Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 20

Morgunblaðið - 15.03.2017, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í dag, á dánardegi Júlíusar Sesars, eru þingkosningar í Hollandi. Þær kosningar hafa kallað á meiri at- hygli en endranær, vegna upplausnar í ESB. Bretland er á leið út úr sambandinu. Pólverjar hafa í hótunum eftir að neitunarvald þeirra var haft að engu á dög- unum. Grikkir eru á leið í næstu tragedíu. Erdogan hót- ar að opna gaddavírsgirðing- arnar sem halda aftur af millj- ónum flóttamanna. Og svo mætti áfram telja. Enginn gerir þó ráð fyrir að úrslit þingkosninganna í Hol- landi leiði til beinna vandræða strax eða fljótlega. Sama gildi þótt svo ólíklega færi að flokk- ur ESB-andstæðingsins Wild- ers yrði stærstur. Hitt er jafn- víst að Wilders hefur ráðið umræðunni í kosningunum. Forsætisráðherrann Rutte hefur nauðugur færst nær sjónarmiðum Wilders til að koma í veg fyrir fylgishrun eins og talið er að blasi við jafnaðarmönnum. Lengi vel var reynt eftir hefðbundinni aðferð að mála Wilders sem óalandi öfga- mann. Sú aðferð hefur lengi dugað en gerir það sífellt verr. Þótt niðurstaða kosninganna verði sennilega ekki sú að Hollendingar muni flykkja sér um flokk Wilders í þeim mæli sem kannanir bentu lengi til að yrði og að flokkur Rutte forsætisráðherra verði áfram stærstur flokka á þingi er annað sem veldur elítu ESB áhyggjum. Hefðbundnir valda- flokkar í Hollandi munu senni- lega flestir og jafnvel allir tapa verulegu fylgi. Í Hollandi eru 28 flokkar í framboði til þings og talið er að 14 þeirra muni ná mönnum inn. Alls kyns „ópólitískir“ flokkar munu fiska upp atkvæði gömlu elítuflokkanna, auk atkvæða sem falla á Wilders. Þótt flokk- ur Wilders verði nær örugg- lega áfram utan stjórnar eftir kosningarnar verður vart hægt að túlka úrslitin svo að hinir hefðbundnu miðjumoðs- flokkar hafi hrundið atlögu hans. Næsta ríkisstjórn verður því sennilega veik og þótt hinn 195 sentímetra langi Rutte verði áfram forsætisráðherra mun hann í öðrum skilningi jafnframt gnæfa upp úr dverg- unum sem munu safnast í stjórnina til að tryggja þar meirihluta. Úrslitin verða lík- lega ekki eins sögu- leg og spáð var en í takt við þróun sem elítan óttast} Ekki bylting, en bylta Ekki er hægt aðsegja að fjöl- miðlar heimsins hafi farið á hliðina við afnám gjald- eyrishafta. Fréttin komst þó að í heimspressunni, þótt ekki væri henni slegið upp. Lítil frétt um málið í Frankfurter Allge- meine Zeitung vakti athygli dálkahöfundarins Dirks Max- einer, fyrrverandi ritstjóra hjá tímaritinu Stern. „Tæpum ára- tug eftir fjármálakreppuna er aftur hægt að stunda frjáls við- skipti með íslensku krónuna,“ skrifar hann. „Það segir ekki bara sína sögu um Ísland, heldur einnig um Grikkland og ESB. Á meðan Íslendingum hefur tekist að losa sig úr dýinu af eigin rammleik sökkva Grikkir alltaf dýpra. Og það er ekki bara þeim að kenna. Dæmi Íslands gerir að verkum að hægt er að tala um tíu glötuð ár hjá Grikkjum.“ Maxeiner segir að það megi þakka fjárfestingum og upp- gangi ferðaþjónustu að ís- lenski gjaldmiðillinn sé nú á sama stað og 2008, en einnig megi rekja það til ákveðni og trúar á framtíðina, sem ein- kenni Íslendinga. Síðan bætir hann við: „Hefði vilji Evrópusambands- ins náð fram að ganga er víst að þessi saga hefði farið á annan veg.“ Maxeiner skrif- ar fyrir vefmiðil, sem heitir Öxull hins góða og gefur einnig út tímaritið Neugier.de. Tíma- ritið gerði 2011 úttekt á Ís- landi þar sem meðal annars sagði: „Í kreppunni komust Ís- lendingar fljótt að því hvað samstaða þýðir hjá Evrópu- sambandinu. Til þess að fá hjálp ESB þyrfti Ísland að ganga í einu og öllu að kröfum frá Brussel. Það þyrfti að taka upp allar reglur ESB, opna fiskimið sín fyrir öðrum evr- ópskum fiskiflotum, innleiða evru – og vitaskuld að bæta popúlískum ríkisstjórnum Bretlands og Hollands skaða kærulausra sparifjáreigenda.