Morgunblaðið - 15.03.2017, Page 25

Morgunblaðið - 15.03.2017, Page 25
hans og fjörutíu ára gömul heim- ilisföng mín í París og London þangað sem hann heimsótti mig úr sumarvinnunni í Lillehammer voru enn á sínum stað í kollinum. En mest af öllu mat ég Halla fyrir þá eðliskosti sem gerðu hann að uppáhaldsmanneskju í lífi mínu. Óbilandi tryggð. Mann- gæsku og samhygð. Hjálpsemi sem átti sér lítil takmörk. Um- hyggju fyrir fólkinu sínu, vinum og skjólstæðingum. Hrifnæmi hans og viðkvæmni. Fölskvalausa ánægju af félagsskap barna, sem mörg urðu vinir hans og aðdáend- ur ævilangt, líkt og mín eigin. Ég kveð hjartans vininn minn góða með þakklæti fyrir kærleik- ann sem ég átti ávallt vísan í svo- lítið klaufskum faðmi hans. Ég mun sakna hans meðan ég lifi, en minningarnar munu hlýja mér til hinsta dags. Olga Guðrún Árnadóttir. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Enginn er spámaður í sínu föð- urlandi, segir máltækið. Það á einnig vel við um vin okkar Hall- grím Magnússon. Þegar hann varð yfirlæknir í Noregi var fag- mennska hans og viska fyrst met- in að verðleikum. Hallgrímur fluttist til Grundarfjarðar um 1990 og starfaði þar sem heilsu- gæslulæknir í þrettán ár. Við hlið hans störfuðum við þrjár, ritarar og ljósmóðir og nutum hans frá- bæru handleiðslu, kennslu og til- sagnar í dagsins önn. Húmor og jafningjatal við morgunkaffið, þar sem málefni líðandi stundar voru brotin til mergjar. Alla daga og nætur öll árin var hann á vakt fyr- ir Grundfirðinga, símleiðis eða á stofunni. Sjúklingum sínum fylgdi hann á spítalann og bjargaði ófáum lífum svo og börnum sem flýttu sér í heiminn. Hallgrímur byggði upp heilsugæsluna okkar og tók meðal annars þátt í að hanna fyrsta sjúklingatölvukerf- ið, byggði upp rausnarlegt bóka- safn og valdi öll nýjustu lækn- ingatæki með frábærri útsjónarsemi. Nú var hans tími útrunninn og hann tók því af sínu einstaka æðruleysi, Ásdís mót- tökuritari og Hallgrímur munu nú sitja saman og skrafa um ógleym- anlega tíma. Við leyfum okkur hér með að þakka fyrir hönd Grundfirðinga þennan ómetanlega tíma sem ein- kenndist af ósérhlífni, ábyrgð og öryggi fyrir alla íbúa bæjarfélags- ins. Sendum innilegar samúðar- kveðjur til fjölskyldunnar hans. Hildur og Alda. Það var litríkur hópur sem mætti vestur í Háskóla á haust- dögum 1971. Þessi hópur var að hefja nám í læknisfræði. Það var kvíði og spenna í liðinu enda vitað að fækkað yrði í hópnum um helming fyrir jól. Einn skar sig þó úr og vakti meiri eftirtekt en aðr- ir. Það var vinur okkar Hallgrím- ur. Hann var hvergi smeykur við fall. Var samtímis inntökuprófum í læknadeild að ljúka háskólanámi í stærðfræði, eðlisfræði og veður- fræði frá háskólanum í Ósló. Hann féll vel inn í hópinn enda kom fljótt í ljós að hann var ein- staklega góður félagi. Hann hafði ríkan húmor, var næmur listunnandi, góður hljóm- borðsleikari og í raun organisti af bestu gerð. Samtímis náminu í læknisfræðinni lagði hann stund á háskólanám í málfræði og norsku og sagði það góða leið til að lesa sig niður eftir prófin í læknadeild- inni og brosti með kímni. Hann var mikill náttúruunn- andi og voru það helst Vestfirð- irnir og Tálknafjörðurinn, sem seiddu hann til sín, en þangað átti hann ættir að rekja. Hann starf- aði um þriggja ára bil sem læknir á Patreksfirði. Þar sinnti hann skjólstæðingum