Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 26

Morgunblaðið - 15.03.2017, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 ✝ Eiríkur K.Þorgrímsson fæddist að Selnesi á Breiðdalsvík 20. júní 1926. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 5. mars 2017. Foreldrar hans voru Oddný Þór- unn Erlendsdóttir, f. á Felli í Breið- dal 16. desember 1897, d. 29. mars 1987, og Þorgrímur Guðmundsson, f. á Þverhamri í Breiðdal 1. ágúst 1883, d. 11. janúar 1956. Þau voru frumbyggjar á Breið- dalsvík. Systkini Eiríks voru: Guðrún Helga, f. 1916, d. 1916, Guðmundur, f. 1917, d. 2002, Helgi, f. 1918, d. 1983, Sigríður, f. 1919, d. 1921, Sig- fús, f. 1921, d. 2008, Erlingur, f. 1923, d. 1946, Valborg, f. og Guðlaugar: 1) Kristján, f. 1951, kvæntur Bergþóru Ann- asdóttur, f. 1950, og eiga þau börnin Guðlaugu, Oddnýju Sigríði og Friðjón og sjö barnabörn. 2) Oddný Sigríður, f. 1952, d. 1978, var gift Stein- ari Braga Viggóssyni, f. 1950, d. 2001, og þeirra sonur er Ei- ríkur Steinarsson, f. 1972, giftur Oddnýju Helgu Sigurð- ardóttur, f, 1974, og eiga þau fjögur börn. 3) Gunnar Már Eiríksson, f. 1960, maki Guð- laug K. Benediktsdóttir, f. 1960, og eiga þau börnin Ein- ar Örn, Guðrúnu Jónu og tvö barnabörn. Eiríkur vann á sín- um ungdómsárum bæði til sjós og lands en var smiður hjá Pósti og síma í 40 ár. Útför Eiríks verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, 15. mars 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. 1925, d. 2013, Sverrir, f. 1928, d. 1988, Þórður, f. 1930, Kristín, f. 1931, d. 1946, Garðar, f. 1932, Geirlaug, f. 1937, Þröstur, f. 1939. Hinn 26. júní 1948 giftist Eiríkur Guðlaugu Krist- jánsdóttur, f. 30. júní 1917, d. 30. desember 2004. Foreldrar Guðlaugar voru Kristján Ei- ríksson, f. 2. desember 1873 að Holtum á Mýrum og Guðný Eyjólfsdóttir, f. 26. júní 1876 að Smiðjunesi í Bæjarhreppi. Eiríkur og Guðlaug byrjuðu búskap sinn í Reykjavík, en byggðu sér svo hús að Borg- arholtsbraut 34 í Kópavogi og fluttu í það 1956. Eiríkur bjó þar er hann lést. Börn Eiríks Elskulegur faðir, tengdafaðir og afi er fallinn frá. Margar góðar minningar eig- um við öll fjölskyldan um þig, elsku Eiríkur. Yndislegt ferðalag sem við fórum öll saman með þér til Tenerife, þar áttum við frá- bæran tíma saman enda stór hóp- ur á ferð. Einnig var farið í marg- ar veiðiferðir í gegnum árin þar sem þú naust þín vel við árbakk- ann. Það var alltaf yndislegt að koma í heimsókn til ykkar Laugu á Borgarholtsbrautina. Gestrisn- in og hlýjan var svo ljúf og alltaf voruð þið tilbúin að passa barna- börnin. Þeim fannst gott að fá að vera hjá ykkur. Þú hafðir gaman af því að sýsla í garðinum og rækta þar kartöflur og rabarbara og nutum við fjölskyldan góðs af því. Hjálpsemi þín var mikil og ef þurfti að laga, breyta eða smíða eitthvað varst þú kominn og bjargaðir málunum og það skipti ekki máli hvort það var innan fjöl- skyldunnar eða utan hennar. Hvíldu í friði, elsku Eiríkur. Gunnar, Guðlaug og fjölskylda. Bróðir mágur og kær vinur er fallinn frá. Sólsetrið í vetur hefur sjaldan verið fegurra en það kveld, sem Eiríkur fór sína hinstu för. En hann lést að kveldi 5. mars, eftir stutta en erfiða sjúkrahúsvist. Eiríkur ólst upp í stórum systkinahópi, í litlu sjáv- arþorpi. Undi hann sér vel við leik og störf, fram á unglingsár. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur. Þar sem hann fór að vinna í bygg- ingarvinnu, ásamt Sigfúsi bróður sínum. Einnig vann hann suður á Keflavíkurflugvelli, við hin ýmsu störf. En fljótlega réði hann sig á smíðaverkstæði Pósts og síma, þar sem hann vann alla tíð. Þar til hann þurfti að láta af störfum, sökum aldurs. Eiríkur var mikill hagleiksmaður, byggði hús sitt við Borgarholtsbrautina að miklu leyti sjálfur. Vann í því um helg- ar, gekk frá Hverfisgötunni suð- ur í Kópavog snemma á morgn- ana, þar sem strætisvagnarnir byrjuðu ekki að ganga fyrr en á hádegi. Hann vann langan vinnu- dag í sinni vinnu, en þegar heim var komið á kveldin var oftast farið í bílskúrinn. Þar hafði hann komið sér upp fullkomnu smíða- verkstæði, þar leysti hann úr hin- um ýmsu vandamálum fyrir vini og ættingja. Það var alltaf gaman að koma til Eiríks og Laugu, þau kunnu sannarlega að gleðjast í góðra vina hópi. Fyrir tólf árum lést Lauga, og var það honum mikill missir. Eftir það bjó hann einn í sínu húsi, og hugsaði um sig sjálfur. Eiríkur hafði mjög gam- an að ferðast, bæði innan- og ut- anlands. Hann var góður ferða- félagi, og nutum við þess hjónin að fara með honum í nokkrar ut- anlandsferðir. Aðventuferð til Þýskalands, þrjár ferðir til Ten- erife en þar leið honum vel í hit- anum. En minnisverða ferðin sem við fórum í saman, var til Ítalíu sumarið 2006. Sigldum frá Genova til Sikileyjar, þar sem Eiríkur hafði sagt að hann yrði mjög hátt uppi á áttræðis afmæl- isdaginn sinn. Vorum við einmitt á toppi Etnu þann dag. Síðan var keyrt norður alla Ítalíu og margt að sjá. Síðustu ár höfum við haft mikið samband, og komum til með að sakna ferðanna á Borg- arholtsbrautina. Eftir stendur þakklæti fyrir það sem þú, Eirík- ur, hefur gefið okkur öll þessi ár. Takk fyrir allt. Við sendum Krist- jáni, Gunnari Eiríki og fjölskyld- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Geirlaug og Hörður. Í dag kveðjum við góðan fjöl- skylduvin Eirík Þorgrímsson. Kynni okkar hófust þegar þegar Gunnar sonur hans kom inn í fjöl- skyldu okkar. Þá myndaðist strax góð vinátta milli okkar og þeirra hjóna Eiríks og Laugu. Þessi vinátta leiddi til þess að farið var saman í ferðalög bæði innanlands og utan auk veiði- ferða. Eiríkur og Lauga voru gott fólk sem vildi öllum vel. Þau voru rausnarleg, góðhjörtuð og hjálp- söm hjón. Mikill gestagangur var á heimili þeirra og ófáir sem þar þáðu veitingar, gistingu og fleira. Allir voru svo hjartanlega vel- komnir. Eiríkur var einstaklega hjálp- samur og varla mátti minnast á að eitthvað þyrfti að laga þá var hann kominn og tilbúinn að hjálpa svo ekki sé minnst á að fá lánuð tæki og tól. Hann var góður handverksmaður og mjög útsjón- arsamur í allri smíðavinnu. Hann var duglegur að rækta sinn garð og gaman að fylgjast með hvenær kartöflurnar fóru niður sem var oft snemma. Það var komið vor þegar þær fóru niður. Við þökkum honum samfylgd- ina og geymum góðar minningar um hann og Laugu. Jóna og fjölskylda. Í dag verður föðurbróðir minn, Eiríkur K. Þorgrímsson, borinn til grafar. Eiríkur kom frá stóru heimili en þau voru 15 alls systk- inin en 12 komust á legg, ég held að þessi systkinahópur hafi feng- ið einstakt uppeldi á Selnesi hjá afa og ömmu því ég hef aldrei kynnst jafn æðrulausum og sam- heldnum hópi og þeim systkinum. Það hefur nú stundum verið grín- ast með að það hafi þótt óþarfi að vera að klaga eða kjafta frá þó að eitthvað færi úrskeiðis í leik og starfi. Ég kynntist Eiríki og konunni hans, Laugu, fyrst þegar ég kom til Reykjavíkur sem unglingur og var mér strax tekið sem einni af fjölskyldunni en þau áttu börn á mínum aldri, Kristján sem er jafn gamall mér, Oddnýju Sigríði, ári yngri sem lést aðeins 26 ára göm- ul eftir stutta sjúkdómslegu, og svo Gunnar Má nokkrum árum yngri. Það fara óteljandi minningar í gegnum hugann frá þessum tíma, sem að ég minnist með miklu þakklæti bæði til Eiríks og Laugu og barnanna þeirra. Það var oft