? Donald Trump Bandaríkjaforseti hét því fyrir kosningarnar að afnema Obama-lögin án þess að fjölga þeim sem væru án sjúkratryggingar. Hann lofaði því að gera heilbrigðis- kerfið ódýrara og betra fyrir alla Bandaríkjamenn. Fjárlagaskrifstof- an telur þó að tillögur leiðtoga Repú- blikanaflokksins verði til þess að þeim sem eru án sjúkratryggingar fækki um fjórtán milljónir á næsta ári og 24 milljónir á áratug. Gangi spá hagfræðinga skrifstof- unnar eftir verða 52 milljónir Banda- ríkjamanna án sjúkratryggingar ár- ið 2026, eða um einn af hverjum fimm íbúum landsins. Tíundi hver íbúi er án sjúkratryggingar nú og hlutfallið var einn á hverja sex íbúa áður en Obama-lögin voru samþykkt árið 2010, að sögn dagblaðsins The Washington Post. Minnkar fjárlagahallann Fjárlagaskrifstofan komst einnig að þeirri niðurstöðu að tillögur leið- toga Repúblikanaflokksins myndu minnka fjárlagahallann um 337 millj- arða dollara (tæpa 38.000 milljarða króna) á næstu tíu árum. Það ætti að draga úr andstöðu íhaldssamra þing- manna úr röðum repúblikana sem hafa lagst gegn tillögunum á þeirri forsendu að ekki sé gengið nógu langt í því að draga úr afskiptum al- ríkisins af heilbrigðismálum. Frétta- skýrendur The Wall Street Journal telja þó líklegt að niðurstöður fjár- lagaskrifstofunnar torveldi leiðtog- um Repúblikanaflokksins að sam- eina þingmenn hans í málinu vegna vaxandi andstöðu miðjumanna við tillögurnar. „Þetta er hræðilegt“ Enginn þingmanna demókrata hefur lýst yfir stuðningi við áform leiðtoga Repúblikanaflokksins. Styðji enginn demókrati tillögurnar falla þær ef fleiri en tveir repúblik- anar í öldungadeildinni og 22 í full- trúadeildinni greiða atkvæði gegn þeim. Stefnt er að því að tillögurnar verði afgreiddar í báðum deildum þingsins í næsta mánuði. Repúblikaninn Rob Wittman, full- trúadeildarþingmaður frá Virginíu, hefur þegar lýst því yfir að hann hyggist greiða atkvæði gegn tillög- unum. „Ég tel að við getum komið á mikilvægum umbótum, sem setja sjúklinginn og þá sem annast hann aftur í öndvegi, en þetta frumvarp er ekki rétta svarið,“ sagði Wittman í færslu á Facebook. „Þetta er hræðilegt,“ hefur frétta- veitan AFP eftir repúblikananum Bill Cassidy, öldungadeildarþing- manni frá Louisiana. Fleiri repúblik- anar á þinginu hafa látið í ljós áhyggjur af fjölda þeirra sem verða án sjúkratrygginga ef tillögurnar ná fram að ganga. „Slíkar spár verða næstum örugglega til þess að frum- varpið verður endurskoðað,“ hefur The Washington Post eftir Susan Collins, öldungadeildarþingmanni frá Maine. „Ég tel ekki að tillögurn- ar sem eru til umræðu núna verði það frumvarp sem borið verður und- ir atkvæði í öldungadeildinni.“ Forystumenn Repúblikanaflokks- ins drógu sumar af niðurstöðum fjár- lagaskrifstofu þingsins í efa. Tom Talið torvelda einingu meðal repúblikana  Minni líkur á að tillögur repúblikana í heilbrigðismálum nái fram að ganga Indverjar taka þátt í „huranga“ í hofi hindúa nálægt borginni Mat- hura, um 100 km sunnan við Nýju- Delhí. „Huranga“ er leikur sem fram fer daginn eftir Holi, hátíð lit- anna. Karlmenn ata þá konur í fljótandi litarefnum og þær rífa föt- in af körlunum. AFP Indversk kynjabarátta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.