sínum svo sann- arlega frá vöggu til grafar enda samtímis starfandi organisti í Barðastrandarprófastsdæmi. Hann lauk síðan sérnámi í geð- lækningum og doktorsprófi í sömu grein. En íslenska náttúran hélt áfram að heilla. Hann flutti vestur í Grundarfjörð og var þar starfandi heilsugæslulæknir um árabil við góðan orðstír. Hann helgaði sig síðan geðsjúkdómum aldraðra. Lagði hart að sér að koma þeim málum í betri farveg hér á landi, en naut ekki skilnings ráðamanna. Hann flutti því til Noregs og starfaði seinustu árin þar sem yfirlæknir og fékkst við rannsóknir og kennslu á sviði öldrunargeðlækninga. Nú eru lið- in fjörutíu ár frá útskrift okkar úr læknadeildinni. Samverustund- irnar urðu stopulli með árunum, en það var alltaf jafn gaman að hitta eða spjalla við Hallgrím í síma. Hans glaða sinni og fróð- leikur um nýjungar í læknisfræði voru einkunnarstef hans alla tíð. Snörp og skammvinn barátta hans við illvígan sjúkdóm settu hann ekki úr jafnvægi. Seinustu dagana á líknardeildinni hló hann innilega með okkur er við rifjuð- um upp fyndin atvik úr lækna- deildinni forðum. Við þökkum honum góða samfylgd í lífinu og biðjum góðan Guð að styrkja af- komendur hans og ástvini. Ásmundur Magnússon, Benedikt Ó. Sveinsson. Sérstakur maður, Hallgrímur. Í leifturminningum kemur fyrst upp Hallgrímur í bláu, síðu prjónapeysunni sinni, einni af mörgum, sem var hans einkenn- isbúningur lengi vel. Ók milli staða í litlum, frönskum herjeppa, hannaður fyrir útlendingaher- sveitina í Sahara. Hár og grannur, skeggjaður, skar sig alls staðar úr. Líka fyrir sérdeilis hlýtt og brosmilt viðmót, skarpa greind og ákefð í umræðum sem skiptu máli. Hallgrímur fór ekki alltaf troðnar slóðir. Eftir læknanámið sinnti hann heilsugæslu út á landi, en hans skilgreining á hlutverk- inu náði út fyrir læknisfræðina – í umhverfisvernd og með orgelspili við messur – var okkur kollegun- um sagt sem fórum troðnari slóðir í þéttbýlinu. Sem geðlæknir var hann vísindamaður og fræðari og sinnti jafnframt öldruðum með geðraskanir, mörg undanfarin ár í Noregi. Við tengdumst um tíma þegar Hallgrímur vann sem geðlæknir með öðrum sérfræðingum í mannlegri hegðun, í meira en ald- argömlu húsi í hjarta bæjarins. Það voru gefandi tengsl. Þau héldu áfram eftir að hann flutti utan, en þá hafði hann verið lengi umboðsmaður eins eiganda gamla hússins, sem einnig bjó erlendis. Eins og gerist þegar fólk með sér- þekkingu á okkar sviði þarf að leysa mál, þá geta þau orðið óþarflega flókin. Ótvíræðir kostir Hallgríms til að miðla málum og kímnigáfa leystu öll vandamál. Í löngum heimsóknum til Íslands tók hann gjarnan þátt í umræðu- fundum hópsins, og eins og hans var vandi kom hann með ný og óvænt sjónarhorn inn í annars nokkuð hátimbraða umræðu. Maður með góða jarðtengingu. Síðustu samskipti okkar tengd- ust sölu gamla hússins nýlega. Það var þá sem hann sagði frá veikindum sínum. Við ræddum hinar mjög svo slæmu horfur, fjarlæga möguleika til að fram- lengja líf, og svo um dauðann, í tveimur löngum símtölum milli landa. Æðruleysi og yfirvegun einkenndu samræðuna. Hélt svo heim til Íslands og kvaddi. Góður maður genginn. Högni Óskarsson geðlæknir. Við sjáumst ekki í sumar og þó sé ég þig: er blómin horfa himins til og hneigja sig þá yfir í þinn huliðsheim þú heillar mig. Því vetrarstríð á enda er nú undrumst við hve