glatt á hjalla á Borgar- holtsbrautinni og einhvern veg- inn svo sjálfsagt að allir væru vel- komnir og því varð þetta einskonar mótsstaður okkar frændsystkinanna utan af landi og jafnvel okkar vina, hef ég grun um að það hafi æði oft verið reiknað með margföldum fjölda fjölskyldunnar í sunnudagssteik- ina. Eiríkur var mikill fjölskyldu- maður og varð honum það mikill missir þegar Lauga lést en hann eins og ávallt hélt sínu striki og hugsaði um sig og sitt heimili til síðustu stundar, hann naut þess að hugsa um húsið sitt og garðinn og hélt þessu öllu við eins og hon- um var lagið. Fyrir nokkrum árum þurfti ég á húsaskjóli að halda um ca. þriggja mánaða skeið vegna íbúðaskipta og fékk þá að búa hjá Eiríki, ég minnist þessa tíma með góðum huga og þakklæti. Eiríkur var þá hættur að vinna en var samt hingað og þangað að hjálpa bæði vinum og ættingjum, það voru líka ófáar stundirnar sem hann dvaldi í smíðaskúrnum sín- um og margir sem nutu góðs af hans verkum þar. Eiríkur var mjög vandvirkur og margt fallegt handverk eftir hann. Eiríkur átti það til að bjóða mér í mat sem var nú yfirleitt fiskur því það var hans uppáhald og eina uppskrift notaði hann oft en hana fékk hann hjá kokki sem hafði verið á Herjólfi, ég kallaði þennan fiskrétt Herjólfsfiskinn og var hann mjög bragðgóður. Ég minnist líka þeirra stunda sem að við horfðum á Útsvar saman og höfðum álit á því hvað sumir væru klárir en aðrir síður og auðvitað vissum við oft mest. Ég veit að síðustu vikurnar voru Eiríki erfiðar því það átti alls ekki við hann að þiggja að- stoð og láta aðra snúast í kringum sig og hef ég grun um að hann hafi leynt því lengi hversu illa honum leið þess vegna. Innilega samúð mína votta ég Kristjáni, Bergþóru, Gunnari og Guðlaugu og þeirra fjölskyldum ásamt Eiríki Steinarssyni og hans fjölskyldu Með kæru þakklæti fyrir öll árin Stefanía Björk Helga- dóttir (Stebba). Fallinn er frá í hárri elli vinur okkar og fyrrverandi nágranni Eiríkur Þorgrímsson smiður, ættaður frá Selnesi við Breiðdals- vík. Kynni okkar hófust fyrir mörgum árum þegar við fjöl- skyldan festum kaup á íbúð við Borgarholtsbraut 36 í Kópavogi. Í næsta húsi voru þá búsett hjón á miðjum aldri, Eiríkur og Guð- laug. Í fyrstu fannst okkur Eiríkur frekar fámáll og hrjúfur en þegar við kynntumst betur og gátum báðir rakið ættir okkar austur á land, jafnvel fjarskyldir, þá hófst vinátta og tryggð sem entist með- an báðir lifðu. Þetta var árið 1975 sem við fluttum með son okkar í Kópa- voginn. Þá var ekki margt fólk með ung börn í Vesturbæ Kópa- vogs og viðbrigðin því mikil fyrir fólk sem kom úr Breiðholtinu. Ég held að okkur ungu hjónunum hafi báðum fundist að við værum komin þarna í öruggt skjól og gátum alltaf leitað til þeirra hjóna ef eitthvað vantaði. Svo mikið er víst að börnin okkar fundu fljótt að þarna var gott að koma. Þau gerðust heimagangar þar, alltaf var vel tekið á móti þeim og Lauga gaukaði að þeim flatkök- um og kleinum. Eins og áður sagði var Eiríkur smiður, vann á smíðaverkstæði hjá Pósti og síma. Hann vann mikið og eftir langan vinnudag biðu mörg verkefni í skúrnum. Þangað leituðu margir með margs konar kvabb sem hann leysti fljótt og vel af hendi af því að hann var greiðvikinn og hafði gaman af vinnunni. Undirritaður átti margar ferðir í skúrinn til nafna bæði til að fá eitthvað sagað og heflað eða bara til að ræða málin því að Eiríkur fylgdist vel með og hafði skoðanir á hlutun- um. En nú er hlutverki hans í skúrnum lokið. Eiríkur kom úr stórri fjöl- skyldu og oft var mikill gesta- gangur á heimilinu, fólk utan af landi sem gisti hjá þeim hjónum, þar sem öllum var vel tekið. Guð- laugu