“ Maxeiner segir að þetta sé kúrinn, sem Grikkjum hafi verið gert að fylgja um árabil. Íslendingar hafi hins vegar ekki tekið þátt og af því megi draga sinn lærdóm um það hvernig ekki hafi verið tekið á Grikklandskreppunni. „Hefði vilji Evrópusambandsins náð fram að ganga er víst að þessi saga hefði farið á annan veg.“} Ísland og Grikkland N ú á maður ekki að trúa öllu sem maður les á netinu, en þar rakst ég á sögu um daginn hjá einum tístvini mínum. Svo er mál með vexti að hann vann á ráðning- arstofu fyrir ekki svo löngu og með honum vann stúlka sem yfirmaður þeirra beggja var alltaf að hnýta í fyrir það að vera ekki eins af- kastamikil og félagi hennar (sögumaðurinn). Nú vildi svo til, eins og viðkomandi rakti söguna, að eitt sinn þegar hann var að sinna viðskiptavinum í gegnum tölvupóst fannst honum þeir venju fremur óstýrilátir og erfiðir; allar hans uppástungur féllu í grýttan jarðveg og önuglyndið draup af hverju orði í póstum frá þeim. Þá var það að hann rak augun í það að hann hafði verið að vinna í gegnum tölvu- póstaðgang samstarfskonu sinnar og póst- urinn því merktur sem væri hann frá henni, en ekki hon- um. Þegar hann skráði sig inn á sitt netfang féll allt snimmhendis í ljúfa löð. Þegar viðkomandi nefndi það við samstarfskonu sína hve erfiðir margir viðskiptavinanna hefðu verið af því að þeir héldu að hann væri hún kom það henni ekkert á óvart. Í framhaldinu stakk hann upp á þeirri tilraun við starfssystur sína að þau myndu skipta á póstaðgangi í vikutíma og sjá hverju fram yndi. Skemmst er frá því að segja að afköst hans minnkuðu um allan helming en hennar jukust að sama skapi þegar viðskiptavinirnir héldu að þeir ættu í samskipum við hann en ekki hana. Hann lýsti því yfir, eða tísti því, réttara sagt, að hann hefði orðið stórhissa en hún lét sér ekki bregða – þetta væri það sem konur þyrftu að glíma við hversdags, ekki síst þegar þær ættu í samskiptum við karla í viðskiptalíf- inu. Mig grunaði nú að þessi tístfélagi minn væri að færa í stílinn og bar söguna upp við vinkonu mína til margra ára sem vinnur skrif- stofuvinnu og á oft í samskiptum við frammá- og forsvarsmenn ýmissa fyrirtækja, sem eru velflestir karlar. Hún hló að mér, leit mig vor- kunnaraugum fyrir barnaskapinn og sagðist iðulega fá karlkyns samstarfsmenn til þess að leggja nafn sitt við tölvupósta þegar það þyrfti að láta hlutina ganga hratt fyrir sig. Oftar en ekki er það nefnilega svo, sagði hún, að tölvupóstar sem konur undirrita bíða ýmist svars dögum eða jafnvel vikum saman þrátt fyrir ítrek- anir, en þegar hún fengi einhvern karlinn á skrifstofunni til að senda póst tækju skussarnir við sér. Í nýlegri bók, Forystuþjóð, eftir þær Eddu Her- mannsdóttur og Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur, ræða þær við konur og karla um jafnréttismál. Einn viðmæl- enda þeirra er Bragi Valdimar Skúlason sem nefnir það að körlum finnist óþægilegt að falla undir starfstitil sem er kvenkyns á meðan konur virðist sætta sig við karlkynstitla. Kannski er það vegna þess að við erum mörg enn svo innrætt, því miður, að stjóri hefur meiri áhrif en stýra. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Stjóri en ekki stýra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nicola Sturgeon, leiðtogiskosku heimastjórn-arinnar, stal senunni ámánudaginn þegar hún tilkynnti að hún vildi að Skotar myndu kjósa aftur um sjálfstæði sitt frá Stóra-Bretlandi, helst á haust- mánuðum 2018, áður en útganga Breta úr Evrópusambandinu yrði endanleg. Slík atkvæðagreiðsla fór einnig fram haustið 2014, og felldu Skotar með um 55% gildra atkvæða að verða sjálfstætt ríki. Síðar um kvöldið samþykkti breska þingið að veita Theresu May, forsætisráðherra Breta, heimild til að hefja ferlið sem leiða mun til út- göngu Breta úr Evrópusambandinu. Hafði verið búist við því fyrirfram að May myndi tilkynna um það í gær, þegar samþykki drottningarinnar á lögunum lægi fyrir, en embætt- ismenn í Downingstræti 10 tilkynntu að May myndi ekki hefja út- gönguferlið fyrr en 27. mars næst- komandi. Vildu breskir fréttaskýr- endur setja töfina í beint samhengi við málefni Skotlands, þrátt fyrir að forsætisráðuneytið segði að það hefði alltaf verið ætlunin að hefja út- gönguferlið í lok mars. Hvenær verður kosið? Sturgeon og skoska þingið hafa ekki heimild til þess að boða til nýrr- ar atkvæðagreiðslu einhliða, heldur þarf þingið að samþykkja sérstaka beiðni til breska þingsins í London um slíkt. Þar sem skoskir þjóðern- issinnar og græningjar hafa sam- anlagt meirihluta atkvæða á skoska þinginu er talið nær öruggt að sú beiðni verði samþykkt. Það mun hins vegar velta á breska þinginu hvort atkvæðagreiðslan fari fram og þá hvenær. Þar er lítill stuðningur við sjálfstæðisbrölt Skota. Theresa May gagnrýndi Sturg- eon í gær og sagði skoska þjóðern- issinna þjást af „rörsýni“ og að gjörðir þeirra ýttu undir óvissu og sundrungu meðal Skota á tímum þegar samheldni væri þörf. Jafnframt sagði May það ekki koma til greina að boða til annarrar atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skot- lands áður en útganga Breta úr ESB væri endanleg. Tímasetning sú sem Sturgeon hefði krafist væri hin versta mögulega, þar sem Skotar myndu þá ekki hafa allar upplýs- ingar um lífið utan Evrópusam- bandsins tiltækar. Á hinn bóginn er talið ólíklegt að May muni standa í vegi fyrir ann- arri atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands, þó að hún muni tefja hana fram til vorsins 2019. Óttinn er sá, að skoskum þjóðernissinnum myndi eingöngu vaxa ásmegin ef beiðni þeirra yrði neitað. Hvernig myndu Skotar kjósa? Á hinn bóginn er engan veginn víst hvernig slík atkvæðagreiðsla myndi fara. Sturgeon gætti sín vandlega á því að tala um það að færa Skotum „val“, frekar en að vera viss um sigur. Nýjustu skoð- anakannanir benda nefnilega til þess að naumur meirihluti Skota sé með áframhaldandi sambandi við Bret- land, eða sem nemur um 52% á móti 48%. Það eru þó ekki góðar fréttir fyrir þá sem vilja að Skotar verði áfram hluti af Bretlandi, þar sem þjóðernissinnar náðu að vinna tölu- vert á í síðustu kosningabaráttu og bættu við sig þrettán prósentu- stigum fram að atkvæða- greiðslunni. Þeir munu því leggja allt í sölurnar til þess að tryggja sér sigur, verði kosið aftur um sjálfstæði Skotlands. Kosið aftur um sjálfstæði Skotlands? AFP Sjálfstæðisfundur Skoskir þjóðernissinnar vilja að kosið verði aftur um sjálfstæði Skotlands áður en Bretar ganga úr Evrópusambandinu 2019. Nicola Ferguson Sturgeon er fædd 19. júlí 1970 og er lög- fræðingur að mennt. Hún er fyrsta konan til þess að gegna embætti æðsta ráð- herra Skotlands, sem og fyrsta konan til þess að leiða Skoska þjóðarflokkinn, SNP. Hún tók við báðum emb- ættum í kjölfar ósigurs þjóð- ernissinna í atkvæðagreiðsl- unni um sjálfstæði Skota árið 2014 þegar Alex Salmond sagði af sér. Sturgeon hefur verið meðlimur SNP frá árinu 1986, en hún hefur einnig verið virk í baráttu fyrir ein- hliða kjarnorku- afvopnun Breta. Sturgeon hefur setið á skoska þinginu frá upphafi þess árið 1999. Hörð í horn að taka NICOLA STURGEON Nicola Sturgeon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.