dauðinn veitir dýra hvíld og djúpan frið og heyrum lífið líða hjá sem lækjarnið … Koma þau geðdeildarhjónin. Þetta varð einhverjum starfs- manni Landspítalans að orði þeg- ar við Hallgrímur mættum í há- degismat í mötuneytinu. Við fórum alltaf saman í mat og marg- ir héldu að við værum hjón. Stjórnsama fiðrildið og karlinn í bláu peysunni. Við kynntumst þegar við bæði unnum á Kleppi. Síðan eru 36 ár. Með okkur tókst vinátta sem aldr- ei hefur borið skugga á. Oft vor- um við gjörsamlega ósammála um alls konar málefni þar sem hvor- ugt gat gefið eftir í heitum rök- ræðum. Að reyna t.d. að ræða femínisma við Hallgrím var gjör- samlega ómögulegt. Þar mættust sannarlega stálin stinn. Minningarnar eru fleiri en upp verður talið. Kalli sonur okkar dvaldi hjá Hallgrími í Grundar- firði og Hildur dóttir okkar leigði hjá honum íbúð um tíma. Við fór- um fjölskyldurnar i berjamó fyrir vestan, fórum með Ásu, Laugu, mökum og öllum börnunum í Munaðarnes, héldum matarboð, bæði á Ásvallagötunni og á Grundarstígnum og er þá fátt eitt talið. Hallgrímur var ekkert venju- legur. Ofurgreind hans þvældist stundum fyrir honum og gerði það að verkum að allt dægurþras og pólitík voru í hans huga fá- fengilegt drasl. Sérvitur var hann með afbrigðum og ekki alltaf auð- velt að rökræða við hann. En heil- indi hans og örlæti í garð þeirra sem honum voru kærir voru al- gjör og skilyrðislaus. Heilindin og ást í garð barna hans og barna- barna bera því glöggt vitni Hallgrímur unni starfi sínu mjög og eftir hann liggja ótal læknisfræðilegar greinar, hávís- indalegar og unnar af mikilli ná- kvæmni, eins og hans var von og vísa. Aðrir eru bærari en ég til að fjalla um það. Hann kom til Íslands í desem- ber sl. og við borðuðum saman í hádeginu eins og alltaf þegar hann kom til landsins. Hann var í raun kominn til að kveðja. Við kvöddumst á tröppunum fyrir ut- an Laugaás eftir góðan plokkfisk. Mér fannst þessi kveðjustund handónýt svo að í lok janúar dreif ég mig til Óslóar til að kveðja hann almennilega þar sem hann dvaldi á Diakonhjemmet Sykehus í Ósló. Sagði honum að ef ég þyrfti að kveðja hann þá ætlaði ég ekki að gera það á tröppunum á Laugaási í rigningarsudda. Hann hló, fárveikur, og sagði að það hæfði heldur ekki fólki eins og okkur. Svo flissuðum við bæði. Síðast hittumst við á Grundar- stígnum þar sem hann var rúm- fastur og beið eftir að fara á líkn- ardeild. … Og allir þeir sem unnir þú og unnu þér þeir sjá hvar logi lífs þíns rís og lyftir sér í þessa lygnu líknarnótt sem ljómar hér (Jóhannes úr Kötlum.) Ég kveð Hallgrím vin minn með þakklæti fyrir vináttuna, tryggðina og allar góðu stundirn- ar okkar. Einari, Hlíf, Huldu, Láru, Vigdísi, Lottu og öllum öðr- um aðstandendum votta ég dýpstu samúð. Hulda Lilliendahl. Mér brá er ég las tilkynningu um andlát Hallgríms Magnússon- ar læknis í Morgunblaðinu. Hafði ekki hitt hann lengi og ekki haft spurnir af veikindum hans. Hall- grímur var góður læknir, er ávann sér auðveldlega traust, trúnað og virðingu sjúklinga sinna. Ég kynntist honum fyrst er hann hóf störf sem aðstoðarlækn- ir við deild 10 á Kleppsspítala árið 1977. Hann var enginn málskrafs- maður, snöggur til verka, sam- viskusamur og þægilegur í um- gengni við sjúklinga og samstarfsfólk. Í fyrstu hafði ég nokkrar áhyggjur af klæðaburði hins unga manns. Hann var alltaf