konu sína missti Eiríkur í janúar 2005 eftir farsælt og gott hjónaband. Hann bjó áfram í sínu húsi sem hann hafði sjálfur byggt frá grunni eins og þá var algengt og Kópavogur að byggjast upp. Að leiðarlokum viljum við fjöl- skyldan þakka samfylgdina og sendum afkomendum og fjöl- skyldunni allri innilegar samúð- arkveðjur. Eiríkur, Ásdís og fjölskylda. „Nú sný ég mér í vestur,“ glumdi úr næsta tjaldi við Skóga- foss einhvern tíma snemma á 8. áratugnum. Ég og Árni bróðir vorum að springa úr hlátri í næsta tjaldi eftir að hafa hlustað á þau hjón Eirík og Laugu í sam- ræðum fyrir svefninn. Þetta var semsagt aðferð Eiríks við að til- kynna að hann væri hættur öllu blaðri og farinn að sofa. Það var hvorki leiðinlegt né lognmolla að umgangast þau hjón. Það var vin- átta milli barna Gísla og Ingi- bjargar og barna Þorgríms og Oddnýjar sem á sínum tíma ólust upp í Selnesi á Breiðdalsvík. Við systkinin höfum notið góðs af þeirri vináttu og var heimili Ei- ríks og Laugu við Borgarholts- braut í Kópavogi oft næturstaður utanbæjarfólks. Þannig fann maður sig alltaf velkominn í gist- ingu þegar helgarfrí voru á Bif- röst þriðju hverja helgi í tvo vet- ur. Það taldist til undantekninga ef maður var eini gesturinn þær helgar. Árið 2006 skömmu eftir að við fjölskyldan fluttum hingað suður ákváðum við að byggja pall og skjólgirðingu við húsið okkar. Eftir að móðir mín frétti af þess- Eiríkur K. Þorgrímsson HINSTA KVEÐJA. Í dag verður til moldar borinn tengdafaðir minn, Eiríkur K. Þorgrímsson. Við höfum átt góða sam- fylgd sl. 45 ár og vil ég þakka þér, Eiríkur, allar góðar stundir, bæði í blíðu og stríðu. Blessuð sé minning þín, kæri Eiríkur. Þín tengdadóttir, Bergþóra. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANDÍS INGJALDSDÓTTIR, andaðist föstudaginn 10. mars. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Þeim sem viljast minnast hennar er bent á Heimahjúkrun Akureyri. Friðleifur Ingi Brynjarsson Ruth Viðarsdóttir Sigríður Brynjarsdóttir Hólmar Kr. Þórhallsson Bryndís Brynjarsdóttir Bjarki H. Beck Brynjarsson Brynhildur M. Sölvadóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GRETHE AARIS HJALTESTED, andaðist föstudaginn 10. mars. Útförin verður auglýst síðar. Jytte Hjaltested Jens Pétur Hjaltested Friðrik Örn Hjaltested Björn Hjaltested Gunnarsson Lísa Björk Hjaltested tengdabörn og barnabörn Elskulegur faðir okkar, RAGNAR ÞÓRARINSSON, fyrrv. bifreiðastjóri, Blönduósi, lést sunnudaginn 12. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Þorleifur Ragnarsson Ingibjörg S. Magnúsdóttir Sigurlaug Ragnarsdóttir Hörður B. Níelsson Þórunn Ragnarsdóttir Birgir Gestsson Ragnhildur Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KOLBRÚN BÆRINGS HALLDÓRSDÓTTIR, Hörðukór 1, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk, laugardaginn 11. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Brynja Björk Kristjánsdóttir, Haukur Eiríksson Sigrún Bærings Kristjánsdóttir, Birgir Guðjónsson Ásthildur Dóra Bærings Kristjánsdóttir, Einar Sverrisson Kristín Þóra Bærings Kristjánsdóttir, Eggert Þorgrímsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra móðir, JAKOBÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR, varð bráðkvödd mánudagskvöldið 13. mars. Þórður Jónsson Helga Jónsdóttir Sigríður Jakobínudóttir Unnur Jónsdóttir Þorlákur Jónsson Hjartkær eiginmaður minn, JÓHANN SIGVALDASON kennari, Undirhlíð 3, Akureyri, er látinn. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. mars klukkan 10.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið Hlíð. Guðný Matthíasdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.