í sömu fötunum, dökkblárri sjó- mannapeysu og bláum gallabux- um, en þau voru hrein og snyrti- leg eins og eigandinn. Hallgrímur var á þessum árum ókvæntur, bjó einn og annaðist um sig sjálfur. Dag einn gat ég ekki lengur orða bundist og sagði: Hallgrímur minn, er þvottavélin stöðugt í gangi hjá þér? Fyrst varð hann dálítið hvumsa við, en áttaði sig brátt á hvert ég var að fara, brosti og svaraði: Nei, nei. Ég á nóg til skiptanna. Ég komst á lagersölu hjá verslun vestur á fjörðum, sem var að hætta. Þeir áttu talsverðar birgðir af dökkbláum sjómanna- peysum og bláum gallabuxum, sem pössuðu á mig, svo ég keypti lagerinn. Eftir það hafði ég engar áhyggjur af klæðaburði Hall- gríms og vandist honum ágæt- lega. Rúmum áratug seinna var ég viðstaddur hátíðlega og virðu- lega athöfn hjá læknadeild Há- skóla Íslands þar sem Hallgrímur varði doktorsritgerð sína. Hann klæddist við það tækifæri kjólföt- um. Ég þóttist skynja, að honum liði ekki alls kostar vel í þessum klæðnaði og hugsaði með mér: Hvers vegna varstu ekki bara í bláu gallabuxunum og dökkbláu peysunni? Það hefði bara verið fínt. Máltæki segir: Fötin skapa manninn. Í þessu tilfelli er það öf- ugt. Hallgrímur með sínum yfir- lætislausa virðuleika, hlýju og kurteisi í framkomu gerði þessar hversdagslegu og einföldu flíkur að viðhafnarbúningi, er hæfði hverri athöfn, hversdagslegri jafnt sem hátíðlegri. Hallgrímur átti ýmsa strengi í hörpu sinni. Hann var tónlistamaður og þótti liðtækur kirkjuorganisti. Ekki er ég dómbær um hæfni hans á því sviði. Heyrði hann aðeins einu sinni leika á orgel. Safnaðarfélag Dómkirkjunnar í Reykjavík var á ferð um Snæfellsnes og heimsótti m.a. Grundarfjarðarkirkju. Hall- grímur sýndi okkur kirkjuna, lék á kirkjuorgelið undir sálmasöng í helgistund og fór prýðilega úr hendi. Ég kveð Hallgrím nú með vinsemd, virðingu og þakklæti, en sendi aðstandendum hans innileg- ar samúðarkveðjur. Jóhannes Bergsveinsson. Nú er skarð fyrir skildi, fallinn er frá fyrir aldur fram læknir, sem sérhæfði sig í greiningu og meðferð geðsjúkdóma aldraðra. Hallgrímur Magnússon samdi doktorsritgerð um rannsóknir sínar á geðheilsu Íslendinga á ní- ræðisaldri og varði hana við Há- skóla Íslands 1989. Hann var þá orðinn sérfræðingur í geðlæknis- fræði, starfandi á geðdeild Land- spítalans. En honum var það ekki nóg og gerðist heilsugæslulæknir úti á landi eins og hann hafði verið áður en hann hóf störf á Landspít- alanum. Hallgrímur var mjög fjölhæfur og greindur og þurfti því að reyna sig við ýmsar greinar áður en hann snéri sér að læknisfræðinni. Hann varð cand.mag. í stærð- fræði og jarðeðlisfræði við háskól- ann í Ósló 1971, tók síðan sprett í málfræði og norsku og þá var loks komið að læknisfræðinni við Há- skóla Íslands, sem hann lauk 1977. Hann var mjög músíkalskur og spilaði á orgel í kirkju þar sem hann var heilsugæslulæknir og gerði síðar útvarpsþætti með fé- lögum sínum. Hann var handlag- inn og útsjónarsamur, svo að hann gerði jafnvel við heimilis- tæki á spítalanum, fann út hvað var að og lét panta varahluti og lauk viðgerðinni næst þegar hann var á vakt. Hann var hár og grannur, fast- ur fyrir og hafði ákveðnar skoð- anir sem hann rökstuddi vel og var fljótur að taka ákvarðanir. Sumum þótti hann sérvitur, sem m.a. mátti sjá á klæðaburði hans, sem alla tíð meðan við unnum saman var eins, en alltaf hreinn og snyrtilegur, kom enda í ljós að hann átti mörg sett af buxum og peysum til skiptanna. Aldrei þótti mér sérviska hans til trafala, nema síður væri, þau ár sem við unnum saman. Það var miður að hann skyldi ekki snúa aftur til starfa á Landspítalanum nema löngu síðar um tíma á öldrunar- deildinni. Hann fór eftir það til Óslóar og varð yfirlæknir á öldr- unargeðdeild Akershus-sjúkra- hússins þar. Minningin um góðan og gáfað- an lækni lifir. Ég votta aðstand- endum Hallgríms samúð. Tómas Helgason. Hallgrímur Magnússon, læknir og mætur félagi, er fallinn frá eft- ir snörp veikindi. Fyrir réttum fjórtán árum bauð Hallgrímur fram starfskrafta sína á öldrunar- sviði Landspítalans. Mikill fengur var í Hallgrími, enda var hann enginn venjulegur maður. Áður en læknisfræði fangaði huga Hall- gríms hafði hann lokið prófi í stærðfærði og jarðeðlisfræði og lagt sig eftir málvísindum. Sem ungur læknir í héraði annaðist Hallgrímur orgelleik áður en hann sérhæfði sig í geðlækning- um og lauk doktorsritgerð um geðsjúkdóma eldra fólks. Hallgrímur vann á hinum ýmsu deildum öldrunarsviðs Landspít- alans um sjö ára skeið enda var hann margreyndur og fjölhæfur læknir og skilaði einkar góðu starfi á líknardeild fyrir eldra fólk. Hins vegar tók Hallgrímur okkur öllum fram þegar kom að greiningu og meðferð geðsjúk- dóma hjá eldra fólki. Á því sviði var Hallgrímur slyngur læknir og náði árangri þar sem öðrum hafði brugðist bogalistin. Hallgrímur sýndi í verki að eldra fólk með geðsjúkdóma, sem virtist vera komið á vonarvöl og nær dauða en lífi, gat með réttum ráðum náð undraverðri heilsu á ný. Með sanni má segja að öldrun- argeðlækningar hafi verið þá, og séu því miður enn, einn viðkvæm- asti bletturinn á þjónustu við eldra fólk. Hallgrímur var áhuga- samur um og lagði mikið til nefnd- arstarfs um uppbyggingu öldrun- argeðlækninga. Er skemmst frá því að segja að full samstaða náð- ist um málið og í fyrsta áfanga var opnuð göngudeild fyrir eldra fólk með geðsjúkdóma þar sem Hall- grímur vann með góðu fagteymi. Í öðrum áfanga átti að opna fjór- tán rúma legudeild á Landakoti og var það mál opinberlega í for- gangi vikunni fyrir hrunið mikla. Síðan ekki söguna meir. Hallgrímur, klæddur bláu ein- kennispeysunni sinni, gekk öðr- um mönnum hraðar. Fyrir hvert eitt skref sem hann tók, tóku aðrir tvö, í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Einnig var maðurinn Hallgrímur skemmtilegur og lif- andi félagi, sem oftar en ekki kom með óvænt sjónarhorn inn í um- ræður. Þeir sem þekktu Hallgrím best tóku í vindil með honum til hátíðabrigða. Hallgrímur var einkar skipulagður og einarður í því sem hann tók sér fyrir hendur og ákvörðunum hans varð ekki haggað. Lífsferill Hallgríms virðist skiptast í sjö ára tímabil. Ef til vill hefur Hallgrímur skynjað og skil- ið dýpri krafta tilverunnar. Hitt er þó líklegra að sár vonbrigði Hallgríms með hrunið og afleið- ingar þess hafi ýtt honum yfir haf- ið. Með mikilli eftirsjá urðum við að sætta okkur við að Hallgrímur flytti af landi brott. Sjö árum síð- ar er Hallgrímur allur. Börnum og ástvinum Hallgríms eru send- ar innilegar samúðarkveðjur. Pálmi V. Jónsson. Í dag kveð ég kæran vin, hann Hallgrím frænda minn. Við erum búnir að eiga góðan vinskap í ára- tugi. Gæðastundir áttum við sam- an frændur hjá henni ömmu okk- ar, Margréti á Steinhúsum í Tálknafirði. Þar bjó einnig föður- bróðir okkar, hann Einar, sem var okkur frændum góður og óþreyt- andi við að leiðbeina okkur við verkin. Alla tíð var hann Hall- grímur einstaklega góður við Ein- ar frænda okkar og hugsaði um hann eins og best hann mátti meðan Einar lifði. Hallgrímur var mjög frænd- rækinn og kíkti alltaf til okkar hjóna þegar hann var hér fyrir vestan. Alltaf áttum við frændur skemmtilega stund saman. Spjöll- uðum margt saman og enduðum oft í að dvelja í liðinni tíð og þeim stundum sem við eyddum með Margréti ömmu okkar og Einari föðurbróður. Hallgrímur var lengi læknir hér hjá okkur á suð- ursvæði Vestfjarða. Hér eru vet- ur oft snjóþungir og ekki auðvelt að komast til að sinna bráðasjúk- lingum. En Hallgrímur lét það ekki á sig fá, fór í margar hreint ævintýralegar vitjanir. Setti það ekki fyrir sig þó að fyrirséð væri að vitjunin tæki langan tíma, bjó sig bara út í bláu peysuna sína, góðan kuldagalla og tók skóflu með sér. Ekkert skyldi stoppa hann af við að leysa mál sjúkling- anna sem margir voru einnig vinir hans og góðir samborgarar. Kæri frændi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég og mínir vottum fjölskyldu Hallgríms okkar innilegustu sam- úð. Örn Gíslason. Kynni okkar Hallgríms hófust skömmu eftir lok læknanáms þeg- ar ég tók við starfi hans í héraði. Þá vissi ég að þar fór mikill mann- kostamaður og góður læknir. Ég minnist þess hve mikið hann lagði sig fram við að veita mér nýgræð- ingnum sem bestar upplýsingar um sjúklinga sína í héraðinu til að fylgja eftir þeim meðferðar áætl- unum sem hann hafði lagt upp með. Síðar lágu leiðir okkar sam- an þegar Hallgrímur hóf störf á öldrunarlækningadeild Landspít- alans á Landakoti. Áður hafði hann starfað um áraraðir við heimilislækningar í héraði en síð- ar á Landspítalanum þar sem hann lagði stund á geðlækningar. Þá aflað hann sér sérþekkingar á sviði öldrunargeðlækninga og skapað sér alþjóðlega virðingu á því sviði. Því miður varð ekki af uppbyggingu öldrunargeðdeildar á Landspítala eins og áformað var vegna áhrifa efnahagshrunsins og hvarf hann því nokkrum árum síð- ar til starfa í Noregi þar sem hann gegndi starfi yfirlæknis og deild- arstjórnanda síðustu árin. Ég minnist Hallgríms sem góðs félaga sem auðgaði þá sem hann umgekkst vegna einstakra mannlegra eiginleika. Sem læknir átti hann auðvelt með að ná tengslum við sjúklinga sína og skapa traust. Hann var vel að sér á flestum sviðum læknisfræðinn- ar og nýtti hann það í starfi sínu sem heimilislæknir og ekki síður í sérgein sinni öldrunargeðlækn- ingum en þar bjó hann yfir djúpri þekkingu sem skjólstæðingar hans nutu af en einnig við koll- egar hans sem hann var óþreyt- andi að fræða og veita leiðsögn. Þá var hann mikilvirkur vísinda- maður á sínu sérsviði og tengdum sviðum þar sem hann m.a. kom að rannsóknum á faraldsfræði MS- sjúkdómsins. Á Noregsárunum síðari kom Hallgrímur reglubundið heim til Íslands í fríum. Í þeim heimsókn- um áttum við nokkrir félagar góð- ar stundir þar sem kynni okkar styrktust. Var það ekki síst fyrir atbeina Hallgríms sem boðaði til samfundanna og gaf þar mikið af sér. Ég kveð góðan vin og starfs- félaga með söknuði og þakka fyrir þau forréttindi að hafa kynnst honum. Sigurbjörn Björnsson. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.